Skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn samstarfskonu í vinnuferð Kona var í gær dæmd til tveggja mánaða fangelsisrefsingar, sem fresta skal til tveggja ára haldi hún almennt skilorð, fyrir að brjóta kynferðislega gegn samstarfskonu sinni í vinnuferð til Reykjavíkur árið 2019. 15.10.2021 23:27
Ódæðismaðurinn vistaður á stofnun: Norðmenn eru í sárum Norðmenn eru í sárum eftir ódæðin í fyrradag þegar karlmaður vopnaður boga og örvum myrti fimm manns. Lögregla telur ekki um hryðjuverkaárás að ræða heldur sé árásarmaðurinn andlega veikur. Hann hefur verið vistaður á viðeigandi stofnun. 15.10.2021 22:36
Sonur Emmsjé Gauta stal senunni og hljóðnemanum Emmsjé Gauti flutti lagið Tossi af plötunni Mold af mikilli innlifun í söfnunarþætti Píeta samtakanna, Sagan þín er ekki búin, á Stöð 2 í kvöld. Þrátt fyrir góðan flutning Gauta Þeys var það rétt rúmlega tveggja ára gamall sonur hans sem stal senunni. 15.10.2021 22:00
Þjónar gengu út af Snaps í síðustu viku: „Það er engan bilbug á okkur að finna“ Nær allt starfslið veitingahússins Snaps við Óðinstorg sagði starfi sínu lausu á dögunum vegna víðtækrar óánægju með stjórnarhætti nýs rekstrarstjóra. Í samtali við Vísi í vikunni sögðu fyrrverandi starfsmenn óánægjuna snúa að launakjörum, undirmönnum og samskiptavanda eftir stjórnendaskipi. 15.10.2021 20:39
Grænlendingar bjartsýnir þrátt fyrir loftslagsbreytingar Ný ríkisstjórn Grænlands horfir til grænna lausna og ætlar ekki að veita leyfi til olíu- og gasvinnslu. Gífurleg uppbygging innviða eins og flugvalla, hafna og vega á sér stað á Grænlandi sem kynnt hefur verið á Hringborði norðurslóða í Hörpu. 15.10.2021 19:55
Lögregla hefur lokið rannsókn vegna andláts í Vindakór Rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á andláti Daníels Eiríkssonar. Daníel fannst illa leikinn fyrir utan heimili sitt í Vindakór þann 2. apríl síðastliðinn og lést af sárum sínum á Landspítalanum daginn eftir. 15.10.2021 18:50
Felldi TM í Landsrétti vegna vinnuslyss eftir tap í héraði Landsréttur viðurkenndi í dag bótaskyldu TM vegna slyss sem karlmaður varð fyrir er hann var að færa tvö hundruð lítra olíutunnu. TM hélt því fram fyrir dómi að ekki hefði verið um slys í skilningi bótaréttar að ræða. 15.10.2021 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Allar forsendur eru til staðar til að halda áfram tilslökunum innanlands, að sögn sóttvarnalæknis. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru hlynntir því að afnema samkomutakmarkanir að fullu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 15.10.2021 18:00
Hélt að hún væri að deyja þegar hún missti allt hárið Allt í einu byrjaði hún að fá skallablett og svo fór allt hárið á örskömmum tíma. „Ég hélt ég væri að deyja úr einhverjum hræðilegum sjúkdómi. Sem betur fer var það ekki svo en það breytti því þó ekki að mér leið hræðilega með að missa fallega hárið mitt,“ segir Vilborg Friðriksdóttir sem segir sögu sína í Íslandi í dag. 4.10.2021 23:55
Ellefu mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir líkamsárás og fyrri brot Karlmaður hefur verið dæmdur til ellefu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir líkamsárás á Akureyri. Um er að ræða eins mánaðar hegningarauka við fyrri tíu mánaða dóm sem maðurinn hlaut í mars síðastliðnum. 4.10.2021 22:54