Hjálpið okkur að finna Millu (sendið áfram)

Gísli Rúnar Kristinsson saknar Millu sem er þriggja ára tík. Síðast sást til hennar snemma í gærmorgun á Dalvegi í Kópavogi. Hún svarar ef nafn hennar er kallað. Milla, sem er af mini doberman tegundinni, er væntanlega slösuð en Gísli fékk þær upplýsingar stuttu eftir að viðtalið var tekið við hann í dag að keyrt hafi verið utan í Millu og hún flúið óttaslegin af vettvangi í kjölfarið en það staðfestir að hún er á lífi. Vinsamlegast hafið samband við Gísla í síma 895-6667 ef þið hafið einhverjar upplýsingar um ferðir Millu.

24748
01:44

Vinsælt í flokknum Lífið