Leifar norðanáttarinnar lifa enn við ströndina Útlit er fyrir breytilega átt á landinu í dag, víðast hvar á bilinu þrír til átta metrar á sekúndu. Norðanátt hefur hrellt íbúa í norðausturfjórðungi landsins undanfarið og leifar af henni lifa enn úti við ströndina. Má reikna með norðvestan strekkingi þar þar til síðdegis. 5.7.2022 07:15
Þau sóttu um stöðu bæjarstjóra í Mosfellsbæ Alls sóttu þrjátíu um stöðuna bæjarstjóra í Mosfellsbæ sem auglýst var laust til umsóknar á dögunum. Fimm drógu umsóknir sínar til baka. Nýr bæjarstjóri mun taka við stöðunni af Haraldi Sverrissyni sem gengdi stöðunni síðustu fimmtán árin. Í hópi umsækjanda er fjöldi einstaklinga sem hafa gegnt stöðu bæjar- eða sveitarstjóra í öðrum sveitarfélögum. 4.7.2022 21:01
Eins árs fangelsi fyrir smygl á lítra af amfetamínbasa Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt pólskan karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot eftir að hafa reynt að smygla tæpum lítra af vökva sem innihélt amfetamínbasa til Íslands með flugi frá Varsjá. Maðurinn hafði samþykkt að flytja efnið til landsins gegn greiðslu. 4.7.2022 11:04
Fjögur ráðin til Orkustofnunar Orkustofnun hefur gengið frá frá ráðningum í fjórar stöður til að efla miðlun og vinnslu gagna, en um er að ræða tvær stöður sérfræðinga í greiningum og gögnum, auk ráðningu nýs þróunarstjóra gagna og verkefnastjóra Orkuseturs. 4.7.2022 08:44
Tveggja ára sögu Spaðans lokið Veitingastaðurinn Spaðinn, sem bauð upp á pitsur á matseðli, hefur lokað eftir ríflega tveggja ára starfsemi. 4.7.2022 08:06
Allhvöss norðvestanátt og gular viðvaranir í gildi Áfram verður allhvöss norðvestanátt um landið austanvert í dag, en dregur úr vindi í kvöld og nótt. Annars staðar má reikna með mun hægari breytileg átt á landinu. Gular viðvaranir eru í gildi á austanverðu landinu. 4.7.2022 07:47
Icelandair leigir breiðþotu næstu tvær vikurnar Icelandair hefur gert samning við portúgalska flugrekandann Euro Atlantic um leigu á Boeing 767-300 flugvél sem nýtt verður í millilandaflugi Icelandair næstu vikur. 4.7.2022 07:17
Vill að hægt verði að gelda dæmda kynferðisbrotamenn Ebba Busch, formaður Kristilegra demókrata í Svíþjóð, vill að hámarksrefsing fyrir nauðgun verði hækkuð í landinu í 25 ára fangelsi. Þá skuli það í sumum tilvikum sett sem skilyrði fyrir lausn úr fangelsi að dæmdir kynferðisbrotamenn séu geldir. 1.7.2022 16:01
Minecraft-spilarinn Technoblade er látinn Bandaríski Minecraft-spilarinn sem gekk undir nafninu Technoblade er látinn, 23 ára að aldri. Technoblade starfrækti gríðarvinsæla rás á YouTube þar sem hann birti Minecraft-myndbönd, en alls var hann með um tíu milljónir fylgjenda. 1.7.2022 09:23
Biður minkabændur innilegrar afsökunar eftir svarta skýrslu nefndar Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur beðið minkabændur í landinu afsökunar á þeim skapraunum og sorg sem ákvörðun danskra stjórnvalda um að lóga öllum minkum landsins í kórónuveirufaraldrinum hafi valdið þeim. Hún segir ákvörðunina um að fella stofninn þó hafa verið nauðsynlega. 1.7.2022 09:05