Orri Steinn skorar annað mark Íslands
Tíunda mark Orra í hans tuttugasta landsleik á 39.mínútu gegn Lúxemborg. Andri Lucas með frábæra hælsendingu innfyrir og Orri með enn betri móttöku. Klárar þetta svo af yfirvegun og Ísland er komið með tveggja marka forskot.