Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Allt stefnir í að fundur Bandaríkjaforseta með Selenskí Úkraínuforseta og leiðtogum Evrópu marki tímamót í vegferðinni að friði. Alþjóðasamfélagið stóð á öndinni föstudagskvöldið og kveið niðurstöðum fundar Pútíns og Trump í Alaska sem reyndust svo ekki ýkja miklar. Á morgun sest Selenskí í sama stól og hann sat í þegar hann fékk illa útreið en í þetta sinn verður hann ekki einn. Erlent 17. ágúst 2025 22:57
„Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Fyrrverandi utanríkisráðherra segir nauðsynlegt að Evrópuþjóðir fari að taka raunverulegar ákvarðanir um hvernig binda megi enda á átökin í Úkraínu. Málið snúist ekki eingöngu um hvar landamæri liggja heldur að úkraínska þjóðin fái að taka ákvarðanir sem fullvalda þjóð, til dæmis um að ganga í Evrópusambandið og NATO. Innlent 17. ágúst 2025 14:01
Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Forsætisráðherra Íslands mun ekki sækja fund Bandaríkjaforseta og Úkraínuforseta í Hvíta húsinu í persónu en fjöldi þjóðarleiðtoga í Evrópu úr röðum „bandalags hinna viljugu“ er á leið til sækja fundinn á morgun eftir að hafa fengið boð frá Donald Trump Bandaríkjaforseta. Erlent 17. ágúst 2025 13:46
Trump sagður hlynntur afsali lands Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hlynntur tillögu Vladímírs Pútín Rússlandsforseta að binda enda á innrásarstríð Rússa með því að láta þeim eftir að innlima austurhéröð Úkraínu. Þetta kom í ljós þegar upplýsingum úr símafundi hans með leiðtogum Evrópu var lekið. Erlent 17. ágúst 2025 00:06
Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Evrópskir leiðtogar hafa fengið boð á fund Bandaríkjaforseta og forseta Úkraínu í Washington-borg á mánudag. Bandaríkjaforseti lagði til á fundi með forseta Rússlands að Úkraína fengi svokallaða öryggistryggingu, svipaða og kveðið er á um í NATO-samningnum, án þess að ganga inn í bandalagið. Erlent 16. ágúst 2025 20:26
„Það hefði auðvitað verið betra“ Það hefði verið betra, að mati utanríkisráðherra, hefði Trump haldið í kröfu Evrópuleiðtoga um að semja fyrst um vopnahlé milli Úkraínu og Rússlands og síðan frið, frekar en að halda friðarviðræður „undir sprengjuregni og drápsvél Rússa.“ Hún gerir enga athugasemd við rauða dregilinn sem tók á móti Pútín á leiðtogafundinum í Alaska í gær, svo lengi sem gjörningurinn skili „réttlátum og langvarandi friði í Evrópu.“ Innlent 16. ágúst 2025 16:28
Selenskí mun funda með Trump Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti mun eiga fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington-borg á mánudag. Sá fundur mun koma í kjölfar fundar Trump með Vladímír Pútín Rússlandsforseta sem fór fram í gærkvöldi. Erlent 16. ágúst 2025 09:24
Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Fundi forseta Rússlands og forseta Bandaríkjanna er lokið. Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir þá hafa komist að ákveðnum skilningi um málefni Úkraínu en engar nánari upplýsingar fengust um hvað fælist í þeim skilning. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ætla upplýsa evrópska leiðtoga, þar á meðal Úkraínuforseta, um hvað fór fram á fundinum. Erlent 15. ágúst 2025 23:24
Forsetarnir tveir funda Bandaríkjaforseti og Rússlandsforseti eru báðir mættir til Alaskafylkis í Bandaríkjunum til að funda. Erlent 15. ágúst 2025 19:51
Pólitískur refur og samningamaður mætast Mikil eftirvænting ríkir fyrir leiðtogafund Bandaríkjanna og Rússlands sem hefst klukkan sjö í kvöld að íslenskum tíma. Krafa Rússa á fundinum lýtur í raun að því að Úkraína verði leppríki Rússlands, segir prófessor í sagnfræði. Óljóst sé hvort Úkraínumenn neyðist til að fallast á slíka niðurstöðu. Innlent 15. ágúst 2025 13:08
Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Utanríkisráðherra Rússlands mætti til fundarins með Bandaríkjaforseta í Alaska í dag klæddur í bol með skammstöfun Sovétríkjanna sálugu. Á fundinum á að ræða um stríðsrekstur Rússa í Úkraínu sem var eitt sinn hluti af Sovétríkjunum. Erlent 15. ágúst 2025 10:35
Cruise afþakkaði boð Trump Tom Cruise hafnaði boði Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að vera heiðraður af Kennedy-listamiðstöðinni. Skýrðist það af því að tímasetningin stangaðist á við aðrar skuldbindingar leikarans. Cruise hefur ekki tjáð sig um málið. Lífið 15. ágúst 2025 09:27
Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels „Eins og skrattinn úr sauðaleggnum, þegar Jens Stoltenberg fjármálaráðhera gekk um götur Óslóar, hringdi Donald Trump. Hann vildi friðarverðlaun Nóbels og ræða tolla.“ Svona hefst grein sem norski miðillinn Dagens Næringsliv birti í morgun þar sem greint var frá símtali við Bandaríkjaforseti átti með fjármálaráðherra Noregs í júlí. Erlent 14. ágúst 2025 22:16
Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Bandarískir framleiðendur bjórs, víns og annarskonar áfengis, hafa tapað fúlgum fjár vegna mikils samdráttar á útflutningi til Kanada. Nágrannar þeirra í norðri vilja lítið sem ekkert með áfengi frá Bandaríkjunum hafa þessa dagana. Viðskipti erlent 14. ágúst 2025 21:54
Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Augu umheimsins beinast nú að borginni Anchorage í Alaska þar sem fundur Trump og Pútín fer fram á morgun í Elmendorf-Richardson-herstöðinni . Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu og íbúa stolta af þeirri athygli sem borgin nýtur nú í heimspressunni. Erlent 14. ágúst 2025 12:15
Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hagfræðingur hægrisinnaðrar hugveitu sem hefur verið tilnefndur sem sérfræðingur Hvíta hússins í vinnumarkaðstölfræði var í mannfjöldanum þegar hópur stuðningsmanna Donalds Trump réðst á bandaríska þinghúsið fyrir fjórum árum. Hvíta húsið segir að hann hafi aðeins verið „áhorfandi“. Erlent 14. ágúst 2025 10:37
Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær um það hverjir yrðu heiðraðir af Kennedy-listamiðstöðinni. Fyrir valinu urðu meðal annarra hljómsveitarmeðlimir Kiss, söngkonan Gloria Gaynor og leikarinn Sylvester Stallone. Erlent 14. ágúst 2025 07:54
Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Lögmenn Melaniu Trump, forsetafrúar Bandaríkjanna, hafa sent lögmanni Hunter Biden erindi þar sem þeir hóta lögsókn á hendur syni Joe Biden, fyrrverandi forseta, ef hann dregur ekki til baka og biðst afsökunar á ummælum sem hann lét falla um forsetafrúna. Erlent 14. ágúst 2025 07:07
UFC-bardagi í Hvíta húsinu á þjóðhátíðardaginn Samkvæmt Dana White, forseta UFC, verða bardagasamtökin með viðburð í Hvíta húsinu á næsta ári. Sport 14. ágúst 2025 07:03
Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Stíf fundarhöld í aðdraganda fundar forseta Bandaríkjanna og Rússlands í Alaska eru á dagskrá í dag. Forseti Úkraínu er í Berlín til að ræða við evrópska ráðamenn sem eiga einnig stefnumót við Bandaríkjaforseta gegnum fjarfundarbúnað. Erlent 13. ágúst 2025 10:42
Við lifum á tíma fasisma Það eru engin tíðindi að fasismi ríki í Ísrael og í Rússlandi, en á undanförnum árum hefur hann ruðst fram þar um slóðir með óvenju miklum grimmdarverkum, jafnvel þjóðarmorði eins og er að gerast á Gaza. Og það sem er nýtt er það að Bandaríkin eru smám saman að breytast í fasistaríki sem minnir á Þýskaland Hitlers. Skoðun 13. ágúst 2025 08:15
Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Ráðamenn í Bandaríkjunum velta nú fyrir sér ætlunum um að stofna sérstaka hersveit innan þjóðvarðliðs Bandaríkjanna sem ætlað er að beita gegn almenningi þar í landi. Sveitinni yrði ætlað að bregðast við mótmælum, óeirðum og annars konar ólátum í borgum Bandaríkjanna með stuttum fyrirvara. Erlent 12. ágúst 2025 13:51
Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Maður sem lét byssukúlum rigna yfir skrifstofur bandarískrar heilbrigðisstofnunar fyrir helgi er sagður hafa verið knúinn áfram að samsæriskenningum um bóluefni gegn Covid-19. Núverandi og fyrrverandi starfsmenn vara við afleiðingum slíkra samsæriskenninga í kjölfar árásarinnar. Erlent 12. ágúst 2025 11:59
Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Fyrrverandi skattstjórinn sem á að verða sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi er íhaldssamur repúblikani sem er sagður mannblendinn og vinalegur. Hann notaði reynslu af uppboðshaldi eitt sinn til þess að þagga niður í vandræðagemsa á þingi. Svo virðist sem hann hafi verið rekinn fyrir að þýðast ekki Hvíta húsið þegar það krafðist persónuupplýsinga um skattgreiðendur. Erlent 12. ágúst 2025 07:02
„Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti í dag fundinum sem hann mun eiga með Vladimír Pútín, kollega sínum í Rússlandi, sem „þreifingafundi“. Þeir muni ræða „skipti á landsvæði“ milli Úkraínumanna og Rússa og lýsti hann einnig yfir vonbrigðum með Pútín í tengslum við friðarviðræður. Erlent 11. ágúst 2025 22:31
Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum segir ákvörðun Trump um að kalla út þjóðvarðlið til höfuðborgarinnar mjög óvenjulega og valdabrölt að mörgu leyti. Hann býst við fleiri útspilum eins og þessu frá Trump í framtíðinni. Erlent 11. ágúst 2025 22:07
Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Dómsskjöl frá leynilegum ákærudómstól sem leiddi til sakfellingar Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærustu og aðstoðarkonu auðjöfursins og barnaníðingsins Jeffreys Epstein, verða ekki opinberuð. Dómari lýsti því yfir í dag og gagnrýndi hann starfsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna harðlega fyrir að gefa í skyn að skjölin innihéldu nýjar upplýsingar um glæpi Epsteins. Erlent 11. ágúst 2025 18:19
Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Leiðtogar sex Evrópuríkja munu sitja fjarfundi með Volodimír Selenskí Úkraínuforseta og Donald Trump Bandaríkjaforseta á miðvikudag. Selenskí er sagður hafa slakað á kröfum sínum og hann útiloki ekki að láta eftir landsvæði í friðarsamningum. Erlent 11. ágúst 2025 16:16
Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst senda þjóðvarðliða út á götur höfuðborgarinnar Washington D.C. til að stöðva meinta glæpaöldu sem hann segir farna úr böndunum. Glæpatíðni hefur samt lítið aukist síðustu ár. Þvert á móti hefur hún minnkað samkvæmt opinberum gögnum en nýlega varð fyrrverandi starfsmaður D.O.G.E. fyrir árás í borginni af hálfu tveggja táninga að sögn lögreglu. Erlent 11. ágúst 2025 14:49
Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað til blaðamannafundar í dag þar sem hann hyggst tilkynna um aðgerðir til að fegra og tryggja öryggi höfuðborgarinnar Washington D.C. Erlent 11. ágúst 2025 08:40