Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í dag. Einn hafi verið fluttur til aðhlynningar og sagður „nokkuð slasaður“. Greint er frá málinu í tilkynningu frá lögreglu en atvikinu er ekki lýst nánar. 28.6.2026 17:52
Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Erica Mancel, systir Emeric Mancel, manns sem fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra, bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Erica er mágkona Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samráði við Emeric, eiginmann sinn, á hótelinu. Erica segir bróður sinn hafa verið afar stjórnsaman og að eiginkona hans og dóttir hafi verið undirgefnar honum. Hún segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta og hún hefði átt í erfiðleikum með að búa ein. 24.6.2026 15:06
„Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar og endurspegli ekki alvarleika brotanna. Ekki sé ólíklegt að lagðar verði fram breytingar á ákvæðum náttúruverndarlaga á viðurlögum við slíkum brotum á næsta löggjafarþingi. 24.6.2026 08:44
Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í nótt ályktun þar sem slegið er á puttana á Donald Trump forseta Bandaríkjanna og honum sagt að hætta stríðsrekstri í Íran. 24.6.2026 07:19
Úrkoma í flestum landshlutum í dag Í dag má búast við hægri breytilegri átt og rigningu með köflum í flestum landshlutum samkvæmt Veðurstofu Íslands. Þurrt verði á norðvestur hluta landsins. Hiti verður á bilinu 10 til 17 stig. 24.6.2026 06:46
Fluttur á slysadeild eftir að bifreið var ekið á rafskútu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys í Garðabæ þar sem bíl var ekið á rafmagnshlaupahjól. Einn hafi verið fluttur á slysadeild með áverka á fæti. 24.6.2026 06:30
Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa á Íslandsmiðum síðan 2023, voru dregnar á land snemma í morgun í Hvalfirði. Tvær langreyðar hafi verið veiddar í nótt. 23.6.2026 14:32
„Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Petro Gurido er úkraínskur töframaður sem ólst upp í Donetsk-héraði í Úkraínu. Hann naut mikillar velgengni sem töframaður áður en Rússar réðust inn í Úkraínu og ferðaðist um heiminn. Hann bjó til að mynda til töfrabrögð fyrir America’s Got Talent. Hann flúði Úkraínu fyrir tæpu ári síðan og undirbýr nú sjónhverfingasýningu í Keflavík. 23.6.2026 13:20
Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Hægrimaðurinn Abelardo de la Espriella sigraði naumlega seinni umferð forsetakosninga í Kólumbíu í fyrradag. Hann naut stuðnings Donalds Trump Bandaríkjaforseta í kosningabaráttu sinni og hefur heitið því að beita hernum gegn glæpum í landinu. 23.6.2026 08:57
Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veðurstofan í Bretlandi telur líklegt að í dag verði heitasti dagur júnímánaðar frá upphafi mælinga þar í landi. Spáð er því að hitinn fari yfir 35 stig. 23.6.2026 07:55