Bóndi á tíræðisaldri meðal öflugustu plokkara landsins
Þrátt fyrir að Guðni Guðmundsson, bóndi á Þverlæk í Rangárþingi ytra, sé orðinn 92 ára gamall er hann enn að ganga með fram vegum og tína upp einnota umbúðir, dósir og flöskur. Hann hefur safnað tæplega 30 milljónum á síðustu 20 árum og gefið íþróttafélaginu í sveitinni nær allan peninginn.