Vænta 50 punkta lækkunar en telja 25 punkta líklega Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að stýrivextir verði lækkað um hálft prósentustig næst þegar peningastefnunefnd kemur saman þann 5. febrúar. Deildin telur þó að aðeins 25 punkta lækkun sé möguleg. 31.1.2025 13:54
Framkvæmdir stöðvaðar að hluta Framkvæmdir við Álfabakka 2A, þar sem unnið er að byggingu „græna gímaldsins“ svokallaða, hafa verið stöðvaðar að hluta af byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Nánar tiltekið hafa framkvæmdir við fyrirhugaða kjötvinnslu á jarðhæð hússins verið stöðvaðar vegna skorts á mati á umhverfisáhrifum. 31.1.2025 12:09
Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn Alvarlegt flugatvik varð þann 25. febrúar árið 2024 þegar tvær litlar flugvélar rákust nánast saman í lofti yfir Skerjafirði. Á sama tíma voru flugumferðarstjórar að horfa á úrslitaleik enska deildabikarsins í knattspyrnu, þar sem Liverpool hafði betur gegn Chelsea. 31.1.2025 11:09
Bein útsending: Er aukin kjöt- og próteinneysla leiðin að bættri heilsu? Heilsan okkar er ný fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar sem varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Á fyrsta fundinum verður reynt að svara spurningunni: „Er aukin kjöt- og próteinneysla leið að bættri heilsu?“ Sýnt verður frá fundinum, sem hefst klukkan 11:30, hér á Vísi. 31.1.2025 11:00
Þorsteinn Skúli tekur formannsslaginn Þorsteinn Skúli Sveinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns VR. Þorsteinn Skúli er lögfræðingur og starfaði lengi hjá VR sem sérfræðingur á kjarasviði. 31.1.2025 10:25
„Skutlari“ áreitti stúlku og varð fyrir alvarlegri líkamsárás Svokallaður „skutlari“ hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita stúlku kynferðislega í bifreið sinni. Aðstandandi stúlkunnar tók hann kyrkingartaki í kjölfarið og hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Sá var nýverið dæmdur í áralangt fangelsi fyrir aðkomu að Sólheimajökulsmálinu svokallaða. 30.1.2025 17:18
Bein útsending: Ríkissáttasemjari fer yfir innanhússtillöguna Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði nú klukkan fjögur fram innanhússtillögu að kjarasamningi í kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög til að freista þess að höggva á þann algera hnút sem viðræðurnar eru komnar í. Ástráður mætir í beina útsendingu með Heimi Má Péturssyni fréttamanni í Pallborðinu á Vísi um klukkan fimm í dag. 30.1.2025 16:15
Hæstiréttur blandar sér í málið sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir mál Íslenskrar erfðagreiningar á hendur Persónuvernd. Persónuvernd var sýknuð í Landsrétti af kröfu Íslenskrar erfðagreiningar sem varðaði vinnu fyrirtækisins þegar Covid-19 faraldurinn var nýkominn hingað til lands. 30.1.2025 15:02
Sextíu flugferðum aflýst Hvassviðri sem gengur yfir landið mun hafa áhrif á flugáætlun Icelandair seinni partinn á morgun, 31. janúar. Flug til Evrópu í fyrramálið er á áætlun en raskanir eru á flugi til Íslands frá Evrópu eftir hádegið á morgun og einnig flugi sem er á áætlun til Norður-Ameríku og Evrópu síðdegis. 30.1.2025 14:43
Ekki ljóst hvort skýringar Sjálfstæðismanna haldi vatni Fjármálaráðuneytið hefur staðfest að Sjálfstæðisflokkur og Píratar uppfylltu ekki skilyrði laga til úthlutunar framlaga úr ríkissjóði þegar úthlutun fór fram árið 2022. Ekki hefur verið tekin afstaða til þýðingar þess að breyta skráningu eftir úthlutun. Allir flokkar, þeirra á meðal Flokkur fólksins, hafi aftur á móti uppfyllt önnur skilyrði. Sjálfstæðismenn fengu fréttabréf í fyrrakvöld þar sem sagði að fréttaflutningur um styrkjamál flokksins væri úr lausu lofti gripinn og í besta falli byggður á misskilningi. 30.1.2025 13:13