Úkraínumönnum hér á landi fjölgað um 564 prósent Alls voru 60.171 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 8. ágúst síðastliðinn. Þeim hefur fjölgað um 5.192 frá 1. desember síðastliðnum. Þar munar mestu um 1.588 úkraínumenn sem hér búa en það er fjölgun um 1.349 prósent frá 1. desember. Innlent 15. ágúst 2022 20:36
Sameinuðu þjóðirnar uggandi eftir ítrekaðar árásir á kjarnorkuver Rússar og Úkraínumenn benda enn hvorir á aðra vegna ítrekaðra árása á stærsta kjarnorkuver Evrópu í austurhluta Úkraínu. Árásir þessar hafa aukið á áhyggjur manna af því árásirnar leiði til stórslyss í kjarnorkuverinu sem hafi óafturkræfar afleiðingar í för með sér. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna kallar eftir því að svæðið í kringum kjarnorkuverið verði hlutlaust. Erlent 12. ágúst 2022 10:00
Eistar meina flestum Rússum inngöngu í land sitt Eistland tilkynnti það í morgun að frá byrjun næstu viku mun landið meina allmörgum Rússum inngöngu í landið. Rússar sem hafa fengið vegabréfsáritun frá eistneskum yfirvöldum munu ekki lengur fá að heimsækja Eistland. Erlent 12. ágúst 2022 07:51
Tölvuárás á Fréttablaðið litin alvarlegum augum Blaðamannafélaga Íslands fordæmir tölvuárás sem gerð var á Fréttablaðið í morgun sem og tilraunir rússneska sendiráðsins til að hafa áhrif á fréttaflutning íslenskra fjölmiðla af stríðinu í Úkraínu. Innlent 11. ágúst 2022 15:46
Netárás á vef Fréttablaðsins Netárás var gerð í morgun á vef Fréttablaðsins. Hótun barst ritstjórn blaðsins um að vefnum yrði lokað í kvöld verði hún ekki við beiðni um opinbera afsökun vegna myndar sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Innlent 11. ágúst 2022 12:02
Segja Rússland vera hryðjuverkaríki Þingmenn Lettlands samþykktu í morgun ályktun um að Rússland væri hryðjuverkaríki og aðgerðir Rússa í Úkraínu væru tilraunir til þjóðarmorðs á úkraínsku þjóðinni. Þingmennirnir kölluðu eftir því að önnur ríki lýsi því einnig yfir að Rússland sé hryðjuverkaríki. Erlent 11. ágúst 2022 11:29
Segir rússneska sendiherrann vilja afvegaleiða umræðuna Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur vert að dusta rykið af lagafrumvarpi þar sem lagt er til að grein sem snýr að banni við því að móðga þjóðhöfðingja og smána fána þjóðríkja verði máð úr hegningarlögum. Innlent 11. ágúst 2022 11:19
Átta herflugvélar virðast hafa skemmst í sprengingum á herstöð á Krímskaga Að minnsta kosti átta rússneskar herflugvélar virðast hafa skemmst eða eyðilagst í sprengingum sem urðu á Saky herstöðinni á Krímskaga á þriðjudag, ef marka má nýjar gervihnattamyndir af herstöðinni. Erlent 11. ágúst 2022 07:23
Fréttablaðið ætlar ekki að biðja rússneska sendiráðið afsökunar Ritstjóri Fréttablaðsins segist ekki ætla að biðjast afsökunar á mynd sem birtist í blaðinu í morgun. Á myndinni má sjá einstakling traðka á rússneska fánanum en að sögn rússneska sendiráðsins á Íslandi er myndin móðgun fyrir Rússneska sambandsríkið. Innlent 10. ágúst 2022 20:05
Rússnesk fréttakona sem mótmælti innrásinni handtekin fyrir að gagnrýna herinn Rússneska fréttakonan Marina Ovsyannikova, sem vakti athygli í mars síðastliðnum fyrir að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu í beinni útsendingu, hefur verið ákærð fyrir að dreifa falsupplýsingum um rússneska herinn. Hún gæti átt yfir höfði sér allt að tíu ára dóm verði hún sakfelld, segir lögmaður hennar. Erlent 10. ágúst 2022 18:02
Orkuvandræðin í Evrópu hafi áhrif á starfsemi verslana Í kjölfar mikillar hækkunar á orkuverði og litlu flæði á gasi um Evrópu hafa sumar verslunarkeðjur íhugað að stytta opnunartíma verslana og slökkva ljós í þeirri von að það lækki orkukostnað. Viðskipti erlent 10. ágúst 2022 14:34
Seagal braut gegn Genfarsáttmálanum á hernumdum svæðum í Úkraínu Steven Seagal, hinn víðfrægi bandaríski leikari, er nú staddur í Úkraínu á svæðum sem Rússar hafa hernumið. Þar er hann sagður vinna að gerð heimildarmyndar sem ætlað er að varpa ljósi á sannleikann varðandi innrás Rússa í Úkraínu og breyta viðhorfi fólks til innrásarinnar. Erlent 10. ágúst 2022 13:23
Kænugarður vígður við rússneska sendiráðið Torgið Kænugarður á horni Garðastrætis og Túngötu var formlega vígt við fjölmenna athöfn í morgun. Torgið nærri rússneska sendiráðinu. Innlent 10. ágúst 2022 12:05
Frelsun Krímskaga forsenda stríðsloka, segir Selenskí Stríðið í Úkraínu hófst með innlimun Krímskaga og mun aðeins enda með frelsun hans, segir Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti. Selenskí segir Krímskaga tilheyra Úkraínu og að Úkraínumenn muni aldrei gefa hann eftir. Erlent 10. ágúst 2022 07:50
Allt að áttatíu þúsund hermenn sagðir fallnir eða særðir Sérfræðingar varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna telja að allt að áttatíu þúsund rússneskir hermenn hafi fallið eða særst í innrás Rússa í Úkraínu. Innrásin hófst þann 24. febrúar en Bandaríkjamenn lýsa átökunum sem þeim erfiðustu fyrir Rússa frá seinni heimsstyrjöldinni. Erlent 9. ágúst 2022 14:55
Bandaríkin heita Úkraínu milljarði Bandaríkjadala Ríkisstjórn Bandaríkjanna tilkynnti í dag að hún ætli styrkja úkraínska herinn með vopnasendingu að andvirði eins milljarðs Bandaríkjadala, eða um 140 milljörðum íslenskra króna. Vopnasendingin er sú stærsta frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu til Úkraínu til þessa. Erlent 8. ágúst 2022 20:00
Stjaksettu höfuð úkraínsks hermanns Myndefni af afskræmdu líki úkraínsks hermanns sem fangaður var af Rússum hefur verið í dreifingu um helgina og vakið mikla reiði. Hermaðurinn virðist hafa verið afhöfðaður og höfði hans og höndum komið fyrir á skafti í borginni Popasna í Úkraínu. Erlent 8. ágúst 2022 16:21
Medvedev segir Nató dreifa sér eins og krabbamein Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að hvorki Úkraínumenn né bandamenn þeirra myndu ganga til viðræðna við Rússa ef þeir efndu til atkvæðagreiðsla um innlimun á hernumdum svæðum. Rússar hafa náð stórum svæðum á sitt vald í austur- og suðurhluta Úkraínu, þar sem leppstjórnir þeirra hafa ítrekað boðað íbúakosningu um sameiningu við Rússland. Erlent 8. ágúst 2022 12:19
Segir árásina stórskaðlega og krefst aðgangs að svæðinu Aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir loftárásina sem gerð var á kjarnorkuver í Zaporizhzhia vera stórskaðlega og kallar eftir því að alþjóðlegir rannsakendur fái aðgang að kjarnorkuverinu. Úkraínumenn og Rússar saka hvorir aðra um að hafa staðið að loftárásinni á kjarnorkuverið sem er það stærsta í Evrópu. Erlent 8. ágúst 2022 10:25
Rannsaka tuttugu og fimm þúsund meinta stríðsglæpi Yfirvöld í Úkraínu rannsaka rúmlega 25 þúsund meinta stríðsglæpi sem Rússar eiga að hafa framið í landinu síðan innrásin hófst í lok febrúar. Erlent 7. ágúst 2022 16:30
Hvers vegna vilja Svíar og Finnar í NATO? Fyrr í sumar birtist mjög áhugaverð grein á fréttavef brezka dagblaðsins Guardian eftir dr. Jonathan Eyal, aðstoðarframkvæmdastjóra hjá Royal United Services Institute (RUSI), elztu hugveitu Bretlands á sviði öryggis- og varnarmála. Í greininni fjallar Eyal meðal annars um ástæður þess að stjórnvöld í Svíþjóð og Finnlandi tóku ákvörðun um það að óska eftir aðild að NATO í kjölfar innrásar rússneska hersins í Úkraínu. Skoðun 7. ágúst 2022 11:00
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur áhyggjur en Rússar vísa ásökunum á bug Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur miklar áhyggjur af aðstæðum í Zaporizhzhya kjarnorkuverinu. Innviðir skemmdust töluvert í eldflaugaárásum fyrir helgi en verið er hið stærsta í Evrópu. Úkraínumenn og Rússar benda hver á annan. Erlent 7. ágúst 2022 10:55
Fleiri skip sigla úr höfn Fjögur skip með korn innanborðs sigldu út á Svartahaf frá Úkraínu í morgun. Um tuttugu milljónir tonna bíða útflutnings frá Úkraínu en samanlagt voru um 160 þúsund tonn í skipunum fjórum. Erlent 7. ágúst 2022 10:37
Auknar áhyggjur af kjarnorkuverinu eftir árás Rússa Yfirvöld í Úkraínu hafa auknar áhyggjur af öryggi í Zaporizhzhya kjarnorkuverinu eftir loftárás rússneskra hersveita hinn 5. ágúst síðastliðinn. Kjarnorkuverið er hið stærsta í Evrópu. Erlent 6. ágúst 2022 12:09
Kornútflutningur hefst á ný og H&M efnir til lagerhreinsunar Þrjú flutningaskip með korn innanborðs lögðu úr höfn í Úkraínu í dag. Oleksandr Kubrakov, innviðaráðherra landsins, segir Úkraínumenn treysta því að öryggistryggingar frá Sameinuðu þjóðunum og Tyrklandi um örugga för skipanna frá Úkraínu haldi og að útflutningur kornvöru komist í stöðugan og fyrirsjáanlegan farveg. Erlent 5. ágúst 2022 07:42
Brittney Griner dæmd í níu ára fangelsi Körfuboltakonan Brittney Griner var í dag dæmd í níu ára fangelsi í Rússlandi og sektuð að auki um eina milljón rúbla. Körfubolti 4. ágúst 2022 15:44
Öldungadeildin samþykkir aðild Svía og Finna Allir þingmenn öldungadeildar bandaríska þingsins nema einn samþykktu í gær aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Mitch McConnell, leiðtogi repúblikana, sagði aðild ríkjanna myndu efla Nató og auka öryggi Bandaríkjanna. Erlent 4. ágúst 2022 07:40
Túrbínan sé tilbúin fyrir flutning til Rússlands Kanslari Þýskalands, Olaf Scholz mun í dag skoða rússneska túrbínu frá Gazprom sem hefur valdið miklum flækjum fyrir gasflutning í gegnum Nord Stream 1 gasleiðsluna. Túrbínan er staðsett í borginni Mulheim í Þýskalandi. Erlent 3. ágúst 2022 08:31
Borgarstjóri segir árásir á sjúkrahús viðurstyggileg hryðjuverk Borgarstjóri úkraínsku borgarinnar Mykolaiv segir árásir Rússa á spítala í borginni fyrr í dag viðurstyggileg hryðjuverk. Erlent 1. ágúst 2022 21:46
Kornútflutningur hafinn: Fyrsta skipið siglir úr höfn Kornútflutningur frá Odessa er hafinn en fyrsta skipið sigldi úr höfn í morgun með rúm 26.500 tonn af korni innanborðs. Um tuttugu milljónir tonna bíða útflutnings frá Úkraínu en skipið er það fyrsta sem siglir frá hafnarborginni síðan 26. febrúar. Erlent 1. ágúst 2022 08:49