Áfengisauglýsingum fjölgar meðal áhrifavalda
Áfengisauglýsingar á samfélagsmiðlum og í hlaðvörpum hjá áhrifavöldum og öðrum opinberum persónum hafa aukist til muna undanfarin ár. Forvarnarsérfræðingur segir stjórnvöld hafa brugðist og kallar eftir því að áhrifavaldar axli ábyrgð.