Miklar tafir á umferð vegna malbikunar Töluverðar tafir hafa verið á umferð þar sem Sæbraut tengist við Reykjanesbraut í höfuðborginni í dag. Verið er að fræsa og malbika akrein á Reykjanesbrautinni í suðurátt á vegarkaflanum frá Miklubraut upp að Stekkjarbakka. 26.10.2020 15:28
Framkvæmdastjórinn nýtur fulls trausts Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar sem gerir út frystitogarann Júlíus Geirmundsson, nýtur traust stjórnar til að takast á við þau verkefni sem eru fram undan. 26.10.2020 12:59
Vextir á lánum hækka hjá Íslandsbanka Íslandsbanki ætlar að hækka vexti á húsnæðislánum í vikunni. Hækkunin nemur allt að 0,35 prósentustigum. Arion banki segist skoða að breyta vöxtum og Landsbankinn metur stöðuna sömuleiðis. 26.10.2020 12:37
Innkalla 24 Mercedes-Benz Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 24 Mercedes-Benz A-Class. 26.10.2020 10:14
Svona var 128. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 26.10.2020 10:05
Tjáningin óendanlega verðmætari en starfið um borð 21 árs háseti á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni, þar sem nær allir smituðust á Covid-19 á þriggja vikna túr, segir hegðun útgerðarinnar í veikindum skipverja í takti við fyrri hegðun gagnvart starfsmönnum hvað öryggi og heilsu starfsmanna snertir. 24.10.2020 22:04
Bannað að segja fjölmiðlum frá veikindum sínum um borð Skipverjar á frystiskipinu Júlíusi Geirmundssyni segjast margir hverja hafa verið alvarlega veikir í þriggja vikna túr á miðunum. Þeir hafi verið með mikinn hita, öndunarörðugleika auk fleiri þekktra einkenna Covid-19 sjúkdómsins. 23.10.2020 16:38
Stefnir í að fella þurfi þrjú þúsund fjár Sterkur grunur er um riðusmit á þremur bæjum á Tröllaskaga til viðbótar við Stóru Akra 1 þar sem smit varð staðfest í vikunni. Alls er um að ræða tæplega þrjú þúsundur kindur og lömb. 23.10.2020 16:15
Dómur mildaður í ljótu líkamsárásarmáli Landsréttur hefur dæmt Hafstein Oddsson í fjögurra ára fangelsi fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum haustið 2016. Hafsteinn hlaut sex ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands í júlí í fyrra en dómurinn var mildaður um tvö ár. 23.10.2020 15:52