

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Leit lögreglu í Kópavogi hætt
Fjöldi lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu leitaði að manni sem talið var að hefði ráðist á tvo unglinga í Salahverfi í Kópavogi.

Áfram í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar líkamsárásar
Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness vegna alvarlegrar líkamsárásar í Kópavogi.

Margir teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna
Nokkuð virðist hafa verið um ökumenn undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt en að öðru leyti var nóttin róleg.

Tólf ára drengur hlaut stungusár í árás í Hafnarfirði
Að sögn lögreglu hafði komið til átaka á milli hans og annars þrettán ára drengs sem beitti hnífnum.

Klóraði nágranna sinn sem bað um minni læti
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók minnst þrjá ofurölvi aðila í tveimur útköllum í nótt.

Eftirför endaði utanvegar
Til eftirfarar kom þegar lögregluþjónar reyndu að stöðva ökumann bifhjóls á tíunda tímanum í gær.

Ekið á 12 ára dreng
Hvers kyns umferðalagabrot- og óhöpp settu svip á störf lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær.

Staðfesta framlengt gæsluvarðhald yfir hinum grunaða í Sandgerði
Framlengdur gæsluvarðhaldsúrskurður yfir manni á sextugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana á heimili þeirra í Sandgerði í lok síðast mánaðar hefur verið staðfestur af Landsrétti.

Par grunað um líkamsárás
Par var handtekið í gærkvöldi vegna gruns um að það hafi ráðist á konu í Breiðholti. Parið var vistað í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Áverkar þolandans eru talin minniháttar.

Brutu sjöfalt gler og náðu skartgripum fyrir hátt í tvær og hálfa milljón: „Þetta er ömurlegt í alla staði“
Alvarlegum ofbeldisbrotum hefur fjölgað síðustu mánuði að sögn lögreglu. Þá var innbrot í skartgripaverslun í nótt og skartgripir fyrir allt að tveimur og hálfri milljón teknir. Eigandi verslunarinnar segir málið ömurlegt í alla staði.

Var með hníf í bílnum sér til varnar
Innbrot var framið í skartgripaverslun í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Tilkynning barst lögreglunni laust upp úr klukkan 4 í nótt og voru tveir menn handteknir stuttu eftir í næstu götu við verslunina.

Karlmaður úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar
Karlmaður á fimmtugsaldri var í kvöld úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness vegna alvarlegrar líkamsárásar í Kópavogi.

Kannabisræktun þar sem eldurinn kom upp við Hverfisgötu
Kannabisræktun var í risi húss við Hverfisgötu þar sem eldur kom upp um miðjan apríl. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni.

Pilturinn úrskurðaður í gæsluvarðhald
Sautján ára piltur var úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld.

Dæmi um að kynferðisbrotamál gegn börnum séu ekki nægilega vel rannsökuð þegar ákæra er gefin út
Dæmi eru um að kynferðisbrotamál gegn börnum séu ekki nægilega vel rannsökuð þegar ákæra er gefin út að sögn varahéraðssaksóknara.

Í lífshættu eftir grófa líkamsárás í gærkvöldi: Lögregla hefur áhyggjur af þróuninni
Karlmaður á fimmtugsaldri er nú í lífshættu með mikla höfuðáverka eftir grófa líkamsárás í Kópavogi í gærkvöldi. Þá er unglingspiltur á spítala eftir að hafa verið stunginn tvisvar í lífshættulegri árás í gær.

Meintur árásarmaður og þolandi ungir að árum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar tvær mjög alvarlegar líkamsárásir, eina í Breiðholti síðdegis í gær og aðra sem gerð var í Kópavogi skömmu fyrir miðnætti.

Hinn grunaði í Sandgerði áfram bak við lás og slá
Karlmaður, sem grunaður er um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana á heimili þeirra í Sandgerði, var á miðvikudag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 20. maí næstkomandi.

Tvær alvarlegar líkamsárásir á borði lögreglu
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar tvær alvarlegar líkamsárásir, eina í Breiðholti síðdegis í gær og aðra sem gerð var í Kópavogi skömmu fyrir miðnætti.

Ógnaði starfsfólki verslunar með hníf
Skömmu fyrir miðnætti barst lögreglu tilkynning um að manni væri haldið í verslun í miðbænum eftir að hafa verið stöðvaður vegna gruns um þjófnað.

Glæpamenn sjá leik á borði með framleiðslu fíkniefna og kaup fyrirtækja
Erlendir glæpahópar sjá sér nú leik á borði með fíkniefnaframleiðslu hérlendis þegar lítið er flutt inn til landsins á tímum kórónuveirunnar. Yfirlögregluþjónn segir að brotahópar nýti einnig ástandið til að þvætta peninga sína með því að kaupa íslensk fyrirtæki sem nú standa illa.

Tekinn á 194 kílómetra hraða við Arnarnesveg
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann á Reykjanesbraut við Arnarnesveg á 194 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, um klukkan eitt í nótt.

Tilkynnti ítrekað um samkvæmishávaða og varð fyrir árás partígests
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók gest í samkvæmi í Grafarvogi um klukkan tvö í nótt, grunaðan um að hafa ráðist á einstakling sem tilkynnti um hávaða frá samkvæminu.

Telja amfetamínbasa framleiddan á Íslandi: Lögðu hald á 13,5 lítra
Lögreglan telur amfetamínbasa nú framleiddan hér á landi en síðustu mánuði hefur verið lagt hald á 13,5 lítra í umfangsmiklum málum er varða skipulagða glæpastarfsemi.

Saka íslenskan karlmann um morð á Flórída
Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og sakaður um morð í Pensacola á Flórída í Bandaríkjunum á mánudag. Maðurinn er sagður hafa skotið gest á heimili hans til bana.

Eftirlýstur maður reyndi að brjótast inn í hús með öxi í bakpokanum
Húsráðandi hafði komið að honum þar sem hann hafði brotið rúðu og reyndi hann að komast undan á hlaupum.

Þrjú mál til rannsóknar vegna gruns um brot á samkomubanni
Einu máli hefur lokið með sektargreiðslu þar sem brotið hafði verið gegn samkomubanni.

Kveikt í gaskútum á opnum svæðum á Selfossi
Kveikt var í gaskútum á fjórum stöðum innan bæjarmarka á Selfossi og rétt fyrir utan bæinn upp úr miðnætti í nótt. Málið er talið tengjast stuldi á gaskútum.

Álftinni Fannari bjargað frá drukknun í Læknum í Hafnarfirði
Neyðarlínunni barst í gær símtal úr Hafnarfirði þar sem álftarungi hafði komist í hann krappan í Læknum.

Tveir með réttarstöðu sakbornings vegna vélsleðaferðar
Tveir starfsmenn ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineers of Iceland eru með réttarstöðu sakbornings vegna rannsóknar lögreglu á vélsleðaferð á vegum fyrirtækisins í janúar.