Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Tvær íslenskar konur stóðu í lagadeilum vegna hrossakaupa en önnur þeirra krafðist endurgreiðslu þar sem hesturinn reyndist vera með aukatönn, sem hún taldi valda honum óþægindum. Endurgreiðsluna fékk hún þó ekki þar sem ekkert benti til þess að aukatönnin hefði áhrif á heilsu hans. Seljandinn var því sýknaður. 13.2.2026 18:19
Óðinn Svan leiðir L-listann Fréttamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson mun leiða L-listann í komandi bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. 13.2.2026 17:40
Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Lögregla vísaði manni út af veitingastað í dag þar sem hann hafði lagst þar til hvílu. 13.2.2026 17:22
Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Nýútgefin skjöl varpa ljósi á það að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vitað lengur af kynferðisbrotum Jeffrey Epsteins en hann hefur viðurkennt. Í raun virðist hann hafa vitað um brot Epsteins frá því áður en fyrsta rannsókn hófst árið 2006. 10.2.2026 22:02
Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Miðaeigandi Happdrættis Háskóla Íslands mun hafa verið í óðaönn að máta föt í verslun á Tenerife þegar starfsmaður happdrættisins hringdi til að tilkynna að hann hefði unnið eina milljón króna. 10.2.2026 21:09
Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Kona hefur verið dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrverandi sambýlismann sinn. Hún lýsti mikilli vanlíðan í kjölfar sambandslita þeirra tveggja. 10.2.2026 20:55
Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Hundaeigendur hafa áhyggjur af dularfullum fiskúrgangi sem hefur verið fargað á útivistarsvæði í nágrenni við Sólheimakot í Mosfellsbæ, þar sem alls kyns sjávarfang, svo sem makríll og krabbar, hefur fundist í hrúgum. Einn hundur varð verulega veikur eftir að hafa komist í úldinn fisk á svæðinu. 10.2.2026 20:26
Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Sérstakur íshókkíleikur er spilaður í kvöld til minningar um Patrek Frey Sveinsson, sautján ára dreng sem lést í bílslysi á Miklubraut í síðustu viku. 10.2.2026 19:33
Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Ráðamenn og verktakar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýju uppbyggingarverkefni í Hafnarfirði þar sem reistar verða tæplega fjögur hundruð íbúðir, þar á meðal þriðjungur fyrir fyrstu kaupendur sem fá hlutdeildarlán. 10.2.2026 17:42
Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir grískum karlmanni sem grunaður er um að hafa ráðið portúgölskum manni bana á Skjólbraut í Kópavogi í nóvember. 10.2.2026 17:19