Forsetamakinn fór í Mottumars sokka

Halla Tómasdóttir forseti Íslands og eiginmaður hennar Björn Skúlason tóku í dag á móti fyrsta Mottumars-sokkaparinu í ár. Björn var ekki lengi að klæða sig í sokkana sem eru í ár merktir með orðunum "takk fyrir", sem á að standa fyrir þakklæti til samfélagsins, aðstandenda og krabbameinssjúkra. Sokkapörin eru ár hvert seld til styrktar Krabbameinsfélaginu í Mottumars, fjáröflunarátaki sem tileinkað er krabbameinum hjá körlum.

8
00:34

Vinsælt í flokknum Fréttir