Engin áhrif á rekstur RÚV 11. febrúar 2011 05:30 Útvarpsstjóri segir að tillögur ESA muni ekki hafa áhrif á daglegan rekstur RÚV. Fréttablaðið/GVA
ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hefur lagt fram formlega tillögu um að íslensk stjórnvöld breyti fjármögnun Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) og skilji á milli þess hluta starfsemi RÚV sem telja má í almannaþágu og þess sem lýtur markaðslögmálum. Markmiðið með þessum umbeðnu breytingum er sagt vera að „stuðla að frekara gagnsæi varðandi opinber fjárframlög til Ríkisútvarpsins og til þess að draga úr hættu á samkeppnisröskun“ eins og það er orðað í tilkynningu á vef ESA. Fjármögnunarfyrirkomulagi RÚV yrði með þessu breytt til samræmis við nýlegar reglur ESA um ríkisstyrki til aðila sem sjá um útsendingar í almannaþágu. Stjórnvöld hafa frest til loka marsmánaðar til að bregðast við tillögum ESA. Í tilkynningu ESA kemur þó fram að stofnunin hafi rætt athugasemdirnar við íslensk stjórnvöld, sem hafi þegar innleitt ákveðnar breytingar í samræmi við kröfur ESA. Til dæmis hefur eignarhaldi RÚV verið breytt þar sem fjármálaráðuneytið fer nú með eignarhlut ríkisins í stað mennta- og menningarmálaráðuneytis. Með því var, að því er fram kemur á vef ESA, skilið á milli eignarhalds RÚV og opinbers eftirlits með útsendingarstarfsemi. Ætti það að skila óháðara eftirliti með útsendingarstarfsemi RÚV. Páll Magnússon útvarpsstjóri segir í samtali við Fréttablaðið að athugasemdir ESA snúi fyrst og fremst að stjórnvöldum, sem muni í framhaldinu ákveða hvernig skuli mæta þeim tillögum. „Þetta hefur engar eðlisbreytingar í för með sér fyrir RÚV, enda erum við að starfa undir nákvæmlega sama rekstrarformi og NRK í Noregi, sem lýtur sömu Evrópureglum um útvarp í almannaþágu og við. Ef það eru einhverjir tæknilegir misbrestir hjá okkur verða þeir lagaðir, en þetta hefur ekkert með daglegan rekstur RÚV að gera.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira