Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leigusamningum fækkar um 10% milli mánaða Heildarfjöldi þinglýstra leigusamninga á landinu var 755 í nóvember s.l. og fækkar þeim um 10,1% frá október og um 0,8% frá nóvember 2009. 15.12.2010 10:04
ESB og Noregur ákveða makrílveiðar umfram ráðgjöf „Með því að taka til sín 90% þess makrílafla, sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) leggur til, hafa Norðmenn og Evrópusambandið ákveðið að makrílaflinn á næsta ári fari langt fram úr því sem veiðiráðgjöf hljóðar upp á," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. 15.12.2010 09:47
Dómur vegna Edge reikninga Kaupþings á næsta ári Slitastjórn Kaupþings segir að dómur í ágreiningsmálum vegna Edge innlánsreikninga bankans í Þýskalandi sé væntanlegur um mitt næsta ár. 15.12.2010 09:29
Heildaraflinn dregst saman um 8% milli ára Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 0,5% minni en í nóvember 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,0% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði. 15.12.2010 09:01
Kópavogsbær ætlar að minnka skuldir um milljarð Kópavogsbær stefnir að því að greiða um milljarð króna inn á skuldir bæjarsjóðs. Þetta kemur fram í tillögu að fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár. 15.12.2010 07:38
Ætla að beita löggjöf ESB gegn íslenskum fiskiskipum Maria Damanaki sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins er nú að íhuga að beita löggjöf sambandsins til þess að setja löndunarbann á öll fiskiskip Íslendinga í evrópskum höfnum. 15.12.2010 07:17
Njótum nú þegar góðra kjara vestra Ekki er brýnt að óska eftir fríverslunarsamningi við Bandaríkin, að mati Samtaka atvinnulífsins (SA). Sex þingmenn hafa lagt til að stofnað verði til viðræðna um slíkan samning. Í greinargerð segir að sóknarhagsmunir Íslands liggi í að tryggja greiðan aðgang að Bandaríkjamarkaði fyrir útflutningsvörur. 15.12.2010 06:30
Löndunarbann hefði engin áhrif „Við vísum ábyrgðinni á þeirri ofveiði sem fyrirsjáanleg er á næsta ári alfarið á hendur Evrópusambandinu og Noregi,“ segir Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands í makrílviðræðum við ESB og Noreg. 15.12.2010 06:15
Útlendingar gætu skapað sátt hér á landi Viðskiptaráð telur ástæðu til að skoða hvort heppilegt geti verið að fá erlenda aðila til að annast rannsóknir í tengslum við hrunið. Fyrir Alþingi liggja tillögur um nokkrar slíkar og veitir Viðskiptaráð sömu umsögn um þrjár þeirra; rannsókn á Íbúðalánasjóði, rannsókn vegna Icesave og rannsókn á einkavæðingu bankanna. 15.12.2010 05:00
Steinunn: Jón Ásgeir tekur sínar ákvarðanir „Ég hef ósköp lítið um það að segja. Hann tekur sínar ákvarðanir,“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, spurð út í orð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem telur líklegt að hann og viðskiptafélagar hans fari í skaðabótamál gegn slitastjórninni. 14.12.2010 20:10
Jón Ásgeir: Förum líklega í skaðabótamál „Ég er ánægður með niðurstöðuna. Þetta er búinn að vera erfiður tími frá því 11. maí. Slitastjórnin fór yfir strikið gagnvart okkur," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, í samtali við Pressuna. Dómari í New York vísaði í dag máli slitastjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri og sex viðskiptafélögum hans. Hann segir að slitastjórnin hljóti að sæta ábyrgð og hætta. 14.12.2010 17:56
Steinunn: Glitnismálið rekið hér heima „Dómarinn komst að þessari niðurstöðu. Hann taldi að málið ætti heima á Íslandi en hann setti hins vegar tvö skilyrði sem stefndu verða að uppfylla,“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. Hæstiréttur í New York vísaði í dag frá stefnu slitastjórnarinnar gegn sjömenningum sem stefnt hafði verið vegna ásakana um með sviksamlegum og ólöglegum hætti haft fé af bankanum. 14.12.2010 17:27
Skaðabótamál Glitnis: Frávísunarkrafa tekin fyrir í dag Málflutningur vegna frávísunarkröfu hinna stefndu í skaðabótamáli Glitnis í New York hefst klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma. Sjömenningarnir og PriceWaterHouseCoopers, endurskoðunarfyrirtæki Glitnis, krefjast þess að málinu verði vísað frá dómi í New York. 14.12.2010 15:52
Sektuð um 405 milljónir fyrir brot á samkeppnislögum Samkeppniseftirlitið mun sekta Haga og sex kjötvinnslufyrirtæki um samtals 405 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum. 14.12.2010 14:22
Herdís Dröfn Fjeldsted í stjórn Icelandair Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið skipuð í stjórn Icelandair Group, en hún hefur verið í varastjórn frá september 2010. Tekur hún við af Auði Finnbogadóttur sem sagði sig úr stjórninni þegar hún tók við stöðu framlvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðings. 14.12.2010 11:30
Greining spáir 2,4% verðbólgu í desember Greiningardeild Arion banka spáir 0,3% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í desember. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga fara lítillega undir verðbólgumarkmið Seðlabankans og mælast 2,4%. 14.12.2010 11:04
Evran sækir í sig veðrið Gengi krónunnar hefur veikst aðeins gagnvart evru frá því í síðustu viku. Nú þegar þetta er ritað (kl. 09:40) stendur evran í rúmum 153 krónum á innlendum millibankamarkaði en í síðustu viku kostaði hún 151 krónur. Evran hefur á sama tíma verið að sækja í sig veðrið gagnvart dollaranum og almennt að styrkjast á gjaldeyrismörkuðum eftir mikla lækkun í nóvember. 14.12.2010 10:53
Efnt til mótmæla við höfuðstöðvar Bakkavarar Efnt verður til mótmælaaðgerða, kröfugöngu og útifundar föstudaginn 17. desember í Spalding þar sem höfðuðstöðvar Bakkavarar eru til húsa. Það er breska verkalýðssambandið Unite the Union, systursamtök Starfsgreinasambands Íslands, sem stendur fyrir mótmælunum. 14.12.2010 10:22
Enn fjölgar þeim sem verið hafa án vinnu í meir en ár Áfram fjölgar í hópi þeirra einstaklinga sem hafa verið án atvinnu í meira en ár, eða um 35 einstaklinga milli mánaða, og voru þeir í lok nóvember 4.649 talsins. Þar með er þetta annar fjölmennasti mánuðurinn hvað þetta varðar en í apríl síðastliðnum voru um 4.662 einstaklingar án atvinnu í meir en ár sem er metfjöldi. 14.12.2010 10:16
Launakostnaður jókst um 1,1% milli ársfjórðunga Heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst um 1,1% frá fyrri ársfjórðungi í atvinnugreininni iðnaði og um 0,6% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Á sama tímabili dróst heildarlaunakostnaður á greidda stund saman um 3,2% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu og um 1,1% í samgöngum og flutningum. 14.12.2010 09:01
Icesave samningar birtir á vefnum Hópur sem kallar sig Samtök áhugafólks um opna stjórnsýslu hefur sett hina nýju Icesavesamninga á netið. 14.12.2010 07:59
Lausn Icesave deilunnar flýtir ekki afnámi gjaldeyrishafta Lausn Icesave deilunnar mun ekki leiða til afnáms gjaldeyrishaftanna en gæti raunar lengt þau enn frekar. 14.12.2010 07:31
Samið við Kaupþingsmenn sem geta nær ekkert greitt Tæplega helmingur þeirra rúmlega sextíu starfsmanna Kaupþings sem slitastjórn bankans hefur rukkað vegna lána sem þeir fengu til hlutabréfakaupa hefur samið við bankann um endurgreiðslu. Samningarnir sem þegar hafa náðst munu skila búinu vel á annað hundrað milljónum. 14.12.2010 06:45
PwC bendir á ábyrgð bankanna PricewaterhouseCoopers vísar ásökunum sem fram koma í skýrslum norskra og franskra sérfræðinga yfir á stjórnendur Landsbankans og Glitnis. Eins og fram kom í fréttum fyrir helgi segir í skýrslunum að óeðlilega hafi verið staðið að reikningsskilum í ársskýrslum 2007 og árshlutareikningum 2008 hjá bönkunum. Eru endurskoðendur, sem voru á vegum PwC, sakaðir um vanrækslu. 13.12.2010 15:29
Styðja hugmyndir Jóns Bjarnasonar um auknar aflaheimildir Samtök íslenskra fiskimanna lýsa yfir eindregnum stuðningi við hugmyndir Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um að auka aflaheimildir í þorski, ýsu, ufsa og fleiri stofnum og úthluta þeim á jafnréttisgrunni, gegn gjaldi í ríkissjóð. 13.12.2010 13:07
Einkaneyslunni hjálpað af botni kreppunnar Einkaneysla virðist heldur hafa rétt úr kútnum það sem af er liðið vetri, ef marka má kortaveltutölur Seðlabankans. Margt hefur lagst á árarnar við að hjálpa einkaneyslunni upp úr botni kreppunnar. 13.12.2010 11:13
Leiðari FT: Blessum íslensku þjóðina „Blessum íslensku þjóðina sem gerði uppreisn í þjóðaratkvæðagreiðslu í mars s.l. gegn því að að verða sett í skuldafangelsi vegna heimsku hins gjaldþrota Landsbanka.“ Þannig hefst leiðari Financial Times í dag þar sem fjallað er um Icesave málið. 13.12.2010 09:43
Samsetning úrvalsvísitölunnar verður óbreytt Kauphöllin tilkynnti í dag niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 6 vísitölunni (úrvalsvísitölunni), sem gerð er tvisvar á ári. Ákveðið var að halda samsetningu vísitölunnar óbreyttri. 13.12.2010 09:24
Hlutafé Farice verður aukið um 9,7 milljarða Endurskipulagningu Farice er nú að ljúka og mun hlutafé félagsins verða aukið um 63,7 milljónir evra eða um 9,7 milljarða kr. Eftir skipulagninguna mun hlutaféið því nema 75 milljónum evra. 13.12.2010 08:52
Endurskoðendur bankanna flengdir Glitnir og Landsbankinn voru komnir að fótum fram um áramótin 2007 og hefði þá átt að taka bankaleyfið af þeim. Í stað þess að stíga á bremsurnar gáfu þeir í. Eftirlitsaðilar brugðust skyldum sínum og lokuðu augunum fyrir bókhaldsbrellum þeirra. 13.12.2010 06:00
Roksala á Landcruiser-jeppum Toyota á Íslandi hefur selt 145 Landcruiser-jeppa af stærri gerðinni frá áramótum. Ætla má að heildarverðmæti bílanna nemi í kringum 1,5 milljörðum króna. 13.12.2010 05:00
Fagna fyrirhugaðri vegagerð Samtök iðnaðarins (SI) fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að gefa út skuldabréf til að tryggja vegaframkvæmdir á næsta ári eftir að viðræður við lífeyrissjóðina um fjármögnun runnu út í sandinn. „Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir iðnaðinn því verkefnaskortur hefur neytt verktakafyrirtæki til að draga stórkostlega úr starfsemi sinni,“ er haft eftir Helga Magnússyni, formanni Samtaka iðnaðarins, í tilkynningu frá þeim. 13.12.2010 04:00
Viðskiptalífið hvergi talið spilltara en hér Könnun Yfir helmingur Íslendinga, 53 prósent, telur spillingu hafa aukist hér á landi undanfarin þrjú ár. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar stofnunarinnar Transparency International, sem Capacent sá um fyrir hennar hönd í sumar. Fimmtán prósent telja að dregið hafi úr spillingu á sama tíma. 13.12.2010 00:01
Viðskiptavinur VBS vill að eigendur verði dregnir til ábyrgðar Viðskiptavinur í eignastýringu hjá VBS sem tapaði stórum hluta sparifjár síns segist ekki hafa verið látinn vita að peningar hans væru notaðir til að kaupa skuldabréf sem gefin voru út á fasteignir sem aldrei risu. Hann er afar ósáttur og vill að stjórnendur bankans verði dregnir til ábyrgðar. 12.12.2010 19:00
Bjóða 10 milljarða í leikfangarisann Hamleys Fjárfestingarsjóður frá Mið-austurlöndum hefur gert tilboð í breska leikfangarisann Hamleys upp á tæpa tíu milljarða króna. Hamleys er í meirihlutaeigu skilanefndar Landsbankans og er vonast til að hægt verði að ganga frá kaupunum í upphafi næsta árs. 12.12.2010 18:45
Bjóða 270 milljarða fyrir Iceland Fjárfestar eiga í samningaviðræðum við skilanefnd Landsbankans um að kaupa Iceland verslunarkeðjuna í Bretlandi samkvæmt frétt sem birtist í the Mail On Sunday í dag. 12.12.2010 15:41
Hraðbraut: Segist skulda ríkinu 120 milljónir en ekki 192 Ólafur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar, hefur dregið þá upphæð sem Ríkisendurskoðun segir að skólin hefi fengið ofgreitt, í efa. Ríkisendurskoðun segir upphæðina 192 milljónir en Ólafur segir að hún sé nær 120 milljónum. 12.12.2010 12:13
Þurfum ekki að borga vegna tryggingasjóðs - annað með mismununina Þýski lögfræðingurinn í Evrópurétti, Tobias Fuchs frá Berlín, segir Hollendinga og Breta hafa óraunhæfar hugmyndir um innistæðutryggingasjóð varðandi Icesave og að Ísland myndi líklega vinna slíkt dómsmál ef svo bæri undir. Þetta kom fram í viðtali við hann í Silfri Egils. 12.12.2010 14:40
Seðlabankastjóri: Þjóðfélagið þarf að venjast nýjum veruleika „Hér ríkir innlend skuldakreppa,“ sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri í viðtali við Sigurjón M. Egilsson, í þættinum Sprengisandi, sem var á Bylgjunni í morgun. 12.12.2010 11:20
Velta kreditkorta jókst um 10,3% milli ára í nóvember Heildarvelta kreditkorta í nóvember s.l. var 25,5 milljarðar kr. og er þetta 10,3% aukning miðað við nóvember 2009 en 2,4% aukning miðað við október s.l. 12.12.2010 09:00
Slitastjórn VBS útilokar ekki skaðabótamál á hendur stjórnendum Slitastjórn VBS Fjárfestingarbanka hefur ekki útilokað skaðabótamál á hendur stjórnendum bankans en bankinn lánaði til verkefna með veðum í húseignum sem aldrei risu. Viðskiptavinir í eignastýringu bankans voru síðan látnir kaupa þessi skuldabréf sem í dag eru verðlaus. 11.12.2010 19:00
Hvetur saksóknara til þess að rannsaka endurskoðendur Formaður viðskiptanefndar Alþingis, Lilja Mósesdóttir, hvetur sérstakan saksóknara til þess að kanna hvort það sé grundvöllur til sakamálarannsóknar á endurskoðendafyrirtækisins PricewaterhouseCoopers (PwC), vegna starfa þeirra fyrir Glitni og Landsbankans fyrir hrun 2008. 11.12.2010 13:05
Lánaði út á byggingar sem aldrei risu og viðskiptavinir töpuðu öllu VBS Fjárfestingarbanki gaf út skuldabréf út á byggingar sem aldrei risu og voru skuldabréfin síðan framseld til einstaklinga í eignastýringu sem töpuðu öllu sínu. Stærsti vandi VBS, sem á aðeins einn milljarð króna upp í 48 milljarða króna kröfur, er til kominn vegna áhættusamra fasteignaverkefna. 11.12.2010 11:59
Þrotabú VBS á einn milljarð upp í kröfur Stjórnendur VBS Fjárfestingarbanka lánuðu háar fjárhæðir til áhættusamra fasteignaverkefna fyrir hrun sem ekki stóðu undir lánveitingum. Í einhverjum tilvikum lánaði bankinn gegn veði í lóðum sem til stóð að byggja á. 11.12.2010 08:45
Útlán ÍLS námu 2 milljörðum í nóvember Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) námu um 2 milljörðum króna í nóvember, en þar af voru tæpir 1,9 milljarðar króna vegna almennra lána. 11.12.2010 07:05