Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Ná ekki saman um sak­hæfi Clancy

Kviðdómendur í máli Lindsay Clancy sögðu dómara í dag að þeir gætu ekki komist að einróma niðurstöðu um það hvort hún sé sakhæf eða ekki fyrir að myrða þrjú ung börn sín. Dómarinn bað kviðdómendur um að reyna aftur en þeir hafa reynt að komast að niðurstöðu í fjóra daga.

Erlent
Fréttamynd

Apple fær nýjan for­stjóra

John Ternus er nýr forstjóri bandaríska tæknirisans Apple. Hann tók við starfinu af Tim Cook sem leiddi gegndarlausan vöxt fyrirtækisins í krafti vinsælda snjallsíma þess.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Miley losar sig við eftir­nafnið

Poppstjarnan Miley Cyrus stendur á tímamótum fyrir útgáfu tíundu plötu sinnar. Hún virðist hafa ákveðið að losa sig við eftirnafn sitt og ætlar greinilega einungis að nota listamannsnafnið Miley héðan af. 

Tónlist
Fréttamynd

Glæpa­foringi dæmdur fyrir morðið á Tu­pac

Fyrrum glæpaforinginn Duane „Keffe D“ Davis var í nótt fundinn sekur um að hafa skipulagt morðið á rapparanum Tupac Shakur sem var myrtur árið 1996. Málið hefur verið eitt mest umtalaðasta morðmál Bandaríkjanna síðustu þrjátíu árin.

Erlent
Fréttamynd

Segir af sér eftir á­rekstra við Hegseth

Daniel P. Driscoll, hermálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt af sér í kjölfar árekstra við Pete Hegseth varnarmálaráðherra sem hefur látið reka þaulreynda leiðtoga úr Bandaríkjaher síðustu mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Highway 61 Revisited fagnar 61 árs af­mæli

Sjötta plata tónlistarmannsins Bobs Dylan, Highway 61 Revisited, kom út þann 30. ágúst 1965, fyrir 61 ári og einum degi, og olli straumhvörfum í rokktónlist. Platan markaði tímamót á ferli Dylan sem færði sig með plötunni úr órafmagnaðri þjóðlagatónlist í rafmagnað rokk.

Tónlist
Fréttamynd

Galliano slaufað og ó­vissa með Met Gala næsta árs

Forsvarsmenn Metropolitan-listasafnsins og Met Gala-kvöldsins hafa hætt við að heiðra breska hönnuðinn John Galliano. Met Gala næsta árs átti að vera tileinkað ævistarfi hönnuðarins en hann hefur í gegnum tíðina valdið hneykslan vegna rasískra og andgyðinglegra yfirlýsinga. Ekki liggur fyrir hvert þema kvöldsins verður í staðinn.

Lífið
Fréttamynd

Ris, fall og óútskýrð auð­æfi Jeffrey Epstein

Jeffrey Epstein var ákærður árið 2007 fyrir kynferðisbrot gegn tugum kvenna og hefði hæglega getað fengið lífstíðarfangelsi. Lögmenn hans gerðu leynilegan samning við yfirvöld sem endaði með því að hann hlaut átján mánaða dóm og afplánaði þrettán þeirra í fangelsi. Haustið 2008 var Epstein sóttur í fangelsi í Flórída á hverjum morgni, sex daga vikunnar, af einkabílstjóra sem skutlaði honum á skrifstofu góðgerðarstofnunar og svo aftur í fangelsið að kvöldi.

Lífið
Fréttamynd

Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að á­rásum á Kharg-eyju

Íranir hafa svarað fyrir árásir Bandaríkjamanna á skotflaugapalla á Larak-eyju með árásum á herstöðvar í Jórdaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá hafa fjölmiðlar í Íran greint frá því að kviknað hafi í olíuflutningaskipi á Hormússundi, eftir að skipið lenti á tveimur tundurduflum.

Erlent
Fréttamynd

Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glæ­nýju hlut­verki

Þau Finneas O´Connell og Claudia Sulewski gengu í það heilaga á dögunum en sá fyrrnefndi er bróðir söngkonunnar Billie Eilish, sem gaf hjónin einmitt saman. Herlegheitin, sem fóru fram á búgarði í Kaliforníu, voru vel sótt og meðal gesta voru þau Justin og Hailey Bieber, Jason Sudeikis, Kristen Bell og fleiri. 

Lífið
Fréttamynd

Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac

Öllum vitnaleiðslum er lokið í réttarhöldunum yfir Duane „Keffe D“ Davis, eina manninum sem hefur verið ákærður vegna morðsins á rapparanum Tupac Shakur. Verjandi Davis segir hann hafa spunnið frásagnir um aðild sína til að græða peninga og vekja athygli.

Erlent
Fréttamynd

Hvað veistu um… Dolly Parton?

Dolly Parton, ein ástsælasta og þekktasta söngkona Bandaríkjanna, lést fyrr í vikunni, áttatíu ára að aldri. Dolly var afburðalagasmiður og skilur eftir sig ótrúlegt lagasafn, Jolene, 9 to 5 og I Will Always Love You þeirra á meðal.

Lífið
Fréttamynd

Ljúka greiningu á við­veru í Evrópu fyrr en til stóð

Starfsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem hafa til skoðunar hvernig fækka megi bandarískum hermönnum í Evrópu ætla að leggja fram að minnsta kosti fjórar tillögur. Það verður gert fyrir 6. nóvember, fyrr en áður stóð til. Ráðamenn í Evrópu hafa áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi í hyggju að refsa tilteknum ríkjum Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Varaði Rússa við því að ráðast á NATO

Óvænt heimsókn yfirmanns Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) til Moskvu vakti nokkra athygli í vikunni. Þangað fór hann til að vara ráðamenn í Rússlandi við því að gera árás á ríki Atlantshafsbandalagsins eða jafnvel innrás í Eystrasaltsríki.

Erlent