Sara Lind settur orkumálastjóri í kosningabaráttunni Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur nú sett Söru Lind Guðbergsdóttur tímabundið í embætti orkumálastjóra fram til 2. júní. 2024. Þetta er gert vegna óskar Höllu Hrundar Logadóttur um að taka sér tímabundið leyfi frá embætti vegna framboðs síns til embættis forseta Íslands. 12.4.2024 13:15
Segir af sér vegna ritstuldar Norski heilbrigðisráðherrann Ingvild Kjerkol hefur sagt af sér embætti eftir að upp komst um ritstuld í tengslum við vinnslu á meistararitgerð hennar í heilbrigðisstjórnun frá árinu 2021. 12.4.2024 11:18
Verður forseti viðskiptadeildar HA Dr. Sigurður Ragnarsson hefur verið ráðinn sem forseti viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri frá 1. júlí næstkomandi. 12.4.2024 10:49
Skipaður deildarforseti lagadeildar HR Dr. Gunnar Þór Pétursson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, hefur verið skipaður deildarforseti lagadeildar HR. 12.4.2024 10:32
Laumuðu fötunum með barnabílstólunum og fá lægri bætur Fjölskylda sem ferðaðist með flugi til Stokkhólms í Svíþjóð síðasta sumar fær um 14 þúsund krónur í bætur eftir að farangur þeirra skilaði sér seint á áfangastað. Fjölskyldan fór fram á mun hærri bætur vegna málsins, um 80 þúsund krónur, en þar sem fjölskyldan fór ekki að skilmálum með því að pakka fatnaði hennar ofan í poka með barnabílstólum urðu bæturnar mun lægri en farið var fram á. 12.4.2024 10:10
Víða dálítil snjókoma eða él Gera má ráð fyrir norðan kalda eða stinningskalda og dálitlum éljum eða snjókomu í dag, en þurrt að kalla suðvestanlands. Það mun lægja smám saman þegar líður á daginn og styttir víða upp. Kólnar svo í veðri með kvöldinu. 12.4.2024 07:24
Gunnlaugur Rögnvaldsson er látinn Gunnlaugur Rögnvaldsson, blaðamaður og ljósmyndari, er látinn. Hann lést síðastliðinn þriðjudag, 62 ára að aldri. Gunnlaugur var meðal annars þekktur fyrir umfjöllun sína um Formúlu 1 og aðrar aktursíþróttir hér á landi og stýrði þáttum og lýsti keppnum í sjónvarpi. 12.4.2024 07:15
Kaupa Dive.is að fullu Kynnisferðir, sem starfa undir vörumerkinu Icelandia, hafa gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Dive.is. 11.4.2024 16:12
Sjá peningana úr Hamraborg ekki í umferð Enn hefur enginn verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á þjófnaði á tugum milljóna króna í reiðufé í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðnum. 11.4.2024 11:01
Áfram skerðingar vegna „fádæma lélegs vatnsárs“ Landsvirkjun mun skerða afhendingu raforku til viðskiptavina sinna, sem flokkast sem stórnotendur, lengur fram á vorið en vonast hafði verið til. Ástæðan er fádæma lélegt vatnsár þar sem gengið hefur hratt á uppistöðulón. 11.4.2024 10:10