Þjófnaðurinn virtist þaulskipulagður

Lögregla rannsakar innbrot og þjófnað á hárgreiðslustofu í Seljahverfi í Reykjavík í nótt. Á myndböndum úr öryggismyndavélum sést að þjófnaðurinn virðist þaulskipulagður. Þjófarnir komu á staðinn á rafmagnshlaupahjólum, brutu rúðu og gengu beint til verks. Á einungis hálfri mínútu höfðu þeir á brott með sér nýjar rakvélar og tölvu og telur eigandi tjónið hlaupa á hundruðum þúsunda. Þjófarnir komust undan á hlaupahjólum og hafa ekki fundist. Til skoðunar er hvort mennirnir sjáist á Ring myndavélum í nágrenninu þannig að unnt verði að rekja ferðir þeirra.

27
00:41

Vinsælt í flokknum Fréttir