Lítið hægt að gera ef „menn hverfa í hraunið“ Það er nánast ógjörningur fyrir viðbragðsaðila við gosstöðvarnar í Meradölum að koma fólki til bjargar, ef það lendir í sjálfheldu úti á sjálfu hrauninu. Myndband sem sýnir ferðamenn hætta sér ískyggilega nálægt gígunum hefur vakið athygli. Innlent 14. ágúst 2022 19:16
Nyrsta gosopið lokað og metfjöldi á gosstöðvum 6.496 manns fóru og báru eldgosið í Meradölum augum í gær, samkvæmt talningu Ferðamálastofu, en það er mesti fjöldinn á einum degi frá því teljarinnar var settur upp í mars í fyrra. Nyrsta gosopið í Meradölum lokaðist í gær. Innlent 14. ágúst 2022 09:05
Gengu út á hraunið og upp að gígunum Myndband náðist í gær af fólki sem hafði gengið út á glænýtt hraun í Meradölum í gær og upp að gígunum. Fólkið stóð nærri hraunflæðinu þegar maður notaði dróna til að reka þau á brott. Innlent 14. ágúst 2022 08:40
Landverðir munu létta undir með björgunarsveitum við gosið Landverðir munu framvegis standa vaktina part úr degi til að létta undir með björgunarsveitum við gosstöðvarnar í Meradölum. Landsbjörg hefur kallað eftir því að geta losað sitt fólk undan sífelldri gæslu við gosstöðvarnar enda sjálfboðaliðarnir ekki óþrjótandi auðlind. Mikil umferð er við gosstöðvarnar og gistipláss í Grindavík eru full. Innlent 13. ágúst 2022 12:08
Kunna ekki skýringar á minni gosóróa Jarðvísindamenn telja ekki að nýjar gossprungur séu að opnast í Meradölum, líkt og talið var mögulegt í morgun. Samdráttur í gosóróa á svæðinu í morgun vakti grunsemdir vísindamanna. Innlent 13. ágúst 2022 09:50
Nokkrum fjölskyldum vísað frá í gær Nokkrum erlendum fjölskyldum var vísað frá gönguleiðinni að eldgosasvæðinu í Meradölum í gær. Var það gert vegna ungs aldurs barna. Eftirlit er sagt hafa gengið vel en gangan mun hafa reynst mörgum erfið í nótt og þurftu margir aðstoð við að komast niður af fjallinu. Innlent 13. ágúst 2022 09:39
Næðisskikkjur og lekalausir pokar fyrir göngufólk í spreng Viðbúið er að fjöldi fólks leggi leið sína að gosstöðvunum í Meradölum um helgina, enda búið að bæta gönguleiðir og auka aðgengi að gosinu. Það eru þó ákveðnir hlutir sem einhverjir hafa áhyggjur af. Það eru klósettmálin. Innlent 12. ágúst 2022 22:01
Gönguleið A lokað í nótt Gönguleið A í átt að gosstöðvum í Meradölum verður lokað í nótt vegna framkvæmda. Göngufólk er vinsamlegast beðið um að notast við gönguleið C skyldi það ætla sér að ganga í átt að gosinu í nótt. Innlent 12. ágúst 2022 17:37
Ljósmöstur verða sett upp við gönguleiðina að gosinu á næstu dögum Á fimmta þúsund gekk að gosstöðvunum í Meradölum í gær samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Björgunaraðilar segja vel hafa gengið við gosið undanfarna daga þrátt fyrir þennan gríðarlega fjölda fólks og nú sé unnið að lagfæringu gönguleiðarinnar. Innlent 12. ágúst 2022 16:22
Dæmi um að ferðamenn gangi af sér skóna Frá því að eldgosið í Meradölum hófst eru dæmi um að björgunarsveitir hafi þurft að skutla ferðamönnum til baka vegna þess að ekkert er eftir af skóbúnaði þeirra. Formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar biðlar til þeirra sem ætla að ganga að gosinu að undirbúa sig vel. Innlent 12. ágúst 2022 14:46
Villtust af gönguleiðinni í nótt Viðbragðsaðilar á vakt við gosstöðvarnar aðstoðu átján manns sem villst höfðu af gönguleið A að eldgosinu í nótt. Innlent 12. ágúst 2022 10:11
Setja upp vefmyndavél til að fylgjast með skarðinu Til stendur að setja upp vefmyndavél í Eystri-Meradölum til þess að vakta það skarð sem líklegast er talið að hraun flæði upp úr dalnum og í átt til Suðurstrandarvegs. Innlent 12. ágúst 2022 07:53
Krakkar ósáttir með bann á gosstöðvum: „Mér finnst það ekki í lagi“ Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum um ákvörðun hans um að takmarka aðgengi barna yngri en tólf ára að gosstöðvunum í Meradölum. Börn segja ósanngjarnt að sumir megi ekki skoða gosið. Innlent 11. ágúst 2022 22:01
Umboðsmaður vill skýringar á barnabanni Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum og skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna ákvörðunar hans um að takmarka aðgengi barna yngri en tólf ára að gosstöðvunum í Meradölum. Innlent 11. ágúst 2022 13:57
Bein útsending: Eldgosið í nærmynd Vísir sýnir beint frá eldgosinu í Meradölum. Hægt er að fylgjast með gangi gossins á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi í sjónvarpi. Innlent 11. ágúst 2022 13:25
Tímaspursmál hvenær hraun rennur suður úr Meradölum Hraun er enn ekki farið að flæða úr Meradölum en jarðeðlisfræðingur segir tímaspursmál hvenær það gerist. Þá muni hraunið renna í átt að Suðurstrandavegi, rúmlega fjögurra kílómetra leið. Innlent 11. ágúst 2022 11:40
Myndaveisla: Ferðamenn trúa ekki eigin augum í Meradölum Þeir ferðamenn sem ljósmyndari okkar, Vilhelm Gunnarsson myndaði við gosstöðvarnar í Meradölum trúðu ekki sínum eigin augum þegar þeir sáu tilkomumikið sjónarspilið í dalnum í fyrsta sinn. Það er enda ekki á hverjum degi sem fólk víðs vegar að kemst í tæri við eldgos. Innlent 11. ágúst 2022 10:19
Engin breyting á gosinu og meinlaust veður fyrri hluta dags Engin breyting hefur orðið á eldgosinu í Meradölum og álitlegra veður verður á svæðinu í dag en hann rignir með kvöldinu. Innlent 11. ágúst 2022 07:05
Telur mörg þúsund hafa gengið að gosinu í dag Svæðið við gosstöðvarnar í Meradölum var opnað aftur í morgun eftir þriggja daga lokun. Fjöldi fólks lagði leið sína að gosstöðvunum og telur björgunarsveitarmaður að þúsundir hafi farið um svæðið í dag. Innlent 10. ágúst 2022 19:31
Gosmyndavél Vísis komin í loftið Vísir sýnir nú beint frá eldgosinu í Meradölum. Hægt er að fylgjast með gangi gossins á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi í sjónvarpi. Innlent 10. ágúst 2022 14:36
Hraun við það að renna út úr Meradölum Lítið vantar upp á að hraun fari að flæða út úr Meradölum en hraunið hefur hækkað um sjö til átta metra þar sem skarðið er hvað lægst. Þetta sýna stikur sem settar voru upp austast í dölunum á föstudag, að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, prófessors í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Innlent 10. ágúst 2022 14:11
Hátt í tvö þúsund fóru að gosstöðvunum þrátt fyrir lokanir Hátt í tvö þúsund manns fóru að gosstöðvunum síðustu þrjá daga, þrátt fyrir að lokað hafi verið fyrir aðgengi að þeim þessa daga. Lögreglan segir að erlendir ferðamenn hafi streymt inn á svæðið þrátt fyrir lokanir. Innlent 10. ágúst 2022 12:23
Opna fyrir aðgengi að gosstöðvunum á ný Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að opna aftur fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum í Meradölum. Innlent 10. ágúst 2022 09:37
Lögðu stikur í svartaþoku og snarvitlausu veðri Björgunarsveitin Þorbjörn lögðu stikur fyrir alla gönguleiðina að gosstöðvunum í Meradölum í svartaþoku og snarvitlausu veðri í gærkvöld. Ekki veitir af enda virðast ferðamenn enn hætta sér á gönguleiðina í vonskuveðri þvert á tilmæli björgunarsveita og lögreglu. Innlent 10. ágúst 2022 08:33
Stærri gígur að myndast á miðri sprungunni Nokkuð myndarlegur og stærri gígur virðist vera að myndast á miðri gossprungunni í Meradölum. Gígurinn sást vel á vefmyndavél frá Langhól í nótt og hleypir hann frá sér stórum gosstrókum. Innlent 10. ágúst 2022 07:28
„Utan frá séð lítur þetta út eins og einhver geðþóttaákvörðun“ Í morgun tók lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að gossvæðið yrði lokað fyrir alla umferð í dag, en tilkynnti jafnframt að ákvörðun hefði verið tekin um að heimila ekki umferð barna yngri en tólf ára um gosstöðvarnar, óháð veðurskilyrðum. Innlent 9. ágúst 2022 21:38
Mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið standi yfir í langan tíma Á fundi Vísindaráðs almannavarna í morgun var farið yfir nýjustu gögn og mælingar um eldgosið í Meradölum. Gosvirknin hefur haldist nokkuð stöðug síðustu daga og er það mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið gæti staðið yfir í nokkuð langan tíma. Innlent 9. ágúst 2022 17:21
Sum börn séu betur til þess fallin að ganga að gosinu en fullorðið fólk Í dag bárust fregnir af því að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefði tekið þá ákvörðun að börn undir tólf ára aldri væru ekki velkomin að eldgosinu í Meradölum. Mikið ósætti virðist ríkja meðal fólks vegna ákvörðunarinnar en lögreglustjórinn, Úlfar Lúðvíksson segir að verið sé að „tryggja hagsmuni barna“ með þessari ákvörðun. Innlent 9. ágúst 2022 17:15
Hraunið nánast komið út í enda Meradala Lítið er að frétta af þróun eldgossins í Meradölum en ekki hefur verið hægt að fara í mælingarflug yfir svæðið frá því á fimmtudag vegna veðurs. Órói er nú stöðugur og hefur dregið úr skjálftavirkni. Innlent 9. ágúst 2022 14:20
Heimilt að sekta fólk sem ekki virðir lokanir á gosstöðvum Lögreglan á Suðurnesjum hefur heimildir til að sekta fólk sem virðir ekki lokanir lögreglu við gosstöðvarnar í Meradölum. Það er þó ekki til skoðunar sem stendur. Svæðið er lokað öllum í dag, vegna veðurs, og verður framvegis alfarið lokað börnum yngri en tólf ára. Innlent 9. ágúst 2022 11:52