Viðskipti erlent

Hækkuðu stýrivexti í Banda­ríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Kevin Warsh tók við embætti seðlabankastjóra Bandaríkjanna í maí.
Kevin Warsh tók við embætti seðlabankastjóra Bandaríkjanna í maí. EPA

Seðlabanki Bandaríkjanna hefur hækkað stýrivexti í fyrsta skipti í þrjú ár. Þeir fara úr 3,5 til 3,75 prósentum í 3,75 til 4 prósent. 

Tólf fulltrúar Seðlabankans greiddu atkvæði um hækkunina og voru þeir allir fylgjandi henni. Verðbólgan í Bandaríkjunum mældist í ágúst 3,4 prósent en er markmið Seðlabankans að hún sé í tveimur prósentum.

Stýrivextirnir voru síðast hækkaðir í júlí árið 2023 og þá upp í 5,25 til 5,5 prósent. Síðan þá voru stýrivextir lækkaðir þar til í desember 2025. Hafa þeir haldist óbreyttir síðan þá. Spár Seðlabankans sýna samt sem áður fram á að önnur hækkun gæti átt sér stað fyrir lok árs.

Kevin Warsh, seðlabankastjórinn sem tók við stöðunni í maí, sagði samkvæmt BBC að forsvarsmennirnir væru almennt bjartsýnir eða að verðbólgan væri viðvarandi vandamál.

„Í meira en fimm ár hefur verðbólgan verið yfir markmiði. Staðreyndin er einfaldlega sú að verðbólgan er of há og hefur verið það of lengi. Verðbólgumælingar sumarsins segja mér ekki að undirliggjandi þróun hafi batnað,“ sagði Warsh.

Þrjú atriði hafi haft áhrif á ákvörðunina, sterkara hagkerfi, verðbólguþróunin sem hafi „ekki staðist prófið“ og staða mála í heiminum. Án efa á hann við stöðu mála í Miðausturlöndum en vegna árása Bandaríkjamanna og Ísraela á Írani hefur olíverð hækkað á heimsvísu.

Tólf manna nefnd auk seðlabankastjórans taka ákvörðun um stýrivaxtabreytingar í Bandaríkjunum. Þeir eru þó ekki ákveðin taka líkt og tíðkast á Íslandi heldur eru á 0,25 prósentustiga bili.

Greiði meira fyrir vanhæfni Trumps

Hingað til hafa engin viðbrögð borist frá Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hann gagnrýndi ítrekað forvera Warsh í starfi, Jerome H. Powell, sem neitaði að láta að stjórn forsetans og gefa eftir kröfur hans um að lækka vexti.

Talið er að vegna þessa hafi Powell látið af embætti sem seðlabankastjóri en hann fékk að halda stöðu sinni í stjórn bankans til ársins 2028. Warsh tók þá við stöðunni en hann hafði áður unnið fyrir milljarðamæringinn Stanley Druckenmiller.

Ýmsir fulltrúar demókrata hafa hins vegar þegar tjáð sig. Chuck Schumer, þingmaður þeirra, sagði í ræðu í þingsal að Bandaríkjamenn þyrftu að gera sér grein fyrir því að nú verði allt dýrara.

„Þetta er vegna þess að Donald Trump kann ekki að stjórna hagkerfinu. Bandaríkjamenn borga meira fyrir vanhæfni Trumps,“ sagði Schumer.

Nú styttist í þingkosningar í Bandaríkjunum en þær fara fram í nóvember og án efa munu hærri stýrivextir verða eitt af málunum sem hafa áhrif á niðurstöðurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×