Keflavík hafði betur í Kópavogi og Snæfell náði í sín fyrstu stig Fjórða umferðin í Domino’s deild kvenna hélt áfram í kvöld. Í fyrsta leik dagsins unnu Haukar sigur á Fjölni en Keflavík vann svo sigur á Breiðabliki, 66-56, og Snæfell náði í sín fyrstu stig með sigri á KR, 87-75. 13.1.2021 21:04
Fleiri frídagar á EM í handbolta Frá og með næsta Evrópumóti í handbolta verða fleiri frídagar gefnir á mótinu. Þetta kemur fram í tilkynningu í kvöld. 13.1.2021 20:45
Simone kjörinn þjálfari áratugarins Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, hefur verið kjörinn þjálfari áratugarins, þrátt fyrir að vinna spænsku deildina einungis einu sinni á áratugnum. Þar með hafði hann betur gegn stjórum á borð við Pep Guardiola og Zinedine Zidane. 13.1.2021 20:26
Haukur höfðu betur gegn Fjölni í endurkomunni Fyrsti íslenski körfuboltaleikurinn í tæpa hundrað daga fór fram í Dalshúsum í kvöld. Haukar höfðu þá betur gegn Fjölni, 70-54, í fjórðu umferð Domino’s deildar kvenna. Þetta var fyrsta tap Fjölnis. 13.1.2021 20:10
City marði Brighton Manchester City er komið upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Man. United og á leik til góða, en City vann 1-0 sigur á Brighton í kvöld. 13.1.2021 19:52
Albert fékk loksins tækifæri og AZ á sigurbraut á ný Albert Guðmundsson var kominn í byrjunarliðið hjá AZ Alkmaar í hollenska boltanum í dag er liðið vann 3-1 sigur á PSV. 13.1.2021 19:39
Aftur skoraði Sverrir og nú gegn toppliðinu Sverrir Ingi Ingason skoraði annað leikinn í röð fyrir PAOK er hann skoraði mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn toppliði Olympiakos. 13.1.2021 19:23
Gary Neville biðst afsökunar á lýsingunni í leik Man. Utd og Burnley Gary Neville, sparkspekingur og lýsari hjá Sky Sports, baðst afsökunar í gær á lýsingu sinni í leik Manchester United gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. 13.1.2021 19:00
Liðsstyrkur til Eyja Hin sænska Lina Cardell hefur skrifað undir samning við ÍBV í Olís deild kvenna út leiktíðina en fésbókarsíða Savehof staðfestir þetta í dag. 13.1.2021 18:52
Gestgjafarnir byrja á öruggum sigri Tuttugasta og sjöunda HM í handbolta hófst í dag í Egyptalandi er heimamenn í Egyptalandi rúlluðu yfir Síle, 35-29, er liðin mættust í opnunarleiknum. Liðin leika í G-riðli. 13.1.2021 18:32