Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Slys varð á Norðurlandsvegi í Vatnsskarði í kvöld þegar jeppi hafnaði utanvegar. Þrír voru fluttir til aðhlynningar á Akureyri. Innlent 2. júlí 2024 19:18
Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Tveir góðkunningjar lögreglunnar voru handteknir síðdegis eftir að hafa flúið lögreglu á hlaupahjóli í vesturhluta Reykjavíkur. Lögregla ók lengi eftir mönnunum á grasi við göngustíg en þeir hvikuðu hvergi á ferð sinni. Innlent 2. júlí 2024 15:33
Handtóku fjóra eftir að kókaín var sótt á pósthús Fjórir karlmenn og ein kona sæta ákæru fyrir innflutning á tveimur kílóum af kókaíni. Sá sem talinn er lykilmaður í málinu fékk minni spámenn til að sækja fíkniefnin fyrir sig en var að endingu handtekinn eins og sendlarnir. Innlent 2. júlí 2024 15:08
Peningarnir úr Hamraborg enn ekki fundist Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er enn með til rannsóknar upplýsingar frá tæknideild lögreglunnar vegna þjófnaðar í Hamraborg í mars síðastliðnum. Þar var tugum milljóna stolið úr verðmætaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar. Peningarnir hafa ekki fundist en vísbendingar eru um að hluti þeirra hafi farið í umferð. Einn hefur stöðu sakbornings. Innlent 2. júlí 2024 11:14
Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Mennirnir tveir sem brutust inn í veitingasal Brunnhóls á Mýrum í Hornafirði þann 22. júní eru enn ófundnir og mögulega komnir úr landi. Lögreglan á Suðurlandi sér ekki ástæðu til að lýsa eftir mönnunum þrátt fyrir að vera með ljósmynd af þeim úr eftirlitsmyndavél gistiheimilisins. Innlent 2. júlí 2024 11:13
Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning upp úr miðnætti í nótt um fimm grímuklædda menn, sem höfðu brotið upp útidyrahurð á heimahúsi. Innlent 2. júlí 2024 06:22
Guðmundur Elís í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Guðmundur Elís Briem Sigurvinsson hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað í Vestmannaeyjum í september árið 2021. Hann hefur áður komist í kast við lögin vegna grófs ofbeldis. Innlent 1. júlí 2024 18:23
Sumir sautján ára, aðrir á sjötugsaldri og enn aðrir ákærðir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð þó nokkra ökumenn að hraðakstri um helgina. Ökumenn voru svo gott sem á öllum aldri, en sumir keyrðu svo hratt að þeir eiga yfir höfði sér ákæru. Innlent 1. júlí 2024 16:30
Brutu rúður og gengu berserksgang um klaustrið í Garðabæ Brotist var inn í klaustrið við Holtsbúð í Garðabæ og gengið berserksgang þar um seint í gærkvöldi. Umtalsverð eignaspjöll voru framin en fjölmargar rúður eru brotnar. Innlent 1. júlí 2024 14:23
Vara við svindlurum sem líkja eftir Mbl.is Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir umfangsmiklar tilraunir í gangi til að svíkja peninga út úr landsmönnum á netinu. Glæpamennirnir notist við gervifréttir af vel heppnuðum fjárfestingum til að lokka fólk inn í svikamyllu. Innlent 1. júlí 2024 13:36
Lögregla stöðvaði unglingapartý í Guðmundarlundi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði á föstudag afskipti af hópi unglinga sem safnaðist hafði saman í Guðmundarlundi í Kópavog. Einhverjir þeirra voru með áfengi við hönd en ekki margir. Barnavernd hefur aðkomu að einhverjum málanna. Innlent 1. júlí 2024 11:33
Brottfararsalurinn rýmdur vegna grunsamlegrar tösku Ákveðið var að rýma brottfararsalinn á Keflavíkurflugvelli undir miðnætti í nótt vegna grunsamlegrar tösku. Fjölmargir komu að aðgerðum en ekkert óeðlilegt reyndist í töskunni. Innlent 1. júlí 2024 10:45
Blóð á veggjum og gólfi og maður fluttur með sjúkrabíl Einn var fluttur á sjúkrahús með skurð á hendi eftir að óður hundur réðst á konu og karlmann í stigagangi fjölbýlishúss í Grafarvogi á föstudagskvöld. Konan og karlmaðurinn eru á sjötugsaldri og voru með hundinn í pössun. Innlent 1. júlí 2024 10:38
Brotist inn í fataverslun Brotist var inn í fataverslun í miðæ Reykjavíkur í nótt. Málið er í rannsókn lögreglu. Innlent 1. júlí 2024 06:30
Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Ökumaður sem var stöðvaður í hverfi 108 í nótt fyrir að aka á 120 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, reyndist án gildra ökuréttinda. Tveir aðrir voru stöðvaðir í nótt sem reyndust án ökuréttinda, einn þeirra var undir áhrifum fíkniefna. Þá var einn sektaður fyrir að nota ekki bílbelti við akstur. Innlent 30. júní 2024 10:34
Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Þrítugur karlmaður sem grunaður er um að hafa stungið tvo í Kópavogi á dögunum hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Upp úr sauð þegar maðurinn mætti hópi fólks á göngustíg, sem hann hjólaði um á rafhlaupahjóli. Innlent 30. júní 2024 08:56
Rændi fötum fyrir nánast hundrað þúsund Tilkynnt var í dag um þjófnað í verslun í hverfi 101, þar sem fatnaði að verðmæti 92 þúsund krónum var stolið. Gerandi er ókunnur. Innlent 29. júní 2024 17:50
Stútar á rafhlaupahjólum handteknir og mega búast við sektum Tveir voru handteknir vegna gruns um að hafa stjórnað rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis í gærkvöldi. Leiða má líkur að því að þeir verði með þeim fyrstu sem þurfa að reiða fram sektagreiðslu vegna slíks athæfis. Innlent 29. júní 2024 11:13
„Maður þurfti að vakta að hann myndi ekki kveikja í okkur“ Maður sem bjó í þrjá mánuði með Dagbjörtu og manninum sem hún er grunuð um að hafa orðið að bana sagði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að samskipti þeirra á milli hafi verið góð en að maðurinn hafi verið drykkfelldur ljúflingur. Innlent 28. júní 2024 19:31
Hélt fyrst að innbrotsþjófurinn væri sölumaður Betur fór en á horfðist þegar brotist var inn á heimili Andreu Sigurðardóttur í Laugardalnum síðdegis í dag. Hún var fyrir utan heimili sitt að framanverðu þegar maður braust inn í íbúðina bakdyramegin rétt fyrir 14 í dag, og hafði úr íbúðinni ýmis verðmæti. Fyrst hélt hún að maðurinn væri sölumaður, en þegar hún fattaði hvað væri á seiði tók hún á rás eftir manninum. Innlent 28. júní 2024 18:47
„Hótanir eru að færast nær fjölskyldum og heimilum“ Dæmi eru um að persónuupplýsingar um lögreglumenn séu birtar á netinu í þeim tilgangi að hvetja til eignaspjalla, ögrunar eða ofbeldis gegn lögreglu. Embætti ríkislögreglustjóra merkir aukna neikvæða þróun í þessum efnum en þetta geti grafið undan trausti milli lögreglu og borgara. Innlent 28. júní 2024 18:46
„Stökk upp í rúm og sparkaði ítrekað í höfuðið á honum“ Par sem var með Dagbjörtu Rúnarsdóttur og manninum sem hún er grunuð um að hafa orðið að bana sömu helgi og atvikið átti sér stað lýsti því fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þegar hún stökk upp í rúm og sparkaði í höfuð mannsins þar sem hann lá stuttu áður en að maðurinn lést. Innlent 28. júní 2024 17:31
Fá svæði á líkama þar sem voru engir áverkar Út frá niðurstöðu krufningar í Bátavogsmálinu svokallaða lést brotaþoli vegna köfnunar sökum utanaðkomandi þrýstings á öndunarveg. Alvarlegir áverkar voru á hálsi en sem dæmi er hægt að nefna blæðingar í hálsvöðvanum, brot á tungubeini, hringbrjóskinu og öllum barkanum. Innlent 28. júní 2024 16:00
Þriggja ára dómi fyrir að nauðga eiginkonu snúið við Maður sem var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og stórfelld brot í nánu sambandi gagnvart eiginkonu sinni fyrir héraðsdómi var sýknaður fyrir Landsrétti í gær. Einkaréttarkröfu brotaþola var jafnframt vísað frá héraðsdómi. Innlent 28. júní 2024 15:38
Geðlæknar ósammála um ástand Dagbjartar Geðlæknir sem tók að sér að meta Dagbjörtu Rúnarsdóttur árið 2021 og geðlæknir sem sá um að meta Dagbjörtu vegna Bátavogsmálsins svokallaða eru í stórum dráttum ósammála um ástand og geðrænt mat hennar. Dagbjört er grunuð um að hafa orðið sextugum karlmanni að bana í september á síðasta ári á heimili þeirra í Bátavogi. Innlent 28. júní 2024 13:22
Eldsupptök enn ekki skýr Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn brunans sem kom upp á jarðhæð Turnsins á Höfðatorgi í gær. Innlent 27. júní 2024 12:07
Fimm í fangageymslu í nótt Ekið var á gangandi vegfaranda í miðbænum í nótt og ekið í burtu. Ökumaðurinn var handtekinn síðar af lögreglu og vistaður í fangageymslu. Fjórir aðrir voru vistaðir í fangageymslu í nótt. Frá þessu er greint í dagbók lögreglunnar. Innlent 27. júní 2024 06:13
Fundu skammbyssu í fjörunni í miðbænum Lögreglan fann gamla skammbyssu í fjörunni í hverfi í 101 Reykjavík í dag. Hún reyndist ónýt eftir langa dvöl í sjónum. Þá fannst gamall peningakassi utandyra í vesturbænum sem einnig reyndist ónýtur. Innlent 26. júní 2024 20:20
Segir engum báti hafa verið stolið Lúther Gestsson er langt því frá sáttur við ásakanir Stefáns Guðmundssonar hjá Gentle Giants og segir hann fara frjálslega með. Innlent 26. júní 2024 13:52
Hnífamaðurinn þrítugur Íslendingur Telja má mikla mildi að læknir á sextugsaldri hafi komist lífs af í hnífaárás á göngustíg í Lundi í Kópavogi á föstudagskvöldið. Árásarmaðurinn, þrítugur íslenskur karlmaður, sætir gæsluvarðhaldi til föstudags hið minnsta. Innlent 26. júní 2024 11:05