Bein útsending: Úrslit í hönnunarsamkeppni um brú yfir Fossvog Tilkynnt verður um úrslit í hönnunarsamkeppni um brú yfir Fossvogi á fundi klukkan 11 í dag. 8.12.2021 10:31
120 greindust innanlands 120 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 54 af þeim 120 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 45 prósent. 66 voru utan sóttkvíar, eða 55 prósent. 8.12.2021 10:24
Bein útsending: Kynning á yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, munu gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem kynnt var í morgun. 8.12.2021 09:20
Ólafía nýr fjármálastjóri Deloitte Ólafía Ingibjörg Þorvaldsdóttir viðskiptafræðingur hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Deloitte á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Sunnu Dóru Einarsdóttur, meðeigenda Deloitte og sviðsstjóra Viðskiptalausna, sem hefur gengt því starfi undanfarin fimm ár. 8.12.2021 08:58
Seðlabankinn ítrekar mikilvægi innlendrar greiðslumiðlunar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur ítrekað að brýnt sé að áfram verði unnið að innleiðingu á óháðri innlendri smágreiðslulausn án tengingar við alþjóðlega kortainnviði. Þá er ítrekað að hugað verði að rekstraröryggi greiðslukerfa og minnir rekstraraðila á mikilvægi þess að tryggja rekstrarsamfellu. 8.12.2021 08:47
Bein útsending: Orkuskipti á hafi Mögulegt er talið að orkuskipti innlenda skipaflotans verði um garð gengin fyrir árið 2050. Til þess þarf að tryggja framleiðslu og innviði fyrir rafeldsneyti og öflug stefnumótun að vera til staðar frá stjórnvöldum, með stuðningi við fjárfestingar, skattalegum hvötum og skýrum kröfum um vaxandi hlut grænnar orku í stað jarðefnaeldsneytis. 8.12.2021 08:30
Merkel hverfur úr stóli kanslara eftir sextán ár Olaf Scholz verður kjörinn kanslari Þýskalands af þýska þinginu síðar í dag. Þar með hefst nýr kafli í þýskri og evrópskri stjórnmálasögu þegar Angela Merkel hverfur af stóra sviðinu, en hún hefur verið kanslari í hartnær sextán ár. 8.12.2021 08:05
Einn grunaðra í máli Khashoggis handtekinn í París Lögregla í Frakklandi hefur handtekið sádiarabískan mann sem grunaður er um aðild að morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018. 8.12.2021 07:41
Stöku él og um frostmark suðvestantil Reikna má með suðlægri eða breytilegri átt í dag, golu eða kalda og björtu með köflum á norðan- og austanverðu landinu. Frost verður víða á bilinu núll til tólf stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands. 8.12.2021 07:18
Stal fimm lítra vínflösku með um 60 þúsund króna þjórfé starfsfólks Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa stolið föt fyrir 150 þúsund krónur úr verslun 66° norður, og vínflösku í eigu starfsmanna veitingastaðarins Lebowski bar á Laugavegi sem innihélt þjórfé að andvirði um sextíu þúsund króna. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir fjölda annarra brota. 8.12.2021 07:00