Fór í heilskoðun sem bjargaði lífi hans

Nú er hægt að fara í svokallaða heilskoðun þar sem allur líkaminn er skannaður með segulómtæki. Og fasteignasalinn flotti Júlíus Margeir Steinþórsson var mjög hress og hafði ekki fundið fyrir neinum einkennum og hélt að hann væri stálsleginn. En dóttir hans Rúna Björg er geislafræðingur og hún hvatti hann til þess að fara í þessa heilskoðun. Út úr þeirri skoðun kom í ljós illkynja krabbameinsæxli 4 sentimetra stórt í nýranu hjá Júlíusi. Æxlið var fjarlægt með skurðaðgerð og Júlíus Margeir hreinlega táraðist þegar hann rifjar upp þessa ótrúlegu reynslusögu. Vala Matt hitti Júlíus Margeir.

717
13:17

Vinsælt í flokknum Ísland í dag