Heidfeld kallaður til æfinga sem mögulegur staðgengill Kubica Þjóðverjinn Nick Heidfeld hefur verið beðinn að prófa Lotus Renault sem mögulegur staðgengill Robert Kubica hjá liðinu, samkvæmt tilkynningu frá liðinu. Liðið æfir Jerez brautinni á Spáni í fjóra daga í þessari viku. Kubica meiddist eins og kunnungt er í óhappi á s.l. sunnudag og verður frá keppni þar til annað kemur í ljós. Formúla 1 9. febrúar 2011 19:53
Lotus Renault vill ökumann sem getur sigrað í stað Kubica Georg Lopez eigandi Lotus Renault liðsins heimsótti Robert Kubica á spítalanum á Ítalíu í dag og mun bíða með að ákveða hver verður staðgengill hans þar til eftir æfingar á Jerez og Barcleona brautunum sem eru framundan. Samkvæmt frétt á autosport.com vill hann reyndan ökumann, ef raunin verður sú að Kubica verði frá keppni út þetta tímabil. Kubica meiddist í rallkeppni á sunnudaginn. Formúla 1 9. febrúar 2011 15:42
Force India liðið horfir til framtíðar eftir frumsýningu Force India liðið sem er í eigu Dr. Vijay Mallya, miljarðamærings frá Indlandi frumsýndi keppnisbíl sinn í dag á vefnum og kynnti þá Adrian Sutil frá Þýskalandi og Paul di Resta frá Skotlandi sem ökumenn liðsins. Varaökumaður er Nico Hulkenberg frá Þýskalandi sem ók með Williams í fyrra. Formúla 1 8. febrúar 2011 19:14
Kubica að braggast á spítalanum Lotus Renault sendi frá sér tilkynningu í dag sem segir að ástand Robert Kubica fari batnandi og ástand á framhandlegg hans gefi góðar vonir. Formúla 1 8. febrúar 2011 14:27
Formúlu 1 lið Force India frumsýnir á vefnum kl. 14:00 Frumsýning verður á nýja Force India keppnisbílnum kl. 14.00 í dag á vefnum, en þá verða Adrian Sutil, Paul di Resta og Nico Hulkenberg kynntir sem ökumenn liðsins í ár. Formúla 1 8. febrúar 2011 10:51
Briatore spáir endurkomu Kubica eftir 5-6 mánuði Flavio Briatore, fyrrum framkvæmdarstjóri Renault liðsins í Formúlu 1 heimsótti Robert Kubica í dag og ræddi við hann. Briatore sagði Kubica hafa talað um það hvenær hann gæti snúið aftur til keppni. Formúla 1 7. febrúar 2011 17:06
Rússneskur sportbílaframleiðandi í Formúlu 1 Rússneski bílaframleiðandinn Marussia er formlega kominn í Formúlu 1 og frumsýndi Marrussia Virgin liðið nýjan bíl sinn í London í dag. Fyrirtækið keypti hlut í Virgin liðinu, sem Richard Branson hefur stýrt og rússinn Nikolay Fomenko er einn af yfirmönnum liðsins. Formúla 1 7. febrúar 2011 15:14
Kubica haldið sofandi næstu 24 tíma Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica slasaðist alvarlega í rallkeppni í gær og verður haldið sofandi næstu 24 tíma, eftir að hafa verið vakinn upp í morgun til að kanna stöðu hans. Formúla 1 7. febrúar 2011 13:39
Óljóst hvort Kubica nær fullri heilsu Meiðsli Robert Kubica, Formúlu 1 ökumanns, sem hann hlaut í rallkeppni á Ítalíu í dag, eru þess eðlis að óljóst er hvort hann nær fullri heilsu. Læknir sem annaðist hann segir að vika gæti liðið áður en vitað er hvort tekist hefur að bjarga hægri hönd hans. Formúla 1 6. febrúar 2011 20:45
Kubica enn í aðgerð eftir óhapp Pólverjinn Robert Kubica er enn í aðgerð eftir óhapp í rallkeppni á Ítalíu í morgun og sérfræðingur í aðgerðum á höndum er meðal þeirra sem sinna Formúlu 1 ökumanninum. Kubica tók þátt í rallkeppni, en keyrði á vegg og vegrið, sem skarst inn í bílinn. Formúla 1 6. febrúar 2011 16:55
Kubica margbrotinn á hönd, handlegg og fæti eftir óhapp Pólverjinn Robert Kubica brotnaði á hönd og fæti í óhappi í rallkeppni á Ítalíu í morgun og tilkynningu frá Lotus Renault segir að hann sé margbrotin á hægri hönd, handlegg og fæti. Formúla 1 6. febrúar 2011 14:24
Kubica á spítala eftir óhapp í rallkeppni Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica var fluttur með þyrlu á spítala í morgun eftir óhapp í rallkeppni á Ítalíu. Formúla 1 6. febrúar 2011 11:32
27.39% hlutur í Williams seldur á opnum hlutabréfamarkaði Williams liðið hefur opnað fyrir þann möguleika að almenningur geti keypt hlut í liðinu á hlutabréfamarkaðnum í Frankfurt og verða 27.39% í boði. Það er svissneskur banki sem mun sjá um aðgerðina. Frank Williams verður eftir sem áður meirihlutaeigandi í liðinu, sem hefur verið starfrækt síðan 1977. Formúla 1 5. febrúar 2011 09:29
Hamilton og Button bjartsýnir og ástríðufullir á nýjum bíl McLaren liðið frumsýndi nýja McLaren Formúlu 1 bílinn í Berlín í dag og Jenson Button og Lewis Hamilton voru á staðnum. Þeir aka bílnum í 20 mótum á þessu keppnistímabili. Formúla 1 4. febrúar 2011 13:24
NÝR TÍMI: McLaren frumsýnir beint á vefnum kl. 11:00 Formúlu 1 lið McLaren frumsýnir nýtt ökutæki kl. 11:00 í dag í beinni útsendingu á vefnum. Lewis Hamilton og Jenson Button svipta hulunni af bílnum í Berlín á sérstakri athöfn, en flest lið kusu að frumsýna bíla sína á Valencia brautinni í vikunni án mikils tilkostnaðar. Formúla 1 4. febrúar 2011 09:08
Ferrari Massa í ljósum logum Það gekk ekki allt upp hjá Felipe Massa á æfingum á Valencia brautinni á Spáni í dag. Eldtungur aftur úr bílnum á æfingunni voru merki þess að ekki var allt með feldu. Formúla 1 3. febrúar 2011 17:08
Kubica fljótastur með nýstárlegan búnað Lotus Renault Robert Kubica á Renault varð 0.057 sekúndum á undan Adrian Sutil á Force India á lokadegi æfinga á Valencia brautinni á Spáni í dag. Fernando Alonso á Ferrari, sem var fljótastur í gær reyndist þriðji sneggstur í dag. Formúla 1 3. febrúar 2011 16:31
Alonso: Erfitt að meta getu Ferrari Öll keppnislið í Formúlu 1 eru með nýja bíla á þessu ári og flest þeirra æfa á Valencia brautinni í dag á síðasta degi æfinga. Fernando Alonso segir erfitt að meta eiginleika 2011 Ferrari bílsins, en hann var með besta tíma í gær. Formúla 1 3. febrúar 2011 09:16
Alonso sló Vettel við á Spáni Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma ökumanna á öðrum degi æfinga á Valencia brautinni á Spáni í dag, en Sebastian Vettel á Ferrari annar. Alonso varð fimmti fljótastur í gær, en Vettel sneggstur. Þessir tveir kappar voru efstir í stigamótinu í fyrra. Formúla 1 2. febrúar 2011 16:36
Vettel stoltur af fyrstu skrefunum Heimsmeistarinn Sebastian Vettel hjá Red Bull ók 2011 keppnisbíl sínum í fyrsta skipti í gær, á brautinni við Valencia á Spáni ásamt fjölda annarra ökumanna. Hann ók 93 hringi án þess að lenda í nokkrum vandræðum og náði besta tíma dagsins. Formúla 1 2. febrúar 2011 09:16
Meistarinn sneggstur á fyrstu æfingu ársins Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur allra ökumanna á fyrstu æfingu keppnisliða í Valencia í dag. Næst fljótastur ökumanna á 2011 bíl var Fernando Alonso á Ferrari, en mörg lið notuðu 2010 bíla til að prófa hluti fyrir þetta tímabil. Formúla 1 1. febrúar 2011 16:44
Heimsmeistari nýliði hjá Williams Pastor Maldonado verður liðsmaður Williams sem ökumaður í ár ásamt Rubens Barrichello, en fyrrnefndi kappinn er frá Venúzuela og varð heimsmeistari í GP 2 mótaröðinni í fyrra. Williams er við æfingar á nýjum bíl á Valencia brautinni á Spáni næstu daga og 2011 bíllinn var kynntur til sögunnar. Formúla 1 1. febrúar 2011 14:58
Schumacher vill sigur á nýjum Mercedes Michael Schumacher og Nico Rosberg verða á nýjum Mercedes Formúlu 1 bíl, sem þeir sýndu með liði sínu á Valencia brautinni í dag í fyrsta skipti. Formúla 1 1. febrúar 2011 11:23
Meistaralið Red Bull frumsýndi með Vettel og Webber Sebastian Vettel og Mark Webber afhjúpuðu 2011 keppnisbíl Red Bull sem tryggði sér báða meistaratitlanna í fyrra. Vettel varð meistari ökumanna og Red Bull meistari bílasmiða. Formúla 1 1. febrúar 2011 10:08
Kovalainen og Trulli aka með Team Lotus Team Lotus liðið sem er í dómsmáli og slag við Lotus Renault GP liðið um notkun á Lotus nafninu kynnti bíl sinn í dag. Ökumenn liðsins eru Heikki Kovalainen og Jarno Trulli. Formúla 1 31. janúar 2011 21:18
Robert Kubica vill keppa við Ferrari, McLaren og Red Bull Robert Kubica hjá Lotus Renault GP liðinu er spenntur fyrir næsta tímabili eftir vetrarfrí og afhjúpaði nýja keppnisbíl liðsins í dag á Spáni. Félagi hans Vitaly Petrov fer fyrsta sprettinn á Lotus Renault bílnum í Valencia brautinni á morgun. Formúla 1 31. janúar 2011 19:41
Tvö lið kynnt undir merkjum Lotus og deilt un notkun á nafninu Lotus Renault GP liðið frumsýndi 2011 bíl sinn formlega á Spáni í dag, á Ricardo Tormo brautinni, en liðið hét áður Renault og ökumenn liðsins eru Robert Kubica frá Póllandi og Vitaly Petrov frá Rússlandi. Sömu ökumenn og óku með Renault í fyrra. Sömu ökumenn og óku með Renault í fyrra, en nýja liðið er staðsettt í Enstone í Bretlandi eins og Renault í fyrra. Formúla 1 31. janúar 2011 12:48
Sauber kynnti 2011 bílinn og mexíkanska ökumenn Sauber liðið frumsýndi í dag nýjan 2011 keppnisbíl sinn og einnig tvo nýja ökumenn liðsins sem báðir eru frá Mexíkó. Mexíkaninn Sergio Perez mun aka sem keppnisökumaður við hlið Japanans Kamui Kobayashi, en landi Perez frá Mexíkó, Esteban Gutiegraverrez verður þróunar og varaökumaður liðsins. Formúla 1 31. janúar 2011 11:19
Lotus Renault fumsýndur í beinni útsendingu á vefnum kl. 11.30 Fyrrum Renault keppnisliðið svokallaða frumsýnir nýjan keppnibíl sinn í dag undir nýjum merkjum liðsins sem Lotus Renault, en Lotus bílaverksmiðjan breska keypti hlut í liðinu í vetur. Formúla 1 31. janúar 2011 09:03
Massa treystir á að Ferrari færi sér sigurbíl Felipe Massa hjá Ferrari hefur trú á því að hann fái sömu möguleika og Fernando Alonso í mótum ársins, en í fyrra varð hann að gefa sæti eftir til Alonso í einu móti. Ferrari taldi Alonso eiga meiri möguleika í stigamótinu, en nú byrja báðir á núlli og fá sömu þjónustu hjá Ferrrari. Formúla 1 29. janúar 2011 14:59