Snjalltæki og eldri borgarar
Mikill áhugi er á snjalltækjanámskeiðum hjá íbúum 60 ára og eldri á Suðurlandi en nú þegar er búið að fylla nokkur af námskeiðunum. Kennari segir að karlarnir flýti sér stundum of mikið en konurnar íhugi hlutina betur og séu rólegri á námskeiðunum.