Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verðbólguálag hækkar verulega á skuldabréfamarkaði Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur hækkað verulega frá áramótum og er langtíma verðbólguálag nú hið hæsta frá vordögum árið 2010. 11.2.2011 12:46
Landsbankinn hraunar yfir fréttaflutning Morgunblaðsins Landsbankinn hefur ekki óskað eftir sérstökum fundi með Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. til að ,,vara við því að hætta væri á að greiðsluflæði gjaldeyris inn í NBI stæði ekki fyllilega undir afborgunum af skuldabréfinu...“ eins og lesa má í frétt Morgunblaðsins í dag. Sú frétt er reyndar stormur í vatnsglasi og þjónar einhverjum tilgangi öðrum en að upplýsa lesendur. 11.2.2011 12:34
Nær helmingur á skrá atvinnulaus lengur en 6 mánuði Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 7.205 og fækkar um 16 frá lokum desember. Þessi hópur er um 49% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok janúar. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fjölgar úr 4.696 í lok desember í 4.794 í lok janúar. 11.2.2011 12:22
Atvinnuleysið mældist 8,5% í janúar Skráð atvinnuleysi í janúar 2011 var 8,5% en að meðaltali 13.458 manns voru atvinnulausir í janúar og eykst atvinnuleysi um 0,5 prósentustig frá desember, eða um 713 manns að meðaltali. 11.2.2011 12:15
Fasteignir í Reykjavík þær fjórðu ódýrustu í Evrópuborgum Fasteignir í miðbæ Reykjavíkur, mældar í evrum, eru afar ódýrar í samanburði við aðrar borgir í Evrópu. Reykjavík er í fjórða neðsta sæti. Einungis í Búdapest, Skopje (Makedónía) og Chisinouv (Moldavía) er að finna lægra fasteignaverð. 11.2.2011 10:34
Páll Harðarson er nýr forstjóri Kauphallarinnar NASDAQ OMX Group hefur tilkynnit að Páll Harðarson hefur verið skipaður forstjóri Kauphallarinnar á Íslandi. 11.2.2011 10:09
Óvíst hvort NBI hafi nægan gjaldeyri til að greiða skuldabréf Óvíst er hvort gjaldeyrisflæði Nýja Landsbankans (NBI) geti staðið undir greiðslum af 280 milljarða kr. skuldabréfi sem bankinn gaf út til gamla Landsbankans í tengslum við uppgjörið þeirra á milli. 11.2.2011 10:04
Janúarútsölurnar ekki jafn líflegar Velta dagvöruverslana í janúar jókst nokkuð frá sama mánuði í fyrra og hefur aukist að raunvirði þrjá mánuði í röð. Verð á dagvöru hefur haldist stöðugt undanfarið en hækkaði í janúar um 1,2% frá mánuðinum þar á undan. Gera má ráð fyrir frekari verðhækkunum á matvælum á næstunni vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs. 11.2.2011 08:52
Fleiri kaupa húsgögn og raftæki - sala á áfengi dettur niður Velta húsgagnaverslana jókst um 6,6% í janúar frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og um 9,3% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 2,5% hærra í janúar síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. 11.2.2011 08:44
Norðurskel í Hrísey gjaldþrota Norðurskel ehf. í Hrísey hefur verið úrskurðuð gjaldþrota og fyrirtækinu lokað. Fyrirtækið fékk greiðslustöðvun í desember s.l. en hún rann út í síðustu viku. 11.2.2011 08:43
Farþegum Icelandair fjölgaði um 15% milli ára í janúar Icelandair flutti rúmlega 82 þúsund farþega í janúar síðastliðnum sem er 15% fjölgun frá janúar í fyrra þegar félagið flutti tæplega 71.600 farþega. 11.2.2011 08:13
Engin áhrif á rekstur RÚV ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hefur lagt fram formlega tillögu um að íslensk stjórnvöld breyti fjármögnun Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) og skilji á milli þess hluta starfsemi RÚV sem telja má í almannaþágu og þess sem lýtur markaðslögmálum. 11.2.2011 05:30
Tilboð dótturfélags talið of hátt viðskipti Arion banki ætlar ekki að selja kjölfestuhlut í smásölurisanum Högum án þess að fyrir liggi hverjir standa á bak við kaupin. Þá verða viðskiptin að vera að fullu fjármögnuð áður en skrifað verður undir samninga. Þetta segir Iða Brá Benediktsdóttir, upplýsingafulltrúi Arion banka. 11.2.2011 00:01
Talin bótaskyld vegna saknæms sinnuleysis Viðskipti Ljóst er að bankastjórar og bankaráðsmenn Landsbankans sýndu af sér saknæma háttsemi með því að grípa ekki til ráðstafana til að tryggja að stórar fjárhæðir rynnu ekki úr bankanum eftir að ljóst var orðið að hann var ógjaldfær í byrjun október 2008. Með aðgerðaleysinu, og eftir atvikum beinum fyrirskipunum, hafa þeir bakað sér margra milljarða skaðabótaskyldu. 11.2.2011 00:01
Vilja kaupa Haga Fjárfestarnir Árni Hauksson og Friðrik Hallbjörn Karlsson fara fyrir hópi þeirra fjárfesta sem hyggjast kaupa þriðjungshlut í Högum. Sjóður í rekstri Stefnis, verðbréfasjóðs Arion banka kemur líka að kaupunum. Samningaviðræður um kaupin standa nú yfir. 10.2.2011 18:43
Rafrænir reikningar sendir út mánaðarlega Orkusalan og RARIK hafa undirritað samstarfssamning við Skýrr um innleiðingu á svonefnda skeytamiðlun fyrir rafræna reikninga. Einnig hafa þessir aðilar samið við Skýrr um sérhæfða hýsingu á reikningamiðlun á vef. RARIK sendir núna út 70 þúsund reikninga mánaðarlega gegnum þjónustuna. 10.2.2011 20:15
Og fjarskipti sektað um 2,6 milljónir Og fjarskipti ehf. hafa verið sektuð um 2,6 milljónir króna fyrir rangar fullyrðingar í auglýsingum sínum og brot á hinum ýmsu greinum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. 10.2.2011 20:00
Erlend verðbréfaeign lækkaði um 127 milljarða Erlend verðbréfaeign innlendra aðila lækkaði um 127,3 milljarða kr. á milli áranna 2008 og 2009. Nam hún 914,8 milljörðum kr. í árslok 2009. Af þeirri upphæð voru 87% í hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum. 10.2.2011 15:28
Endurskipulagningu Icelandair lokið að fullu Fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group er að fullu lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar. 10.2.2011 15:09
Rúm 20% mannaflans á bóta- eða veikindagreiðslum Fjöldi þeirra sem samtals þáðu bóta- eða veikindalaunagreiðslur var tæplega 35.000 manns í desember 2010, eða sem svarar til 21,7% af mannafla. 10.2.2011 14:44
Sjóvá húsið til leigu, líkamsrækt og gufubað í kjallara Reitir fasteignafélag hafa sett Sjóvá húsið í Kringlunni til leigu. Innifalið í leigunni eru líkamræktarherbergi og gufubað í kjallara og 60 bílastæði í lokuðum kjallara. 10.2.2011 14:21
ÍV veita 100% afslátt af söluþóknun sjóða Íslensk verðbréf (ÍV) munu veita 100% afsláttur af söluþóknun sjóða fram til 31. mars n.k. 10.2.2011 13:55
Alcan skarar fram úr á Íslandi Alcan á Íslandi var valið mest framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi, af Creditinfo. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, veitti fimm mest framúrskarandi fyrirtækjum landsins verðlaun í dag. Auk Alcan voru það Össur, CCP, Stálskip ehf og HB Grandi. Af rúmlega 32 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki. 10.2.2011 13:20
Android framúr iPhone hjá Símanum á innan við ári Það hefur tekið Android innan við ár að fara framúr iPhone þegar litið er til fjölda notenda og gagnamagnsflutninga hjá Símanum. 10.2.2011 12:26
Skeljungur reið á vaðið með bensínhækkanir Olíufélagið Skeljungur reið á vaðið í gær og hækkaði verð á bensíni og dísilolíu verulega. 10.2.2011 12:18
ESA vill að fjármögnun RUV verði breytt fyrir marslok Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur lagt formlega til að Ísland breyti fyrirkomulagi á fjármögnun Ríkisútvarpsins. Frestur Íslands til þess að bregðast við tillögum ESA er í lok mars 2011. 10.2.2011 11:07
Hrein erlend skuldastaða ekki betri síðan 1989 Hrein erlend skuldastaða þjóðarbúsins hefur ekki verið jafn hagfelld frá fyrstu mælingum Seðlabankans sem ná aftur til ársins 1989. Staðan í lok þriðja ársfjórðungs í fyrra var ”einungis“ neikvæð um 24% landsframleiðslu ef búið er að taka út áhrif föllnu bankanna. 10.2.2011 10:53
Framúrskarandi fyrirtæki hljóta viðurkenningu frá Creditinfo Árni Páll Árnason, efnahags og viðskiptaráðherra, mun afhenda fimm fyrirtækjum viðurkenningu frá Creditinfo sem staðfestir að fyrirtækin flokkist sem framúrskarandi fyrirtæki. Athöfnin fer fram á Grand Hótel, 4.hæð, kl 12.15, fimmtudaginn 10. febrúar. 10.2.2011 10:47
Einarsson Fly fishing kynnir nýja línu af veiðihjólum Frumkvöðlafyrirtækið Einarsson Fly fishing á Ísafirði mun í apríl kynna nýja línu af veiðihjólum Invictus (latína og stendur fyrir ósigrandi) þar sem byggt er á nýrri bremsutækni sem verið er að fá einkaleyfi fyrir. 10.2.2011 09:25
Actavis hyggur á fjárfestingar fyrir 80 milljarða Actavis er nú að leita að hentugum eignum til að kaupa á verðbilinu 400 til 500 milljónir evra eða allt að 80 milljarða kr. 10.2.2011 08:21
Stefnir átti hæsta tilboðið í Haga Stefnir átti hæsta tilboðið í kjölfestuhlut í Högum, en Arion banki hefur unnið að því að selja félagið undanfarna mánuði. Nokkur kergja er sögð í öðrum sem tóku þátt í söluferlinu vegna þessa, enda um að ræða dótturfyrirtæki Arion banka. 10.2.2011 08:02
Tchenguiz bræður krefjast milljarða frá Kaupþingi Tchenguiz bræðurnir reyna nú að höfða mál gegn Kaupþingi í London og segja bankann skulda þeim mörg hundruð milljarða. 10.2.2011 07:16
Geta hagnast mikið á aflandskrónum Erlendar fjármálastofnanir og fjárfestar geta fengið 66 prósenta ávöxtun á fjárfestingu sína í evrum talið með ákveðnum viðskiptagjörningum með aflandskrónur. Þetta á ekki við um þá erlendu fjárfesta sem festust inni með fjármagn sitt við innleiðingu gjaldeyrishafta fyrir rúmum tveimur árum heldur þá sem keyptu krónur eftir að höftin voru sett. 10.2.2011 06:15
Á leiðinni upp úr öldudal Sala á bílum hefur aukist um helming milli ára, ef janúarmánuður í ár er borinn saman við janúar í fyrra. Á upplýsingatorgi Umferðarstofu sést að 197 nýjar fólksbifreiðar voru nýskráðar í janúar 2011 en aðeins 88 bílar í sama mánuði á síðasta ári. 10.2.2011 04:00
Hafa miklar áhyggjur af Magma-málinu Fjárfestar í Bandaríkjunum og bandarískir sérfræðingar á sviði jarðvarmaorku hafa áhyggjur af pólitískum óstöðugleika á Íslandi og hugsanlegu eignarnámi HS Orku. 9.2.2011 17:47
Styrkjum úthlutað úr Orkurannsóknarsjóði Alls var 56 milljónum króna úthlutað úr Orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar í dag í styrki til framhaldsnáms og rannsóknarverkefna á sviði umhverfis- og orkurannsókna. Þetta er í fjórða sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en markmið hans er að efla rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála. Fjórir doktorsnemar hlutu styrki að upphæð ein milljón króna og átján meistaranemar hlutu styrki að upphæð 500 þúsund krónur, alls þrettán milljónir. 9.2.2011 16:53
Ólafur Ragnar: Lykillinn að sjálfstæði í grænni orku Lykillinn að því að gera Bandaríkin óháð erlendum orkugjöfum gæti legið í jarðhita og grænni orku. Þetta sagði forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, þegar hann ávarpaði sérstaka ráðstefnu um fjármögnun jarðhitaverkefna (Geothermal Energy Finance Forum) í New York á vegum Jarðhitasamtaka Bandaríkjanna og fleiri aðila á Ritz-Carlton hótelinu. 9.2.2011 15:45
Yfirtaka NBI á Björgun heimil með skilyrðum Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að yfirtaka Nýja Landsbankans (NBI) á Björgun ehf. sé heimil en með skilyrðum. 9.2.2011 15:32
Allt að 10% verðmunur á matvörukörfunni Allt að 10% verðmunur reyndist vera á matvörukörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslununum á mánudaginn. Matvörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði 12.881 krónur en dýrust í Nettó á 14.177 krónur. Verðmunurinn var 1.296 krónur eða 10%. Aðeins 2% verðmunur var á matarkörfunni milli Bónus og Krónunar og innan við 1% verðmunur var á milli Kosts og Nettó. 9.2.2011 14:36
Stöðugleiki hefur skilað markaðsforskoti „Hvernig er hægt að ætlast til þess að gerðir séu kjarasamningar í sjávarútvegi þegar allar rekstrarforsendur eru óljósar, hvort heldur eru tekjur eða gjöld," sagði Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík, m.a. í erindi sem hann flutti á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins í dag, en til fundarins var boðað undir yfirskriftinni Atvinnuleiðin. Húsfyllir var í aðalráðstefnusal Grand Hótel. 9.2.2011 13:30
Slitastjórn Landsbankans óskar skýringa hjá bankaráði Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans hefur sent öllum bankaráðsmönnum bankans og tveimur bankastjórum fyrir hrun, að Björgólfi Guðmundssyni undanteknum, bréf þar sem óskað er skýringa þeirra á ýmsum atriðum og meintu misferli í þeirra í starfi sem upp hafa komið við rannsóknir á málefnum bankans. 9.2.2011 13:04
Kópavogur: Ætla að greiða niður milljarð árlega Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar til næstu þriggja ára var lögð fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær samkvæmt tilkynningu frá bænum. Þar segir að hún sé byggð á markmiðum fjárhagsáætlunar ársins 2011 þar sem m.a. er stefnt að því að greiða inn á skuldir bæjarsjóðs um milljarð á ári næstu árin. Gert er ráð fyrir því að seinni umræða fari fram í lok febrúar. 9.2.2011 13:02
Fundar með seðlabankastjóra evrópska seðlabankans Efnahags- og viðskiptaráðherra, Árni Páll Árnason, mun funda með seðlabankastjóra evrópska seðlabankans, Jean-Claude Trichet, í dag. 9.2.2011 12:54
Áhöld hvort lífeyrissjóðir hafi náð nægri ávöxtun Hrein eign lífeyrissjóðanna jókst um tæplega 6% að raungildi í fyrra. Hins vegar má ætla að ríflega þriðjungur þeirrar aukningar sé tilkominn vegna innflæðis í sjóðina og því áhöld um hvort raunávöxtun eigna hluta þeirra hafi náð 3,5% tryggingafræðilega viðmiðinu sem notað er við mat á framtíðar eignum og skuldbindingum þeirra. 9.2.2011 12:18
Áfengissala minnkaði um 5,6% milli ára í janúar Sala áfengis var 5,6% minni í janúar í ár en í fyrra. Sölubreytingin er mjög mismunandi eftir flokkum. Athygli vekur að hvítvín seldist mun betur nú en í fyrra. 9.2.2011 12:11