Gosmóðan er komin aftur Nokkur gosmengun mælist nú yfir höfuðborgarsvæðinu. Gosmóðan sem nú svífur yfir kemur ekki beint frá gosstöðvunum í Fagradalsfjalli heldur er um eldri gasmökk að ræða sem hefur verið fyrir utan landið. 18.7.2021 15:57
Boris Johnson er hættur við að sleppa sóttkví Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Rishi Sunak fjármálaráðherra voru útsettir fyrir smiti eftir að þeir funduðu með Sajid Javid heilbrigðisráðherra, sem reyndist smitaður af Covid-19. Upphaflega ætluðu ráðherrarnir tveir ekki að fara í sóttkví. 18.7.2021 14:40
Báðar verslanir Nexus lokaðar vegna smitaðs starfsmanns Í morgun kom upp að einn starfsmaður myndasöguverslunarinnar Nexus hefði greinst smitaður af Covid-19. Þetta segir í tilkynningu frá Nexus á Facebook. 18.7.2021 14:28
Markmiðið er ekki að vernda blygðunarkennd ferðamanna Dagný Hrönn Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Sky Lagoon segir miklar umræður hafa átt sér stað innan fyrirtækisins eftir að ungri konu var vísað upp úr lóninu fyrir að vera bera að ofan í gær. Hún hefur óskað eftir lögfræðiaðstoð. 18.7.2021 13:53
Hin brasilísk-íslenska Céu De Agosto hlaut viðurkenningu á Cannes Céu De Agosto, eða Ágústhiminn, stuttmynd brasilíska leikstjórans Jasmin Tenucci hlaut sérstaka viðurkenningu á verlaunaafhendingu kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í gærkvöldi. 18.7.2021 12:06
Meirihluti falsfrétta um Covid-19 komi frá tólf einstaklingum Mikill meirihluti falsfrétta og hræðsluáróðurs um bólusetningar á samfélagsmiðlum vestanhafs er runninn undan rifjum einungis tólf einstaklinga. Þetta segir í nýrri skýrslu Center for Countering Digital Hate, samtaka sem berjast gegn stafrænu hatri. 18.7.2021 10:03
LungA að ná hápunkti sínum: Treystir því að gestirnir verði þægir Listahátíðin LungA á Seyðisfirði nær hápunkti sínum í kvöld og nótt þegar uppskeruhátíð hennar fer fram. Ball er haldið í félagsheimilinu Herðubreið þar sem nokkrar af vinsælustu hljómsveitum landsins koma fram. 17.7.2021 23:53
Þrennt lést í flugslysi í Þýskalandi Lítil flugvél brotlenti í Baden-Württemberg í Þýskalandi í dag. Í vélinni voru þrjár manneskjur sem létust allar. 17.7.2021 22:36
Líf og fjör um allt land Líf og fjör er í öllum landshlutum um helgina. Ögurhátíðin í Ísafjarðardjúpi nær hámarki með Ögurballi í kvöld, þar sem boðið verður upp á rabbarbaragraut með rjóma í danspásum. 17.7.2021 21:47
Hrollvekjan Titane hlaut Gullpálmann Franski leikstjórinn Julia Ducournau varð í dag annar kvenkyns leikstjórinn til að vinna Gullpálmann þegar mynd hennar Titane vann aðalverðlaun Cannes kvikmyndahátíðarinnar í dag. 17.7.2021 20:31