Hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Innlent 20. desember 2006 11:16
Ketkrókur dæmdur í hálfs árs fangelsi Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir búðarhnupl í sumar og haust. Manninum var gefið að sök að hafa stolið þremur lambalærum í einni verslun, einu læri í annarri verslun og lambakótilettum í þriðju versluninni. Innlent 20. desember 2006 10:58
Dæmdur í annað sinn fyrir nauðgun á rúmu ári Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu á heimili sínu í lok maí eða byrjun júní árs 2004. Þá var hann jafnframt dæmdur til að greiða henni eina milljón króna í miskabætur. Þetta er annar dómurinn sem maðurinn hlýtur á rúmu ári fyrir nauðgun en í fyrra var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir naugðun. Innlent 20. desember 2006 10:30
18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa þröngvað 13 ára stúlku með ofbeldi til annarra kynferðismaka en samræðis og fyrir að gefa henni áfengi þrátt fyrir að vita að hún væri undir lögaldri. Þá var hann dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 900 þúsund krónur í skaðabætur. Innlent 19. desember 2006 17:32
Dómara dæmd laun í samræmi við úrskurð Kjaradóms Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu bæri að greiða Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara rúmar sextíu þúsund krónur vegna þeirrar ákvörðunar alþingis að fella úr gildi ákvörðun Kjaradóms um hækkun launa æðstu embættismanna frá því seint á síðasta ári. Innlent 19. desember 2006 11:53
Fangi á Litla-Hrauni dæmdur fyrir vörslu fíkniefna Héraðsdómur Suðurlands dæmdi dag fanga á Litla-Hrauni í eins mánaðar fangelsi fyrir fíkniefnabrot í fangelsinu fyrr á árinu. Hass og amfetamín fannst í munnholi og í klefa fangans í júlí í sumar og tæpum tveimur vikum síðar fannst einnig hass og tóbaksblandað kannabisefni við klefaleit. Innlent 19. desember 2006 11:16
Dæmdur fyrir vörslu nærri 260 barnaklámsmynda Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot með með því hafa haft nærri 260 ljósmyndir af barnaklámi í tölvu sinni sem margar hverjar voru mjög grófar. Innlent 19. desember 2006 10:58
Átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í morgun karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir tvö fíkniefnabrot fyrr á þessu ári. Í fyrra tilvikinu var hann handtekinn eftir að tvær e-pillur og rúm tvö grömm af hassi fundust á honum en í síðara tilvikinu fundust nærri 15 grömm af amfetamíni og tæp 80 grömm af hassi. Innlent 19. desember 2006 10:49
Skilorðsbundið fangelsi og sekt fyrir ýmis brot Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 300 þúsund króna í sekt fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Innlent 19. desember 2006 10:25
Fær ekki bætur fyrir að hafa runnið á blautu gólfi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Bónus og Sjóvá af skaðabótakröfum manns sem rann til á gólfi Bónuss í Spönginni fyrir sex árum. Maðurinn var starfsmaður Bónuss og dag einn þegar hann kom til vinnu rann hann á blautu gólfi verslunarinnar og skall niður á annað hnéð. Innlent 18. desember 2006 11:12
Gæsluvarðhald staðfest yfir dæmdum nauðgara Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Edward Koranteng, karlmanni á þrítugsaldri, en maðurinn er kærður fyrir að nauðga þrettán ára stúlku í lok nóvember. Maðurinn var í vikunni dæmdur fyrir að nauðga annarri fjórtán ára stúlku á síðasta ári. Innlent 15. desember 2006 17:00
Tvítug kona í dæmd í fjögurra mánaða fangelsi Rúmlega tvítug kona var í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða fangelsi meðal annars fyrir líkamsárás og þjófnað. Í maí á þessu ári braust konan inn í íbúð á Suðurlandsvegi og reyndi að stela þaðan ýmsum hlutum. Innlent 15. desember 2006 14:23
Uppsögn á Landspítala ekki ólögmæt Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Landspítalann af kröfu Salmanns Tamimi, formanns Félags múslíma á Íslandi, um að ákvörðun Landspítalans að segja honum upp störfum í lok septemer í ár verði felld úr gildi. Innlent 14. desember 2006 16:46
Ók bíl undir áhrifum lyfja frá Reykjavík til Húnaþings vestra Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag karl til greiðslu 100 þúsund króna í sekt fyrir bílstuld, akstur undir áhrifum lyfja og fyrir vörslu fíkniefna. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa stolið bíl í Reykjavík snemma á árinu og ekið honum undir áhrifum örvandi og deyfandi lyfja eftir þjóðvegi eitt sem leið lá í Húnaþing vestra þar sem hann ók út af veginum. Innlent 14. desember 2006 15:45
Dæmdar bætur vegna gæsluvarðhalds Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að íslenska ríkið skyldi greiða karlmanni 250 þúsund krónur í miskabætur vegna gæsluvarðhalds sem hann sætti í byrjun árs 2005, en hæstiréttur vísaði gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum frá dómi. Innlent 14. desember 2006 14:29
Rúmenar teknir með fölsuð skilríki Tveir Rúmenar, karl og kona, voru í gær dæmd í Héraðsdómi Austurlands í þrjátíu daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komuna til Íslands. Fólkið kom til Seyðisfjarðar með Norrænu í september en þau tóku ferjuna í Bergen í Noregi. Við komuna framvísuðu þau fölsuðum ítölskum persónuskilríkjum. Innlent 14. desember 2006 10:49
Perúar dæmdir fyrir að smygla ullarpeysum Stórt uppboð verður haldið innan skamms hjá Sýslumanninum á Seyðisfirði þar sem boðnar verða upp um eitt þúsund ullarpeysur, prjónahattar, borðdúkar og fleira. Um er að ræða varning sem gerður var upptækur þegar tveir perúskir ríkisborgarar voru í gær dæmdir fyrir að koma ólölega með varninginn til landsins. Innlent 14. desember 2006 10:38
Skilorðsbundið fangelsi og sekt fyrir skatta- og bókhaldsbrot Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 16 milljóna króna í sekt fyrir skattalaga-, bókhalds- og hegningarlagabrot í tengslum við eigin atvinnurekstur og við rekstur einkahlutafélags. Innlent 14. desember 2006 10:08
Gat ekki varið sig sökum ölvunar Maður um tvítugt var í gær dæmdur í Héraðsdómi Austurlands í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Maðurinn réðst ásamt konu á þrítugsaldri á karlmann við heimahús á Höfn í Hornafirði í janúar á þessu ári. Innlent 14. desember 2006 09:50
Unglingur sektaður fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt ungling til greiðslu 60 þúsund króna sektar í ríkissjóð og fórnarlambi sínu í líkamsárás samtals 130 þúsund krónur í miskabætur. Innlent 14. desember 2006 09:44
Olíuforstjórar ákærðir Ríkissaksóknari hefur ákært einn núverandi og tvo fyrrverandi forstjóra olíufélaganna fyrir brot á samkeppnislögum og er ákæran upp á átján blaðsíður. Allt að fjögurra ára fangelsi getur legið við brotunum. Innlent 13. desember 2006 18:30
Síbrotamaður fékk fimm ára fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Garðar Garðarson í fimm ára fangelsi fyrir ýmis brot. Maðurinn var dæmdur fyrir þjófnað, skjalafals, fjársvik, nytjastuld, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot. Maðurinn rauf með brotum sínum skilorð. Innlent 13. desember 2006 16:02
Dæmdur nauðgari í gæsluvarðhald Edward Apeadu Koranteng karlmaður á þrítugsaldri, sem dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. desember. Við sögðum frá því í fréttum okkar í gær að maðurinn er grunaður um að hafa nauðgað þrettán ára stúlku í lok nóvember. Innlent 13. desember 2006 15:16
Dómsuppsaga í málum gegn olíufélögunum Dómar verða kveðnir upp í málum Reykjavíkurborgar og Strætó bs. á hendur stóru olíufélögunum klukkan þrjú í dag. Innlent 13. desember 2006 10:21
Þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga 14 ára stúlku Rúmlega tvítugur karlmaður, Edward Apeadu Koranteng, var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir nauðgun. Maðurinn nauðgaði stúlkunni sem er fjórtán ára í heimahúsi í september í fyrra. Stúlkunni var jafnframt dæmd um ein milljón króna í miskabætur. Innlent 12. desember 2006 14:23
Báðust afsökunar á framferði sínu á vettvangi slyss Nokkrir vegfarendur höfðu samband við lögregluna í Reykjavík í gær og báðust afsökunar á framkomu sinni sl. sunnudag í kjölfar banaslyss á Vesturlandsvegi. Hinir sömu höfðu áður lýst yfir óánægju sinni með lokun vegarins og gerðu það bæði á vettvangi og símleiðis. Innlent 12. desember 2006 13:22
Fangelsisdómur og há sekt fyrir skatta- og bókhaldsbrot Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í níu mánaða skilorðsbundið frangelsi og til greiðslu 29 milljón króna í sekt fyrir að hafa hvorki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum vegna atvinnustarfsemi sinnar fyrir árið 2004 né innheimtum virðisaukaskatti að fjárhæð rúmlega 14 milljónir króna. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að færa ekki lögboðið bókhald og varðveita bókhaldsgögn vegna sömu atvinnustarfsemi. Innlent 12. desember 2006 12:45
Sýknaður af skaðabótakröfu vegna slyss Héraðsdómur Reykjaness sýknaði í dag húsasmíðameistara af ríflega 3,3 milljóna króna skaðabótakröfu byggingverkamanns sem slasaðist við störfum á vegum meistarans haustið 2001. Innlent 12. desember 2006 10:06
Sakfelldir fyrir utanvegaakstur í Hlíðarfjalli Héraðsdómur Norðurlands eystra sakfelldi í dag tvo menn fyrir utanvegaakstur og sektaði annan þeirra um 25 þúsund krónur en frestaði ákvröðun um refsingu hins um tvö ár svo framarlega sem hann heldur skilorð. Innlent 11. desember 2006 17:09
Fluttu inn 6,5 kíló af amfetamíni Réttað var yfir tveimur Litháum í Héraðsdómi Reykjavíkur dag en þeir fluttu samtals inn til landsins sex og hálft kíló af amfetamíni í lok sumars. Innlent 11. desember 2006 14:30