Pallborðið

Pallborðið

Pallborðið er umræðuþáttur fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem helstu málefni eru krufin til mergjar með viðmælendum.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði

Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fór fram klukkan 14 í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga tókust á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar.

Innlent
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Mun Sjálf­stæðis­flokkurinn halda velli í Garða­bæ?

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og eins og stendur eru þrjár vikur þangað til landsmenn ganga til kosninga. Við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina og því munu oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ koma saman í kosningapallborði fréttastofu til að ræða þau helstu málefni sem eru undir í kosningunum.

Innlent
Fréttamynd

Hælis­leit­enda­málin settu þrýsting á Reykja­nes­bæ

Oddvitar flokkanna í Reykjanesbæ höfðu ekki um margt að rífast. Þau voru sammála um að starfsfólk sveitarfélagsins væri harðduglegt, það hafi tekið á vanda sem ríkið velti yfir á sveitarfélagið – að því forspurðu – á kassann, greitt þar úr og leyst.

Innlent
Fréttamynd

Karla­byltingin hefst í Mos­fells­bæ

Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar tókust á í fyrsta kosningapallborði fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar áðan. Þeir eru allir karlar sem má heita nýtt í sveitarstjórnarmálum á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Ingi­björg fljót að rífa upp boxhanskana

Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Bar­áttan um for­manns­em­bætti Fram­sóknar

Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar um helgina. Tvær eru í framboði til formanns og berjast um að verða arftakar Sigurðar Inga Jóhannssonar núverandi formanns.

Innlent
Fréttamynd

Ó­birt svör og starfs­lokin tekin fyrir

Frambjóðendur til oddvita Viðreisnar í Reykjavíkurborg tókust á í Pallborðinu í dag. Farið var yfir óbirta spurningu í skoðanakönnun og Airbnb-mál fyrrverandi bæjarstjóra. Enginn frambjóðandi gat valið hvern hann myndi velja í oddvitasætið fyrir utan sig sjálfan.

Innlent
Fréttamynd

Svona var Pall­borðið með Heiðu Björgu og Pétri

Klukkan 13 mætast Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Marteinsson, sem bæði sækjast eftir oddvitasæti Samfylkingarinnar í borginni, í Pallborðinu á Vísi. Þetta er í síðasta sinn sem oddvitaframbjóðendurnir mætast fyrir prófkjörið sem fer fram á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Mætast í Pallborðinu á loka­sprettinum

Þau tvö sem sækjast eftir oddvitasætinu hjá Samfylkingunni í borginni í sveitarstjórnarkosningum mætast í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi á morgun. Lesendur Vísis eru hvattir til að beina spurningum til frambjóðendanna. 

Innlent
Fréttamynd

Pall­borðið: Dómgreindarbrestur hjá CoolBet

Íslendingar eyða tugum milljarða á ári á ólöglegum veðmálasíðum. Eigendur þeirra greiða enga skatta eða gjöld hér á landi vegna úreltra laga sem hefur ekki verið breytt síðan árið 2005. Dómsmálaráðherra vill breytingar en í hvaða átt skal fara? Leyfa eða banna? Málið var rætt í Pallborðinu á Vísi í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Svona var EM-Pallborðið

Íslenska landsliðið hefur leik á EM í körfubolta í hádeginu á morgun með leik gegn Ísrael. Hitað var upp fyrir leik morgundagsins og mótið allt í EM-Pallborðinu sem var í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14:00. Sigurður Pétursson og Ólafur Ólafsson mættu í settið.

Körfubolti
Fréttamynd

Börn hafi reynt að drepa önnur börn

Hermann Arnar Austmar, foreldri í Breiðholti, segir að það hafi komið upp atvik tengd ofbeldisöldu ungmenna í hverfinu, sem hefur verið sérstaklega tengd Breiðholtsskóla, þar sem hann telur að börn hafi reynt að ráða önnur börn af dögum.

Innlent
Fréttamynd

„Stefnir í að árið í ár verði það versta á öldinni“

Vegakerfið er byggt upp á löngum tíma og stór hluti þess er kominn á tíma. Á sama tíma hefur fjárfesting ekki verið nægileg, sama hvort það er í tengslum við viðhald eða nýframkvæmdir. Þetta, og margt annað, kom fram í Pallborði um umferðaröryggi og vegakerfið á Vísi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Pall­borðið: Um­ferðar­öryggi og 200 milljarða viðhaldsskuld

Fjórir hafa farist í umferðarslysum á árinu, þar af þrír á fjögurra daga tímabili. Fjöldi þeirra sem látast eða slasast alvarlega í umferðinni fer hækkandi þvert á markmið. Fjallað verður um umferðaröryggi og ástand samgönguinnviða á Íslandi í Pallborðinu á Vísi klukkan 12:30 í dag. 

Innlent