Hreinsaður af sök um morð eftir 42 ár í fangelsi Karlmaður í Missouri í Bandaríkjunum hefur verið hreinsaður af sök um morð og honum sleppt úr fangelsi þar sem hann hafði verið látinn dúsa í 42 ár. Hinn 62 ára Kevin Strickland hafði verið ranglega sakfelldur vegna morða árið 1979 þegar hann var átján ára gamall. 24.11.2021 08:09
Hópsmit á sunnanverðum Vestfjörðum Þrettán eru smitaðir af Covid-19 á sunnanverðum Vestfjörðum, flestir á Patreksfirði. 24.11.2021 07:34
Él fram eftir degi á Norður- og Austurlandi en annars bjart Norðan hvassviðri eða stormur var víða á landinu í nótt en í dag lægir, fyrst vestantil á landinu. Reikna má með éljum fram eftir degi á Norður- og Austurlandi en annars bjart. 24.11.2021 07:07
Hollywood-björninn Bart er allur Hollywood-björninn Björninn Bart annar (e. Bart the Bear II) er allur, 21 árs að aldri. Björninn hafði birst í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda, þeirra á meðal Dagfinni dýralækni 2, Into the Wild og Game of Thrones. 23.11.2021 20:41
Leggur blessun sína yfir sölu á óvirkum farsímainnviðum Sýnar Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína yfir sölu fjarskiptafyrirtækjanna Sýnar og Nova á óvirkum farsímainnviðum til Digital Bridge Group Inc. 23.11.2021 14:47
Munu opna 156 götuhleðslur á ný eftir ógildingu úrskurðar Orka náttúrunnar mun síðar í vikunni opna 156 götuhleðslur á ný eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur felldi úr gildi úrskurð kærunefndar útboðsmála fyrr í dag. 23.11.2021 14:34
Þrír taldir af eftir flugslys í Noregi Þrír eru taldir hafa látið lífið þegar lítil flugvél hrapaði til jarðar fyrir utan bæinn Larvik í Noregi í morgun. 23.11.2021 11:50
Hrista upp í skipulagi Icelandair Group til að bregðast við breyttri heimsmynd Breytingar hafa verið gerðar á skipulagi Icelandair Group þar sem markmiðið að vera með enn skýrari áherslu á stefnu félagsins þegar kemur að sjálfbærum vexti, stafrænni umbreytingu og áherslu á upplifun viðskiptavina. 23.11.2021 11:02
194 greindust innanlands 194 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þetta er næsthæsti fjöldi sem greinst hefur á einum degi frá upphafi faraldursins, en mesti fjöldinn var 206 þann 15. nóvember síðastliðinn. 23.11.2021 10:17
Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálendi vegna norðan hríðar sem skellur á landið í kvöld. 23.11.2021 10:09