Sprettur Neto tryggði Úlfunum sigur Wolves vann 2-1 sigur á Southampton er liðin mættust öðru sinni á fjórum dögum. Í dag mættust liðin í ensku úrvalsdeildinni á St. Mary’s leikvanginum en fyrr í vikunni spiluðu liðin í enska bikarnum. 14.2.2021 13:55
Albert skoraði gegn gömlu félögunum Albert Guðmundsson skoraði þriðja og síðasta mark AZ Alkmaar er liðið vann 3-1 sigur á Heerenveen í hollensku úrvalsdeildinni í dag. 14.2.2021 13:14
Vill að gestaliðið skipti um föt á barnum Chris Wilder, stjóri Sheffield United, er ekki hrifinn af búningsklefunum sem Sheffield liðið fær á útivöllum. Vegna kórónuveirufaraldursins mega liðin ekki hýsa gestaliðið í sínum venjulega búningsklefa. 14.2.2021 13:00
Strákarnir voru hrifnari af Tindastól: „Ég dýrka að horfa á hann spila körfubolta“ Kjartan Atli Kjartansson, Sævar Sævarsson og Jón Halldór Eðvaldsson voru hrifnir af því hvernig Tindastóls-liðið spilaði í sigurleiknum gegn Grindavík á fimmtudagskvöldið. 14.2.2021 12:31
Rio segir að Liverpool verði í vandræðum með að ná topp fjórum Rio Ferdinand, fyrrum varnarmaður Manchester United og nú spekingur BT Sports, telur að Liverpool verði í vandræðum með að ná einum af fjórum efstu sætunum í ensku úrvalsdeildinni. 14.2.2021 12:00
Draugamark í Garðabæ í sigri KA/Þór KA/Þór vann dramatískan sigur á Stjörnunni í gær. Samkvæmt heimasíðu Handknattleikssambandsins endaði leikurinn 27-26 en norðanstúlkur virðast bara hafa skorað 26 mörk í leiknum. 14.2.2021 11:10
Hætta að krjúpa því það skilar engum árangri Enska B-deildarliðið Brentford hefur ákveðið að hætta að krjúpa fyrir leiki liðsins í ensku B-deildinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í gærkvöldi en liðið er í öðru sæti B-deildarinnar. 14.2.2021 11:01
Durant fékk sigur, knús og myndband í endurkomunni Kevin Durant snéri aftur á sinn gamla heimavöll í nótt er Brooklyn Nets vann sigur á Golden State Warriors á útivelli, 134-117. 14.2.2021 10:31
Jón Arnór um Pavel: „Hann er orðinn faðir og nú skilur hann þetta loksins!“ Valur vann Keflavík, nokkuð óvænt, í Domino’s deild karla á föstudagskvöldið. Jón Arnór Stefánsson, stórstjarna Vals, hrósaði Pavel Ermolinskij í hástert í leikslok fyrir frammistöðu Pavels á föstudaginn. 14.2.2021 10:00
Trent bætti óheppilegt met í þriðja skipti á þessari leiktíð Trent Alexander-Arnold bætti ekki skemmtilegt met í þriðja skiptið á þessari leiktíð í gær er Liverpool tapaði 3-1 fyrir Leicester á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var þriðja tap ensku meistarana í röð. 14.2.2021 09:31