Svona var 165. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 25.2.2021 10:22
Sprengjuhótanir hjá þremur stofnunum til viðbótar Lögreglu hafa borist fleiri tilkynningar um sprengjuhótanir í morgun og hefur verið gripið til aðgerða vegna þessa hjá þremur öðrum stofnunum, auk Menntaskólans við Hamrahlíð sem Vísir greindi frá fyrr í dag. 25.2.2021 09:55
Ferðamenn frá smitlausu Grænlandi sleppa við PCR-próf Ferðamenn frá Grænlandi verða frá og með 24. febrúar 2021 undanþegnir kröfum um framvísun á vottorði um neikvætt PCR-próf, skimun og sóttkví vegna COVID-19 við komuna til Íslands. Þetta kemur fram á vef Landlæknis. 24.2.2021 16:55
Fallist á gæsluvarðhald yfir öllum fimm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm karlmönnum í tengslum við rannsóknina á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. 24.2.2021 16:49
Besti dagur ársins í Bláfjöllum en bannað að skíða Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðisins í Bláfjöllum var súr með að þurfa að loka skíðasvæðinu eftir hádegið í dag að kröfu almannavarna. Hann segir veðrið ekki hafa verið jafngott í ár og færið frábært. Vegna jarðskjálftanna á Reykjanesi í dag hafa almannavarnir lýst yfir hættustigi og gert þá kröfu að skíðasvæðinu verði lokað. 24.2.2021 16:10
„Ég hélt að þetta ætlaði aldrei að klárast“ Gísli Benedikt Gunnarsson kennari við 2. bekk í Grunnskólanum í Grindavík segist hafa haldið að jarðskjálftahrinan í morgun myndi aldrei klárast. Kennarar og nemendur hafi búið vel að jarðskjálftaæfingum frá því í fyrra. Dótadagur verður í grunnskólanum í Grindavík á morgun. 24.2.2021 15:25
Tár á kinnum grunnskólabarna í Grindavík Hin átta ára gamla Ásdís Vala Pálsdóttir var á meðal nemenda Grunnskóla Grindavíkur sem var nokkuð brugðið í morgun. Stórir skjálftar hafa dunið yfir með reglulegu millibili en upptök þeirra eru í nágrenni bæjarins. Ásdís Vala segir marga krakka hafa verið hrædda í skólanum í morgun. 24.2.2021 14:52
Skyndilegt hlé í beinni hjá Sóleyju vegna skjálftans Tónlistarkonan Sóley kom fram ásamt fullskipaðri sveit á Háskólatónleikum Háskóla Íslands í hádeginu í dag. Þegar tónleikarnir voru um það bil hálfnaðir dundi jarðskjálfti yfir. Um er að ræða enn einn skjálftann á suðvesturhorninu sem fannst vel á höfuðborgarsvæðinu. 24.2.2021 14:07
Við tökur á myndbandi til vina þegar 4,6 skjálftinn reið yfir Margrét Kristín Pétursdóttir, Grindvíkingur í húð og hár og starfsmaður hjá fiskvinnslunni Vísi, segir margan bæjarbúann vanann jarðskjálftum, finnist þeir jafnvel spennandi eða fyndnir. Það sem gekk á í morgun hafi verið ólíkt fyrri skjálftum enda margir óvenju stórir skjálftar sem geri að verkum að vanasta fólk verði smeykt. 24.2.2021 13:26
Fjölmörg myndbönd frá lesendum sýna hristinginn í morgun Lesendur Vísis á suðvesturhorninu fundu margir hverjir fyrir jarðskjálftahrinunni í morgun. Margir svöruðu kalli fréttastofu og sendu myndbönd sem þeir náðu og sýndu skjálftann. 24.2.2021 12:32