Tekur við góðri beinagrind "Hingað til hef ég verið Robin í þessu dæmi. Ætli ég sé ekki bara orðinn Hvell-Geiri núna?“ veltir Ágúst Már Garðarsson fyrir sér, en hann hefur tekið við umsjón tónleikaraðarinnar Kaffi, kökur og rokk og ról af blaðamanninum Arnari Eggerti Thoroddsen, sem nemur nú tónlistarfræði í Edinborg. Tónlist 11. september 2012 12:00
Moses Hightower á tónleikum Gogoyoko Margt var um manninn á fimmtudaginn þegar Moses Hightower og Snorri Helgason komu fram á tónleikum í tónleikaröðinni gogoyoko wireless, sem gogoyoko heldur í samstarfi við Smirnoff. Moses Hightower gáfu nýverið út plötuna Önnur Mósebók. Meðfylgjandi myndir segja meira en mörg orð. Tónlist 11. september 2012 09:27
Rokkjötnar verða líklega endurteknir „Það kemur allt til greina en það er ekkert búið að ákveða neitt,“ segir Snæbjörn Ragnarsson úr Skálmöld, spurður hvort Rokkjötnar verði endurteknir á næsta ári. Tónlist 11. september 2012 09:00
Lögin byrjuð að tínast inn „Við byrjuðum að taka á móti lögum fyrir undankeppni Eurovision síðastliðinn föstudag. Það er þegar farið að týnast inn og þar á meðal er komið eitt lag frá útlöndum. Lögin þurfa samt að vera frá Íslendingum komin að tveimur þriðju hlutum svo það þarf að athuga hvort það lag sé gjaldgengt í keppnina,“ segir Hera Ólafsdóttir hjá RÚV. Tónlist 11. september 2012 08:00
Bræðralag rokksins í Kaplakrika Það voru sannkallaðir maraþonrokktónleikar í íþróttahúsinu í Kaplakrika á laugardaginn. Gagnrýni 10. september 2012 09:16
Ný plata og þrennir tónleikar Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti gefur út sína fyrstu plötu, Dýrð í dauðaþögn, á þriðjudaginn. Tvö lög af henni, Leyndarmál og Sumargestir, hafa notið mikilla vinsælda í sumar og því er eftirvæntingin mikil. Tónlist 10. september 2012 09:16
Flott fyrsta plata Futuregrapher LP er fyrsta plata Futuregraphers í fullri lengd, en hann á að baki nokkrar stuttskífur og EP-plötur, m.a. ambient-plötuna Tom Tom Bike sem kom út í fyrra (mjög flott) og plötuna Waterproof sem kom út í mars sl. en hana gerði hann í samstarfi við japanska tónlistarmanninn Gallery Six. Tónlist 7. september 2012 08:54
Syngur aftur með Cave Söngkonan Kylie Minogue hefur tekið upp nýja útgáfu af dúetti sínum með Nick Cave, Where the Wild Roses Grow. Tónlist 7. september 2012 08:54
Dr. Dre er ríkastur Dr. Dre er ríkasti rappari heims, samkvæmt tímaritinu Forbes. Kappinn þénaði 110 milljónir dollara síðastliðið ár, eða um 13,5 milljarða króna. Tónlist 7. september 2012 08:54
Ætlar að safna hálfri milljón á vefsíðu Hljómsveitin Nóra ætlar að safna um hálfri milljón króna í gegnum vefsíðuna Pledgemusic.com. Peningarnir verða notaðir í gerð annarrar plötu sveitarinnar sem kemur út í haust. Tónlist 6. september 2012 17:30
London næst á dagskrá "Ég verð með tónleika á þekktum klúbb sem heitir Voyage voyage. Þar eru haldin regluleg klúbbakvöld þar sem kynntir eru skandinavískir listamenn sem þeim þykir hvað mest spennandi þá stundina,“ segir íslenska poppstjarnan Daníel Óliver, sem er búsettur í Svíþjóð en heldur tónleika í London nú 27. september. Tónlist 6. september 2012 13:00
Tónelskir læknar stíga á svið í nýrri tónleikaröð „Við köllum þessa uppákomu Tónelskir læknar taka lagið,“ segir hjartalæknirinn Helgi Júlíus Óskarsson.„Við köllum þessa uppákomu Tónelskir læknar taka lagið,“ segir hjartalæknirinn Helgi Júlíus Óskarsson. Tónlist 6. september 2012 07:00
Lýtur sömu lögmálum Baldur Ragnarsson kemur að gerð fjögurra platna á þessu ári. Hann vílar ekki fyrir sér að tækla jafnt barnatónlist sem bárujárnsrokk og ýmislegt fleira. Tónlist 5. september 2012 11:30
Rokkarar fá Rokkjötnahúðflúr Listakonan Ýrr Baldursdóttir mun bjóða gestum tónlistarhátíðarinnar Rokkjötnar upp á ókeypis "airbrush-Rokkjötnatattú" sem síðar verður hægt að þvo af sér. Tónlist 5. september 2012 10:21
Cheek Mountain Thief innblásin af Húsvíkingum "Það má segja að platan hafi skrifað sig sjálf á meðan á dvölinni stóð og um leið varð ég enn ástfangnari af Íslandi," segir Mike Lindsay, söngvari bresku hljómsveitarinnar Tunng, um sólóplötu sína Cheek Mountain Thief. Tónlist 4. september 2012 14:30
Gleymmérei - nýtt lag og myndband frá Gabríel Myndband við nýjasta lag Gabríels, Gleymmérei, var frumsýnt á Vísi í dag. Gabríel fékk til liðs við sig vel valda listamenn, þar á meðal eru Björn Jörundur Friðbjörnsson sem sér um sönginn og Emmsjé Gauti sem rappar. Tónlist 4. september 2012 13:45
Rokk, ról og góðir gestir Tuttugu ár eru liðin síðan rokksveitin Jet Black Joe sló í gegn með sinni fyrstu plötu. Af því tilefni hélt hún tvenna tónleika í Gamla bíói á föstudagskvöld. Söngvarinn Páll Rósinkranz og gítarleikarinn Gunnar Bjarni Ragnarsson eru einu upphaflegu meðliminir sem eru enn eftir í bandinu. Tónlist 3. september 2012 15:00
Frumflutti óútgefið lag Sjonna "Þetta gekk ótrúlega vel. Það var rosalega gaman að fá að syngja þetta lag og leyfa fólki að heyra það,“ segir Þórunn Erna Clausen. Tónlist 1. september 2012 14:00
Fyrrum söngvari Can vill spila með Íslendingum Damo Suzuki, fyrrverandi söngvari þýsku hljómsveitarinnar Can, spilar á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, 3. október. Tónlist 1. september 2012 13:00
Hétu því að spila meira heima „Ævintýrið byrjaði með því að okkur var boðið að spila á Ítalíu,“ segir Guðbjörg Tómasdóttir sem skipar íslensk-sænska nýkántrí dúettinn My Bubba & Mi ásamt sænska lestarstjóranum My Lardotter. Tónlist 1. september 2012 12:00
Tónverk um skákeinvígi Í tilefni fjörutíu ára afmælis „einvígis aldarinnar“ í Laugardalshöll 1972 á milli Bobbys Fischer og Boris Spasskíj verður flutt tónverk eftir Guðlaug Kristin Óttarsson á sunnudaginn. Tónlist 1. september 2012 08:00
Síðasti séns að gera myndband fyrir Sigur Rós Nú eru tíu dagar í að frestur renni út til að senda sitt eigið myndband inn í myndbandasamkeppni Sigur Rósar. Samkeppnin er hluti af hinu svonefnda "Valtari mystery film experiment" þar sem ýmsir leikstjórar eru fengnir til að gera myndbönd við lögin af nýjustu plötu Sigur Rósar, Valtara. Tónlist 31. ágúst 2012 14:08
Kvintett með Slowscope Kvintettinn The Heavy Experience hefur sent frá sér sína fyrstu stóru plötu, Slowscope. Áður hefur sveitin gefið út samnefnda stuttskífu. Tónlist 31. ágúst 2012 13:00
Náðu efsta sæti á breska iTunes Plata Of Monsters and Men, My Head is an Animal, kom út í Bretlandi á mánudaginn og náði strax efsta sætinu á sölulista iTunes þar í landi. Tónlist 31. ágúst 2012 11:00
Tónleikar og kaffi Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari halda tónleika í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð sunnudaginn 2. september klukkan 15. Tónlist 31. ágúst 2012 10:20
Rappar um einelti á nýrri plötu „Vonandi mun það hjálpa þeim sem eru í svipuðum sporum. Ekki gefast upp,“ segir rapparinn Gummzter úr Mosfellsbæ um lagið sitt Í þínum sporum. Það fjallar um einelti og er að finna á annarri plötu hans, Fullorðinn, sem kemur út í næstu viku. Tónlist 31. ágúst 2012 09:00
Airwaves listinn tilbúinn Búið er að tilkynna alla þá listamenn er koma fram á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í ár. Skipuleggjendur hátíðarinnar kynntu síðustu 78 listamennina er stíga á svið í október. Tónlist 30. ágúst 2012 17:00
Áhrif frá klúbbatónlist Önnur plata ensku poppsveitarinnar The xx kemur út 10. september. Eftirvæntingarnar eru miklar enda hlaut frumburðurinn mjög góðar undirtektir. Tónlist 30. ágúst 2012 16:00
DJ Shadow sýnir gamla takta DJ Shadow er listamannsnafn Kaliforníubúans Josh Davis sem er þekktastur fyrir plötuna Entroducing sem kom út árið 1996 og er eitt af höfuðverkum instrúmental hip-hop tónlistarbylgjunnar sem oftast er kölluð trip-hop. Hún var áberandi á síðari hluta tíunda áratugarins hjá útgáfum eins og Ninja Tune og MoWax. Entroducing er algjört meistaraverk, marglaga samsuða af töktum og tónum, sem stundum birtist þegar spekúlantar velja bestu plötur sögunnar – eins og skrattinn úr sauðaleggnum innan um allar Bítla- og Radiohead-plöturnar. Tónlist 30. ágúst 2012 14:00