Tískutal - Gummi Kíró
Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró, hefur alla tíð haft brennandi áhuga á tísku og hefur gaman að því að vekja eftirtekt. Það eru fáir listar yfir best klæddu menn landsins sem Gummi Kíró hefur ekki ratað inn á enda leggur hann ástríðu í klæðaburð sinn og á safn af einstökum flíkum og fylgihlutum, þar á meðal einn dýrasta kósígalla sögunnar. Gummi er viðmælandi í Tískutali þar sem hann talar um klæðaburð sinn, uppáhalds flíkur, að pæla ekki í áliti annarra, að fylgja eigin innsæi, vera séður og skína á eigin hátt og margt annað skemmtilegt.