Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Vextir á bæði inn- og útlánum hjá Indó sparisjóði hækka um fjórðung úr prósenti. Hækkunin er sögð endurspegla alfarið ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti í morgun. Viðskipti innlent 19.8.2026 16:15
„Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Prófessor í viðskiptafræði segir að lántaki sem tók fimmtíu milljóna króna óverðtryggt lán til 20 ára í heimsfaraldri kórónuveiru muni greiða 120 þúsund krónum meira á ári af láninu eftir vaxtahækkun í morgun. Þá sé það bull og vitleysa að hækkunin hafi engin áhrif á verðtryggð lán. Viðskipti innlent 19.8.2026 13:02
Þriðja vaxtahækkunin í röð en sjá fram á hratt hjaðnandi verðbólgu á næsta ári Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur í takt við væntingar hækkað meginvexti bankans um 25 punkta, sem er núna komnir á sama stað og snemma árs í fyrra, enda þótt einn nefndarmaður hefði kosið óbreytta vexti. Yfirlýsing bankans ber með sér mildari tón en áður og bent er á að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna á suma mælikvarða. Innherji 19.8.2026 09:10
Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Skoðun 14.8.2026 07:01
Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóri, stígur inn í gjaldmiðlaumræðuna í aðdraganda þjóðaratkvæðisins. Hann segir fullveldi landsins ekki bundið við það að vera með sjálfstæðan gjaldmiðil og að evran geti hentað íslenska hagkerfinu vel. Viðskipti innlent 2. ágúst 2026 16:34
Verði að hætta að benda hver á annan Verðbólga mælist 5,3 prósent og allt bendir til þess að verðbólguskilyrði kjarasamninga standist ekki í september. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að aðilar vinnumarkaðarins verði að hætta að benda hver á annan og taka höndum saman til að draga úr verðbólgu í landinu. Viðskipti innlent 23. júlí 2026 23:10
Laun hækka umfram verðbólgu Hagstofan hefur birt tölur fyrir júnímánuð og hækkaði launavísitala um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Greint var frá því fyrr í morgun að verðbólga hækki milli mánaða en hún mælist nú 5,3 prósent á ársgrundvelli. Viðskipti innlent 23. júlí 2026 14:36
Verðbólga eykst enn Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36 prósent á milli mánaða og er 693,2 stig. Ársverðbólga mælist nú 5,3 prósent, 0,1 stigi meiri en í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 23. júlí 2026 09:02
Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru „Verður ekki önnur ályktun dregin en að upptaka evru með aðild að myntbandalagi Evrópu muni fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland.“ Skoðun 22. júlí 2026 08:03
Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Það er vinsælt að tala illa um krónuna. Hún er litli gjaldmiðillinn sem á að vera rót allra vandamála í augum margra. Skoðun 20. júlí 2026 17:00
Ævisaga krónunnar Merkilegar tilviljanirnar. Ég datt ofan í að lesa ævisögu krónunnar. Mjög merkileg saga en í raun saga þrautseigju og vonar. Við sem erum komin á efri ár munum eftir þessu basli krónunar. Skoðun 16. júlí 2026 11:32
Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Eigendur veitingastaðanna Ramen Momo hafa ákveðið að hætta að taka við reiðufé vegna innbrotahrinu sem nú gengur yfir Reykjavík. Brotist var inn í svokallað preppeldhús veitingastaðanna í nótt og verðmætum var stolið. Þar voru þó engir peningar geymdir. Innlent 14. júlí 2026 14:42
Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli. Viðskipti innlent 11. júlí 2026 22:46
Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Greiningadeild Landsbankans spáir því að verðbólga standi í stað í 5,2 prósentum í júlímælingu en aukist í 5,4 prósent í ágústmælingu, meðal annars vegna hækkunar á komugjaldi á heilsugæslustöðvar. Mælist verðbólga yfir 4,7 prósentum í ágúst má slíta kjarasamningum. Viðskipti innlent 8. júlí 2026 13:28
Blekkingin um lægri húsnæðiskostnað með evru Eitt af því sem haldið er fram þessa dagana er að gangi Ísland í Evrópusambandið og taki í kjölfarið upp evru í stað krónu þá muni kostnaður við að eignast íbúðarhúsnæði lækka. Umræðan 3. júlí 2026 08:18
Fjárfestar bæta hratt í framvirku stöðuna til að verjast gengisstyrkingu Áhugi fjárfesta og innlendra útflutningsfyrirtækja á að verja sig fyrir mögulegri gengisstyrkingu krónunnar hefur farið ört vaxandi á undanförnum mánuðum en hrein framvirk gjaldeyrisstaða með krónunni hefur núna ekki verið meiri frá því á sumarmánuðum ársins 2024. Á sama tíma eru lífeyrissjóðir farnir að bæta nokkuð í gjaldeyriskaup sín sem eru að nálgast að verða jafn mikil og allt árið í fyrra. Innherji 27. júní 2026 13:13
Verðbólga eykst lítillega Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94 prósent á milli mánaða. Ársverðbólga mælist nú 5,2 prósent, 0,1 stigi meiri en í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 26. júní 2026 09:07
Kaupmáttur heldur áfram að aukast Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 1,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Ráðstöfunartekjur jukust um 6,4 prósent milli ára og vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3 prósent. Neytendur 25. júní 2026 10:02
Raungengið áfram í hæstu hæðum nema það komi til áföll í útflutningsgreinum Afar hátt afurðaverð í sjávarútvegi og verðhækkanir á áli samhliða því að vægi gagnaveranna í útflutningstekjum þjóðarbúsins fer vaxandi mun sennilega valda því að hliðra raungenginu til lengri tíma, að sögn greinenda Acro, en starfsemi gagnaveranna virðist ekki mjög næm fyrir háu raungengi. Skert samkeppnishæfni þjóðarbúsins vegna hás raungengis gæti því verið komin til að vera, í bili að minnsta kosti, nema það komi til áföll í útflutningsgreinum. Innherji 16. júní 2026 16:15
Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Doktor í hagfræði telur að upptaka evru gæti leitt atvinnuleysi yfir Íslendinga og kostnaðurinn sé því mun meiri en ábati kynni að vera. Hann segir atvinnuleysi afar dýrt fyrir þjóðina og hafi þung áhrif á ungt fólk. Innlent 14. júní 2026 17:11
Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Efnahagsmál á Íslandi hafa aldrei uppfyllt öll þau skilyrði sem sett eru fyrir upptöku evru. Besti árangurinn var þó jafnaður í fyrra þegar Ísland uppfyllti þrjú af fimm skilyrðum en staðan hefur versnað síðan þá. Viðskipti innlent 12. júní 2026 07:03
Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telur að vilji íslensk stjórnvöld ná verðbólgunni niður þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir og til að mynda hækka skatta. Stýrivextir nægi ekki einir og sér til að ná niður verðbólgu. Viðskipti innlent 11. júní 2026 23:41
Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Íslandsbanki spáir því að verðbólga hjaðni lítillega í júní, en muni samt mælast yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Til lengri tíma litið er ekki útlit fyrir að verðbólga mælist við markmið á næstu árum. Neytendur 11. júní 2026 14:13
Krónan flökt mun minna gagnvart evru síðustu ár en margar aðrar myntir Gengisflökt krónunnar gagnvart evru hefur minnkað verulega frá árinu 2023 og er talsvert minna annarra helstu mynta, en þar spilar meðal annars inn í jafnvægi á utanríkisviðskiptum og sveiflujafnandi hlutverk Seðlabankans og lífeyrissjóða. Þrátt fyrir tugmilljarða innflutning vegna uppbyggingar gagnavera var afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum á fyrsta fjórðungi ársins. Innherji 5. júní 2026 09:59
„Siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar“ Sjálfstæðismenn eru æfir vegna orða Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra um nýja skýrslu um íslensku krónuna. Þeir vilja meina að með orðum sínum hafi hann brotið gegn siðareglum ríkisstjórnarinnar og látið Evrópublæti hlaupa með sig í gönur. Innlent 4. júní 2026 11:44