Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Þrátt fyrir að vera manni fleiri allan seinni hálfleikinn urðu Tyrkir að sætta sig við 1-0 tap gegn Paragvæ í nótt og eru þar með úr leik á HM í fótbolta, þrátt fyrir að ein umferð sé eftir. Fótbolti 20. júní 2026 08:42
Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Matheus Cunha og Vinicius Junior sáu til þess að Brasilía ynni þægilegan 3-0 sigur gegn Haítí í nótt, í C-riðli HM í fótbolta. Fótbolti 20. júní 2026 08:29
Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Hjartnæmt bréf frá einum efnilegasta fótboltamanni heims hefur vakið mikla athygli og gefur heiminum innsýn í hvað það er sem drífur þennan frábæra leikmann áfram að ná þeim markmiðum sínum að verða besti leikmaður heims. Fótbolti 20. júní 2026 08:02
Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Bandaríska fótboltalandsliðið hélt sigurgöngu sinni áfram á heimsmeistaramótinu í fótbolta í kvöld og er búið að tryggja sig áfram í 32 liða úrslit keppninnar fyrir lokaumferðina. Fótbolti 20. júní 2026 00:18
Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Marokkó fagnaði fyrsta sigri sínum á þessu heimsmeistaramóti í kvöld og steig stórt skref í átt að 32-liða úrslitunum þegar liðið vann 1-0 sigur á Skotum. Fótbolti 20. júní 2026 00:00
Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Bandaríkjamenn byrja þetta heimsmeistaramót af miklum krafti en þeir unnu 2-0 sigur á Áströlum í röðum leik sínum í kvöld. Fótbolti 19. júní 2026 21:02
FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Lítilsháttar breyting hefur verið gerð á því hvernig Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, raðar þjóðum upp í stöðutöflum á heimsmeistaramótinu í sumar og hún gæti haft gríðarleg áhrif á síðustu leiki riðlakeppninnar. Fótbolti 19. júní 2026 20:30
Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Alsír hefur sent formlega kvörtun til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna „ranglætis af hálfu dómarans“ í opnunarleiknum gegn Argentínu á HM. Heimildarmaður innan alsírska knattspyrnusambandsins upplýsti fréttastofuna AFP um kvörtunina á föstudag. Fótbolti 19. júní 2026 19:40
Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Achraf Hakimi, fyrirliði Marokkó í fótbolta og leikmaður PSG í Frakklandi, verður dreginn fyrir dóm vegna nauðgunar en þetta staðfestu franskir saksóknarar í dag. Fótbolti 19. júní 2026 13:47
Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Assim Madibo, leikmaður Katar, var rekinn af velli í leiknum gegn Kanada á HM í fótbolta í gær eftir brot sem olli því að Ismael Kone fótbrotnaði. Madibo var í öngum sínum eftir brotið og kom inn í búningsklefa Kanada eftir leik til að biðjast afsökunar. Fótbolti 19. júní 2026 13:02
Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Framherjinn Jonathan David átti stærstan þátt í því að Kanada næði í fyrsta sinn að vinna leik á heimsmeistaramóti, þegar hann skoraði þrennu í 6-0 sigrinum á Katar. Fótbolti 19. júní 2026 10:03
Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Abdukodir Khusanov sýndi í verki að honum þótti leitt að hafa tæklað myndatökumann niður í fyrsta leik í sögu Úsbekistans á heimsmeistaramóti í fótbolta. Fótbolti 19. júní 2026 08:58
Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fjölskylda Lionels Messi hefur sent frá sér yfirlýsingu og beðið fólk að sýna nærgætni eftir að ranglega var fullyrt í argentínskum miðli að pabbi Messi væri dáinn. Fótbolti 19. júní 2026 08:03
Mexíkóar fyrstir í 32-liða úrslit eftir skelfileg mistök Gestgjafar Mexíkó komust í nótt áfram í 32-liða úrslit HM í fótbolta, fyrstir þjóða, með því að vinna Suður-Kóreu 1-0 í Guadalajara. Fótbolti 19. júní 2026 07:29
Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Ein af hetjunum á heimsmeistaramótinu grét eftir frábæra frammistöðu sína og ástæðan var móðir hans sem fékk ekki leyfi til að fylgjast með honum á stærsta sviðinu. Fótbolti 19. júní 2026 07:00
Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Cristiano Ronaldo varði frammistöðu Portúgals gegn Austur-Kongó í opnunarleik þeirra á heimsmeistaramótinu en sagðist þegar vera farinn að horfa til næsta leiks. Fótbolti 19. júní 2026 06:30
Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Tyrkneskur sjónvarpslýsandi gerði fáránleg mistök í beinni útsendingu frá heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fótbolti 18. júní 2026 23:15
Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Suður-Afríkumaðuinn Themba Zwane fékk þriggja leikja bann og er líklega búinn að spila sinn síðasta leik á heimsmeistaramótinu. Fótbolti 18. júní 2026 22:47
Herinn kallaður á æfingu á HM Suður-Kóreumenn telja sig vera fórnarlamb njósna í aðdraganda næsta leiks liðsins á heimsmeistaramótinu sem er einmitt á móti gestgjöfunum og er gríðarlega mikilvægur fyrir báðar þjóðir. Fótbolti 18. júní 2026 22:03
Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Kanadamenn stigu stórt skref í átt að 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta með 6-0 stórsigri á Katarbúum í kvöld. Fótbolti 18. júní 2026 21:31
Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Varamennirnir Johan Manzambi og Rubén Vargas tryggðu Svisslendingum sinn fyrsta sigur á þessu heimsmeistaramóti í fótbolta. Fótbolti 18. júní 2026 20:56
HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Elye Wahi, framherji Fílabeinsstrandarinnar, sem er til rannsóknar vegna gruns um hagræðingu úrslita, fær ekki að ferðast til Kanada fyrir leikinn gegn Þýskalandi á heimsmeistaramótinu á laugardag. Fótbolti 18. júní 2026 20:01
Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Brasilíska fótboltastjarnan Neymar missir af leiknum gegn Haítí í riðlakeppninni á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fótbolti 18. júní 2026 16:36
Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Thierry Henry, fyrrverandi leikmaður Barcelona og Arsenal, gagnrýndi Cristiano Ronaldo harðlega eftir leik Portúgal í gær. Hann segir Ronaldo vera sjálfselskann og ekki hjálpa liðinu. Fótbolti 18. júní 2026 16:03
Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Thomas Tuchel er ósáttur og vill breyta reglum um myndatökumenn á meðan sungnir eru þjóðsöngvar á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Hann sá ekki sína eigin leikmenn fyrir flóði myndavéla. Fótbolti 18. júní 2026 15:02
Spila æfingarleik á meðan HM stendur Þeir þrettán leikmenn enska landsliðsins sem ekki komu ekkert eða lítið sem ekkert við sögu í sigri liðsins gegn Króatíu í fyrsta leik liðanna á HM í gær munu spila æfingarleik gegn Sporting Kansas City í dag. Fótbolti 18. júní 2026 12:17
Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Caleb Yirenkyi skoraði sigurmark Gana í gær gegn Panama. Hann er leikmaður Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni og hefur verið borinn saman við samlanda sinn Michael Essien. Fótbolti 18. júní 2026 10:01
Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Eiður Smári Guðjohnsen, einn allra besti fótboltamaður Íslands frá upphafi og núverandi sparkspekingur, er fullviss um að Argentína nái lengra en Portúgal á yfirstandandi heimsmeistaramóti. Svo viss er hann að Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Brynjar Ingason í beinni útsendingu á RÚV í gær. Fótbolti 18. júní 2026 08:50
Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Áhorfendur á heimsmeistaramótinu í fótbolta eru byrjaðir að baula í vatnspásum leikja. Þeir eru ekki ánægðir með þessa þróun og segja að verið sé að skipta fótbolta í fjóra leikhluta. Fótbolti 18. júní 2026 08:32
Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Tveir leikir fóru fram á heimsmeistaramótinu í fótbolta í nótt. Þar mættust Gana og Panama annars vegar og Kólimbía og Úsbekistan hins vegar. Fótbolti 18. júní 2026 07:32