Samstöðufundur á Austurvelli í dag
Mótmælendur sem mótmæla aðstæðum hælisleitenda hér á landi hyggjast ekki yfirgefa Austurvöll fyrr en stjórnvöld setjast með þeim að samningaborðinu. Á samstöðufundi á Austurvelli í dag gafst fólki kostur á að kynnast aðstæðum hælisleitenda og setja sig í spor þeirra.