Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Agnar Már Másson skrifar 2. september 2026 20:36 Danska leyniþjónustan segist hafa afhjúpað „konkret“ áætlanir um fyrirhuguð skemmdarverk á dönskum fyrirtækjum. Samsett Mynd Danska leyniþjónustan segist hafa komið upp um áform rússneskra stjórnvalda um að vinna skemmdarverk á dönskum varnarmálafyrirtækjum. Rússar eru sagðir setja sig í samband við danska ríkisborgara og reyna að fá þá til að taka myndir af tilteknum fyrirtækjum.
Emil Græsholm, yfirmaður hjá leyniþjónustu dönsku lögreglunnar (PET), segir þetta við dagblaðið Berlingske, en fjöldi danskra miðla hefur greint frá málinu í kvöld með vísan í dagblaðið. Rússar eru sagðir hafa haft ákveðin fyrirtæki í sigtinu, aðallega fyrirtæki á sviði varnarmála sem kynnu að tengjast hernaðaraðstoð Dana við Úkraínu. Hugsanlega hafi þeir haft íkveikju í huga, að því er fram kemur í frétt Berlingske. „Þetta eru svo áþreifanlegar (d. konkret) útnefningar [á fyrirtækjum] og undirbúningur að við teljum nauðsynlegt að koma þeim skilaboðum á framfæri að þetta sé ógn sem beri að taka alvarlega,“ segir Græsholm við Berlingske. Þá er haft eftir lögreglunni í umfjöllun Berlingske að nokkur dæmi séu um að Rússar hafi reynt að fá almenna Dani til liðs við sig. Þeir hafi haft samband við danska ríkisborgara í gegnum Telegram, tölvuleiki eða aðra samfélagsmiðla. Þar hafi þeir verið fengnir til að sinna því sem virtust „saklaus“ verkefni, eins og að taka myndir af fyrirtækjum. Dansk industri, samtök iðnaðarins í Danmörku, segjast í yfirlýsingu líta þetta alvarlegum augum, að sögn TV2. Nýbúinn að kalla Rússann á teppið Ráðamenn í Danmörku hafa ekki tjáð sig opinberlega um þessar fregnir, sem bárust nú um klukkan 20 að íslenskum tíma, en Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, boðaði í dag sendiherra Rússlands þar í landi á sinn fund í dag. Løkke sagðist ætla að ræða sjálfsprengidróna sem fundust á flugvelli í Þýskalandi í síðasta mánuði en ráðamenn í Þýskalandi sögðu í gær að Rússar bæru ábyrgð á þeim og að um fjölþáttaárás væri að ræða. Fyrr í dag var greint frá því að þýskir rannsakendur teldu sig hafa borið kennsl á tvo menn sem grunaðir eru um að hafa reynt fjölþáttaárás á Leipzig/Halle-flugvellinum. Kaja Kallas, sem stýrir utanríkismálum ESB, sagði í morgun að árásartilraunin í Þýskalandi bæri öll einkenni ríkisstyrktrar hryðjuverkastarfsemi. Umfangsmiklar refsiaðgerðir væru til skoðunar en utanríkisráðherrar ESB eru saman komnir á Írlandi. Hún sagði rússneska sendiherra víða um Evrópu hafa verið kallaða á teppið vegna atviksins í þýskalandi og annarra mála.
Danmörk Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Ólögleg drónaumferð á evrópskum flugvöllum Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Fleiri fréttir Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Sjá meira