Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. október 2026 12:43 Hörður Arnarsson hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í sautján ár. Vísir/Vilhelm Hörður Arnarsson, sem lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í byrjun mánaðar, segir að stjórnarfundir hafi verið haldnir án þess að honum hafi veri boðið líkt og lög kveði á um. „
Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvægt að gera sér grein fyrir því áður en ég fer í einhver smáatriði,“ segir Hörður sem ræddi starfslokin í Sprengisandi. Þann 1. október tilkynnti Hörður starfsfólki Landsvirkjunar að hann hefði ákveðið að láta af störfum sem forstjóri. Hann fór síðar í viðtal í Kastljósi þar sem hann sagði að ágreiningur sem olli starfslokum sé meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð. Hann fór þó ekki nánar út í það fyrr en núna í Sprengisandi. „Það sem gerist kannski í þessu er það að þetta verklag á milli stjórnar og forstjóra verður öðruvísi en hefur verið,“ segir hann. „Það sem gerist er að forstjóra er oft meinuð aðkoma að því að tjá mál sín á fundum og í raun og veru með því að það eru haldnir stjórnarfundir án þess að hann fái boð. Hann er beðinn um að víkja af fundi til þess að ræða mál sem snúa að rekstri fyrirtækisins. Þetta hefur aldrei gerst áður.“ Einnig rifjar Hörður upp dæmi þegar hann óskaði eftir því að funda með fjármálaráðuneytinu um mikilvæg mál en þeim fundi hafi verið hafnað af bæði stjórn og ráðuneytinu. „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar.“ Þér hefur sem sagt ekki fundist þú hafa það bakland sem var nauðsynlegt og ekki það sem þú hefur haft lengst af á þínum forstjóraferli? „Allan minn forstjóraferil. Það hafa alltaf verið átök. Það hafa verið stórar persónur í stjórn Landsvirkjunar og átta fjármálaráðherrar, þeir eru nú ekki skoðanalaust fólk. Það hafa komið upp átakamál en bara á einum, tveimur fundum náðum við lendingu og fullur stuðningur við þá stefnu sem ég hafði fyrir fyrirtækið,“ svarar Hörður. Hann bætir við að hann telji sig hafa unnið gott starf og náð góðum árangri þegar kemur að trausti.
Sprengisandur Bylgjan Landsvirkjun Orkumál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Sjá meira