Nú er of seint að fara í parísarhjólið Unnið er að því að taka parísarhjólið við Miðbakka í Reykjavík niður. Hjólið fékk að standa á bakkanum frá því um miðjan júní en í könnun kom fram að fimmtán prósent landsmanna hyggðust fara hring í hjólinu í sumar. 10.9.2024 13:43
Albert mætir fyrir dóm á fimmtudag Aðalmeðferð í máli knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag og föstudag. Albert kemur til landsins og mun gefa skýrslu fyrir dómi. 10.9.2024 13:25
Hinn grunaði í Selfossmálinu er látinn Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður var um að hafa orðið Sofiu Sarmite Kolsenikovu að bana á Selfossi í apríl í fyrra lést í vikunni. Rannsókn málsins verður lokið þrátt fyrir að ljóst sé að ákæra verði ekki gefin út í því. 10.9.2024 11:30
Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Samkvæmt greiningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins gæti greiðslubyrði þrjátíu milljóna króna óverðtryggðs íbúðaláns á breytilegum vöxtum lækkað um fimmtíu þúsund króna á mánuði á næsta ári. 10.9.2024 10:32
Svona var kynning Sigurðar Inga á fjárlagafrumvarpinu Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra boðar til fréttamannafundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu klukkan 09 í dag. Á fundinum kynnir ráðherra fjárlagafrumvarp fyrir árið 2025. 10.9.2024 08:31
Þjóðverjar herða tökin á landamærum Ríkisstjórn Þýskalands tilkynnti í dag að tímabundið landamæraeftirlit verði tekið upp til þess að stemma stigu við fólksflutningum til landsins og hryðjuverkaógn. 9.9.2024 17:00
Ummælin óviðeigandi en Helgi Magnús sleppur Dómsmálaráðherra telur sérstakar aðstæður réttlæta ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, vararíkissaksóknara, sem séu þó til þess fallin að grafa undan trúverðugleika ákæruvaldsins. Hann verður því ekki leystur frá störfum. Helgi Magnús fagnar ákvörðun ráðherra og hlakkar til að mæta aftur til vinnu. 9.9.2024 15:39
Hlutur Skeljar stækkar eftir áreiðanleikakönnun Áreiðanleikakönnunum í tengslum við samruna Samkaupa og tiltekinna félaga í samstæðu Skeljar fjárfestingafélags er lokið. Nú er áætlað að hlutur Skeljar í sameiginlegu félagi verði 47 prósent en áður var áætlað að hann yrði 42,7 prósent. 9.9.2024 14:56
Auðlegðarskattur hefði skilað 37 milljörðum í fyrra Auðlegðarskattur, eins og sá sem lagður var á í nokkur ár eftir efnahagshrunið árið 2008, hefði skilað ríkissjóði rétt tæplega 37 milljörðum króna í kassann í fyrra. 9.9.2024 14:10
Lýsa yfir óvissustigi Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. 9.9.2024 13:09