Stjórnarformaðurinn náði ekki kjöri í stjórn Símans Hollenski fjárfestirinn Bertrand Kan, stjórnarformaður Símans, náði ekki kjöri í stjórn fyrirtækisins á hluthafafundi í morgun. Fyrir fundinn var lögð fram tillaga að afturkalla umboð stjórnarmanna áður en gengið var til atkvæðagreiðslu um þá sem buðu fram krafta sína. 21.11.2019 13:56
Arngrímur skipstjóri Heinaste laus úr haldi í Namibíu Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, segir Arngrím Brynjólfsson skipstjóra lausan úr varðhaldi í Namibíu. Þetta kom fram í máli Björgólfs í hádegisfrétum Bylgjunnar. 21.11.2019 12:15
Íslenskur skipstjóri handtekinn í Namibíu Arngrímur Brynjólfsson, íslenskur skipstjóri sem siglt hefur skipum fyrir Samherja um árabil, er í varðhaldi í Namibíu ásamt rússneskum skipstjóra. Báðir eru sakaðir um ólöglegar veiðar undan ströndum Namibíu. 21.11.2019 10:37
Lögreglan vill ná tali af þessum manni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd. 20.11.2019 16:52
Haukur yfir fjármálastöðugleika hjá Seðlabankanum Haukur Camillus Benediktsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum. 20.11.2019 16:48
Steinunn og Guðmundur færa sig til Intellecta Intellecta hefur bætt við ráðgjöf sína og ráðið til starfa tvo ráðgjafa, þau Guðmund Arnar Þórðarson á sviði upplýsingatækni og Steinunni Ketilsdóttur á sviði stafrænnar fræðslu fyrr á þessu ári. 20.11.2019 16:15
Staðfesta niðurfellingu á máli ungu konunnar sem lést eftir handtöku lögreglu Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara að fella niður mál ungrar konu sem lést í apríl síðastliðnum eftir að hafa verið handtekin af lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu. 20.11.2019 15:55
Frá Já.is og Gallup til Cubus Sigurður Bjarnason hefur verið ráðinn sem ráðgjafi í viðskiptagreind og vöruhúsum gagna hjá hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtækinu Cubus. 20.11.2019 15:15
Alþingi mátti ekki veita skólastjóra aðgang að upptökum af krökkum í kannabisneyslu Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að skrifstofu Alþingis hafi ekki verið heimilt að veita skólastjóra í grunnskóla nokkrum aðgang að myndefni úr eftirlitsmyndavél árið 2018. 20.11.2019 14:36
Langþráð markmið næst með lagningu rafmagns í Langadal og Bása Framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarið við lagningu rafmagns í Langadal og Bása í Þórsmörk. Fyrir vikið verða ekki lengur brenndir þúsundir lítra af olíu á þessum vinsæla ferðamannastað. 20.11.2019 12:01