Skiptust á stríðsföngum Tvö hundruð og sex voru látnir lausir þegar Rússar og Úkraínumenn skiptust á stríðsföngum í dag. Einn sagðist finna fyrir miklum létti en nokkrir þeirra hafa verið í haldi síðan Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022. Innlent 14. september 2024 19:03
Saka rússneskan ríkisfjölmiðil um að vera arm leyniþjónustunnar Rússneski ríkisfjölmiðillinn RT er framlenging á rússnesku leyniþjónustunni að sögn bandarískra, breskra og kandarískra stjórnvalda. Þau kynntu refsiaðgerðir sem eiga að draga tennurnar úr áróðursherferðum stöðvarinnar víða um heim. Erlent 13. september 2024 20:20
Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundum í Reykjavík Utanríkisráðherra og aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna funduðu í dag í Reykjavík um tvíhliða samskipti þjóðanna, stöðu átakanna í Úkraínu og á Gaza. Bandaríski ráðherrann segir stöðuna á Indo-Kyrrhafssvæðinu snerta Evrópubúa þar sem Kína og Norður Kórea styðji stríðsrekstur Rússa í Úkraínu með beinum hætti. Innlent 13. september 2024 19:22
Rússar vísa breskum erindrekum úr landi Ráðamenn í Rússlandi hafa sakað sex starfsmenn sendiráðs Bretlands í Rússlandi um njósnir og ætla að vísa þeim úr landi. Ríkismiðlar í Rússlandi vísa í embættismenn hjá FSB (áður KGB) og hafa eftir þeim að erindrekunum verði vikið úr landi en það er í kjölfar þess að fregnir hafa borist af því að Bretar og Frakkar ætli að leyfa Úkraínumönnum að nota stýriflaugar frá þeim til árása í Rússlandi. Erlent 13. september 2024 10:57
Pútín segir NATÓ á leið í stríð við Rússa Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir heimild til handa Úkraínumönnum til að nota langdræg vopn frá Vesturlöndum til að gera árásir á Rússland myndu jafngilda þátttöku og stríðsyfirlýsingu af hálfu Atlantshafsbandalagsins. Erlent 13. september 2024 08:46
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar hefja gagnsókn í Kúrsk Á meðan Rússar sækja fram í austurhluta Úkraínu og reyna að ná tökum á öllu Donbas-svæðinu, hafa Úkraínumenn sótt fram í Kúrsk-héraði í Rússlandi. Hægt hefur á sóknum Rússa í Donbas en úkraínskir hermenn eru í mjög varhugaverðri stöðu þar, vegna yfirburða Rússa varðandi mannafla og skotfæri fyrir stórskotalið. Erlent 13. september 2024 06:55
Gætu leyft Úkraínu að nota langdræg flugskeyti gegn Rússlandi Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Bretlands ræða nú við forseta Úkraínu um notkun langdrægra flugskeyta til þess að verjast árásum Rússa sem Úkraínumenn hafa kallað eftir. Biden Bandaríkjaforseti segir unnið að því að veita heimildina. Erlent 11. september 2024 10:27
Hafa fengið skotflaugar frá Íran Klerkastjórn Íran hefur sent skammdrægar skotflaugar til Rússlands, sem nota á til árása í Úkraínu. Fregnir af þessum sendingum hafa verið á kreiki undanfarna daga en ráðamenn í Evrópu og Bandaríkjunum segja að vopnasendingarnar hafi verið í undirbúningi um langt skeið. Erlent 10. september 2024 12:27
Sammála um að Rússar þurfi að eiga aðkomu að næstu friðarráðstefnu Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við sjónvarpsstöðina ZDF í gær að hann og Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti væru sammála um að Rússar þyrftu að eiga aðkomu að næstu friðarráðstefnu um endalok innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 9. september 2024 06:46
Úkraína er í erfiðri og áhættusamri stöðu Úkraínustríðið hefur leitt í ljós að Rússland er ekki burðugt herveldi – og í grunninn ekki stórveldi. Má telja líklegt eftir hrakför rússneska hersins í Úkraínu að Rússland geti haft í té við NATO og ógnað öðrum ríkjum í Evrópu hernaðarlega? Svarið virðist vera klárt nei, en breytir því ekki að Úkraína er í afar þröngri stöðu í stríðinu. Umræðan 6. september 2024 12:07
Rúmar fimmtíu milljónir á mánuði fyrir Rússaáróður Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sökuðu í gær ráðamenn í Rússland um að verja milljónum dala til áróðursherferða gegnum ríkismiðil Rússlands, RT (sem áður hét Russia Today). Áróðrinum var ætlað að hjálpa Donald Trump við forsetaframboð hans og grafa undan stuðningi Bandaríkjamanna við Úkraínu. Erlent 5. september 2024 14:06
Samfélagið í sjokki en lífið gengur samt sinn vanagang Móðir og dætur hennar þrjár eru á meðal sjö sem létust í loftárás Rússa á borgina Lviv í vestanverðri Úkraínu. Íslendingur í borginni, sem var í miklu návígi við mestu sprengingarnar, segir lífið hafa gengið sinn vanagang í dag, þrátt fyrir að samfélagið sé í sjokki. Erlent 4. september 2024 20:01
Sjö látnir í árásum Rússa á Lviv og utanríkisráðherrann að hætta Að minnsta kosti sjö létu lífið, þeirra á meðal þrjú börn, þegar Rússar gerðu loftárás á borgina Lviv í Úkraínu í nótt. Lviv er í vesturhluta landsins, nálægt landamærunum að Póllandi, og hefur að miklu leyti sloppið við átökin undanfarin misseri. Erlent 4. september 2024 07:05
Fjörutíu og sjö fallnir og rúmlega tvö hundruð særðir í skotflaugaárás Að minnsta kosti 47 féllu og 206 eru særðir eftir að tvær skotflaugar hæfðu skóla, þar sem nýir hermenn fá þjálfun, og sjúkrahús í Poltava í Úkraínu. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir marga hafa lent undir braki húsa sem skemmdust í árásinni. Erlent 3. september 2024 11:54
Mongólía hunsar handtökuskipun Alþjóðlega sakamáladómstólsins Stjórnvöld í Mongólíu hafa sætt harðri gagnrýni fyrir að bjóða Vladimir Pútín Rússlandsforseta velkominn til landsins með heiðursverði, í stað þess að handtaka hann. Erlent 3. september 2024 07:33
Eldflaugum frá Norður-Kóreu skotið að Úkraínu Rússar sendu í nótt fjölda dróna og eldflauga að skotmörkum í Úkraínu. Notast var við 35 stýri- og skotflaugar auk 26 Shahed-dróna, samkvæmt Úkraínumönnum, og segjast þeir hafa skotið niður níu skotflaugar, þrettán stýriflaugar og tuttugu dróna. Erlent 2. september 2024 16:09
Hóta að breyta kjarnorkuvopnastefnu vegna stuðnings við Úkraínu Stjórnvöld í Kreml hóta því nú að breyta stefnu sinni um hvenær þau eru tilbúin að beita kjarnavopnum vegna stuðnings vestrænna ríkja við Úkraínu. Þau saka Vesturlönd um að „ganga of langt“ í stríði sem Rússland hóf. Erlent 1. september 2024 23:20
Slysið hörmulega muni ekki hafa áhrif á vopnasendingar Flugsérfræðingur segist fullviss um að harmræn örlög flugmanns F-16 herþotu, sem Úkraínumenn fengu nýverið afhenta, muni ekki hafa áhrif á frekari vopnasendingar vesturvelda til Úkraínu. Enn er á huldu hvað nákvæmlega olli slysinu, sem fengið hefur mjög á úkraínsku þjóðina. Erlent 31. ágúst 2024 22:01
Rekur yfirmann flughersins Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur rekið yfirmann úkraínska flughersins eftir að ein af herþotum flughersins fórst. Flugmaður F-16 herþotu, sem Úkraínuher fékk nýlega að gjöf, lést þegar vélin hrapaði. Erlent 31. ágúst 2024 07:30
Hefðu getað komið í veg fyrir árásina með leyfi bandamanna Forseti Úkraínu segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannskæða sprengjuárás Rússa á Kharkív í dag ef vestrænir bandamenn leyfðu Úkraínumönnum að gera árásir á rússneska herflugvelli. Börn létust og særðust í árásinni. Erlent 30. ágúst 2024 18:24
Stúlka á leikvelli lést í sprengjuárás Fjórtán ára gömul stelpa sem stödd var á leikvelli er meðal fimm látinna í Kharkiv borg í Úkraínu eftir sprengjuárásir Rússa. Fjörutíu til viðbótar hafa slasast vegna árásanna það sem af er degi. Erlent 30. ágúst 2024 15:40
Fjórir látnir eftir aðra umferð loftárása Rússa í nótt og morgun Íbúar víðsvegar um Úkraínu voru hvattir til að leita skjóls í morgun, annan daginn í röð, vegna umfagnsmikilla loftárása Rússa. Tveir létust í árás á hótel í borginni Kryvyi Rih í nótt og tveir til viðbótar í drónaárásum á Zaporizhzhia. Erlent 27. ágúst 2024 06:39
Rússar gera umfangsmikla loftárás á fjölda skotmarka í Úkraínu Rússar gerðu umfangsmiklar loftárásir á Úkraínu í morgun en að sögn forsætisráðherrans Denys Shmyhal beindist hún gegn fimmtán héruðum. Að minnsta kosti fimm eru látnir og fleiri særðir. Erlent 26. ágúst 2024 11:00
Rannsaka bandaríska álitsgjafa rússneskrar sjónvarpsstöðvar Umdeildur fyrrverandi vopnaeftirlitsmaður Sameinuðu þjóðanna í Írak er annar tveggja Bandaríkjamanna sem sæta sakamálarannsókn vegna starfa sinna fyrir rússneska ríkissjónvarpsstöð. Rannsóknin er sögð liður í að berjast gegn tilraunum Rússa til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í haust. Erlent 23. ágúst 2024 23:37
Banna trúfélög sem tengjast rússnesku kirkjunni Úkraínska þingið samþykkt að banna starfsemi trúfélag sem hafa tengsl við rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna eða styðja innrás Rússa í Úkraínu. Lögin eru talin sett til höfuðs úkraínskum rétttrúnaðarsöfnuði sem hefur verið tengdur rússnesku kirkjunni. Erlent 21. ágúst 2024 12:31
Stærsta drónaárásin á Moskvu til þessa Rússnesk stjórnvöld segjast hafa skotið niður 45 úkraínska dróna á nokkrum stöðum í nótt, þar á meðal við höfuðborgina Moskvu. Þetta hafi verið umfangsmesta drónaárás Úkraínumanna á Moskvu frá upphafi stríðsins fyrir tveimur og hálfu ári. Erlent 21. ágúst 2024 09:32
Rússar sækja fram og ná Niu-York undir sitt vald Rússneski herinn hefur greint frá því að hann hafi náð Niu-York, litlum bæ í austurhluta Úkraínu, undir sitt vald. Rússar halda áfram að sækja fram að stærri héruðum í Donetsk héraðinu í Úkraínu. Erlent 20. ágúst 2024 23:43
Freista þess að umlykja rússneskt herlið í Kúrsk Úkraínumenn hafa eyðilagt þrjár brýr yfir ána Seim í Kúrskhéraði. Innrásin inn í Rússland hófst þann sjötta ágúst síðastliðinn og segir Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti að tilgangurinn með innrásinni sé að búa til hlutlaust svæði til að vernda Úkraínu. Erlent 19. ágúst 2024 23:33
Segir tilganginn með innrás í Kúrsk að búa til hlutlaust svæði Forseti Úkraínu, Volodomír Seleneskíj, segir að með því að ráðast inn í Kúrskhérað í Rússlandi vonast hann til þess að geta búið til hlutlaust svæði til að vernda Úkraínu. Hann segist vilja stöðva árásir rússneska hersins þvert yfir landamærin og að þessi gagnsókn hafi verið það sem þurfti. Erlent 18. ágúst 2024 21:53
Ungir og óreyndir Rússar á landamærunum Talsmaður úkraínska hersins segir um 100 til 150 rússneska hermenn hneppta í prísund á hverjum degi í Kursk-héraði í Rússlandi, þar sem Úkraínumenn halda áfram sókn sinni. Það séu meira eða minna ungir hermenn sem hafi nýlega verið kvaddir í herinn og hafi lítinn áhuga á að berjast. Erlent 18. ágúst 2024 15:36