Ungir fatasalar möluðu gull Árni Sæberg skrifar 18. september 2026 16:39 Bergþór Másson í Takk Takk, Pétur Kiernan í Metta sport og Lana Björk Kristinsdóttir í Kenzen. Vísir Metta sport seldi íþróttafatnað fyrir 733 milljónir króna og hagnaðist um 252 milljónir í fyrra. Félagið er í 80 prósenta eigu Péturs Kiernan og 20 prósenta eigu Samúels Ásberg O'Neill, sem báðir eru á þrítugsaldri. Einn helsti keppinautur Metta, Kenzen, seldi fyrir 245 milljónir og hagnaðist um sextíu milljónir. Árið áður hafði Kenzen aðeins hagnast um 250 þúsund krónur. Þá sækir nýja fatamerkið Takk Takk í sig veðrið.
Þetta kemur fram í nýjasta ársreikningi félagsins PS2 ehf., sem á Metta sport. Samkvæmt honum voru tekjur félagsins 733.415.156 krónur í fyrra og afkoma ársins 546.127.778 krónur. Til samanburðar var afkoma ársins 2024 tæplega helmingi minni eða 288.885.697 krónur. Í fréttinni hér að neðan er fjallað um ársreikning þess árs og ævintýralegan vöxt Metta sport árin þar á undan: Í ársreikningi fyrir síðasta ár segir að eigið fé félagsins hafi í árslok numið 255 milljónum króna. Stjórn félagsins leggi til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 100 milljónir króna á árinu 2026. Í fyrra greiddi félagið hluthöfum sínum tuttugu milljónir króna. 245 milljónir á þriðja ári Fatamerkið Kenzen, sem framleiðir einnig íþróttaföt og er í beinni samkeppni við Metta sport, hagnaðist einnig vel á síðasta ári. Það er í jafnri eigu hinnar 23 ára Lönu Bjarkar Kristinsdóttir, sem stofnaði fyrirtækið aðeins tvítug árið 2023, og Mikaels Ársælssonar, sem er ári eldri en Lana Björk. Í ársreikningi LBK17 ehf., sem rekur Kenzen, fyrir síðasta ár segir að félagið hafi selt vörur fyrir 245 milljónir króna króna í fyrra og hagnast um sextíu milljónir króna. Athygli vekur að árið áður seldi félagið fyrir 77 milljónir króna og hagnaðist aðeins um 250 þúsund krónur. Þá segir í ársreikningnum að eigið fé félagsins hafi verið 61 milljón króna í árslok, samanborið við 1.262.770 krónur árið áður. Bergþór og Aron Kristinn sækja í sig veðrið Þá hafa athafnamennirnir Aron Kristinn Jónasson, Benedikt Andrason og Bergþór Másson nýlega hafið innreið inn á fatamarkað með lífstílsmerkinu Takk Takk. Það reka þeir í gegnum félagið Gunnar Huxley ehf., sem þeir eiga til jafns. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2025, fyrsta heila rekstrarárs félagsins, seldu þeir vörur fyrir 13,6 milljónir króna og högnuðust um 5,4 milljónir.
Tíska og hönnun Uppgjör og ársreikningar Tengdar fréttir „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Eigendur Metta Sport, Pétur Kiernan og Samúel Ásberg O’Neill, eru nýkomnir heim úr sumarfríi í Króatíu ásamt kærustum sínum, Valdísi Hörpu Porcu og Þuríði Guðrúnu Pétursdóttur. Ferðalagið einkenndist af sólríkum dögum og vellystingum ef marka má myndir á samfélagsmiðlum. 14. ágúst 2025 11:54 Mest lesið Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Sjá meira
„Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Eigendur Metta Sport, Pétur Kiernan og Samúel Ásberg O’Neill, eru nýkomnir heim úr sumarfríi í Króatíu ásamt kærustum sínum, Valdísi Hörpu Porcu og Þuríði Guðrúnu Pétursdóttur. Ferðalagið einkenndist af sólríkum dögum og vellystingum ef marka má myndir á samfélagsmiðlum. 14. ágúst 2025 11:54