Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Lýður Guðmundsson, sem oftast er kenndur við Bakkavör, keypti á dögunum 3,3 prósenta hlut í Kviku banka. Þá hefur hann gert framvirka samninga upp á önnur 1,78 prósent í bankanum og samanlögð eign hans í bankanum nemur því 5,08 prósentum. Verðmæti eignarhlutarins nemur um 3,6 milljörðum króna. 11.5.2026 10:34
Gengi Alvotech tekur kipp Gengi hlutabréfa í Alvotech hefur tekið vænan kipp í morgun, eftir að tilkynnt var að niðurstaða úttektar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, væri að fyrirtækið uppfylli nú ströngustu kröfur góðra framleiðsluhátta í lyfjaframleiðslu. 11.5.2026 09:54
Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka Arion banki er íslenska fjármálafyrirtækið sem varð fyrir barðinu á rúmenskum tölvuþrjóti í apríl. Hann nýtti sér villu í kerfi bankans til þess að millifæra á sig um 160 milljónir króna. Arion banki hefur endurheimt fjármunina að mestu leyti. 11.5.2026 09:12
Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur endurgreitt borginni alls 28 þúsund krónur vegna óheimillar notkunar á innkaupakorti borgarstjóra. Þrjár af fjórum endurgreiðslum greiddi hún eftir að fjölmiðlar sendu fyrirspurnir vegna innkaupakortsins. 23 skriflegar athugasemdir hafa borist vegna notkunar hennar á kortinu, þar á meðal vegna greiðslu fyrir uppfærslu á fyrsta farrými. 8.5.2026 16:29
Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, óskar Nigel Farage, formanni Umbótaflokksins í Bretlandi, til hamingju með kosningasigur í sveitarstjórnarkosningum þar í landi á Instagram. 8.5.2026 14:37
Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur notað innkaupakort borgarstjóra á annan máta en forverar hennar í starfi. Dagur B. Eggertsson notaði kortið ekki, Einar Þorsteinsson greiddi fyrir leigubíla og hótelherbergi erlendis en á yfirliti Heiðu Bjargar má sjá færslur frá veitingastöðum á borð við Jómfrúna, leigubílum og kaffihúsum borgarinnar. Heiða Björg segist hafa farið að reglum í einu og öllu varðandi notkun kortsins. 8.5.2026 12:08
Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir Flugmálafélag Íslands hefur boðað til opins fundar með fulltrúum stjórnmálaflokkana fyrir borgarstjórnarkosningar á Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll. Fundurinn hefst klukkan 17 og má sjá í beinni útsendingu á Vísi. 7.5.2026 16:33
Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,6 prósent, sem er í báðum tilvikum yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Aukning í vaxtatekjum, sem var rúmum 11 prósentum yfir spám greinenda, skýrir að stórum hluta aukinn hagnað samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. 7.5.2026 16:07
Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Gengi hlutabréfa í Alvotech lækkaði um rúm tíu prósent í fyrstu viðskiptum eftir opnun Kauphallarinnar í morgun. Félagið birti uppgjör eftir lokun markaða í gær. 7.5.2026 10:01
Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem útvistar ekki sorphirðu og þar telja aðeins 37 prósent íbúa vel ganga að tæma tunnur tímanlega. Íbúar Kópavogs telja flestir að vel gangi að tæma tunnurnar, eða 78 prósent. 7.5.2026 05:02