Kveður ferðaþjónustuna og hefur störf hjá Póstinum Sigríður Heiðar hefur verið ráðin í stöðu forstöðumanns söludeildar Póstsins. Hún hefur þegar hafið störf og mun leiða söluteymi Póstsins og bera ábyrgð á sölustarfsemi fyrirtækisins. 12.10.2021 12:42
Play bætir við þremur nýjum áfangastöðum á Norðurlöndum Flugfélagið PLAY hefur bætt þremur áfangastöðum í Skandinavíu við sumaráætlun sína. Um er að ræða Stafangur og Þrándheim í Noregi ásamt Gautaborg í Svíþjóð. 12.10.2021 11:19
36 greindust innanlands 36 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tuttugu þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 56 prósent. Sextán voru utan sóttkvíar, eða 44 prósent. 12.10.2021 10:49
Hannes nýr formaður Félags fasteignasala Hannes Steindórsson tók við stöðu formanns Félags fasteignasala á aðalfundi félagsins sem haldinn var á dögunum. Hannes tekur við stöðunni af Kjartani Hallgeirssyni sem hafði verið formaður frá árinu 2016. 12.10.2021 10:32
Stefna að byggingu fjölda almennra íbúða í Kristjaníu Danska ríkisstjórnin ætlar sér að láta reisa allt að 22 þúsund íbúðir fyrir almennan markað á nokkrum stöðum í Kaupmannahöfn, þeirra á meðal Kristjaníu, fram til ársins 2025. 12.10.2021 10:09
Kviknaði í olíu á pönnu hjá tólf ára kokki í Mosfellsbæ Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út seinni partinn í gær eftir að eldur hafði kviknað í olíu á pönnu hjá tólf ára kokki í Mosfellsbæ. 12.10.2021 07:33
Friðrik krónprins til Íslands í dag Friðrik, krónprins Dana, og utanríkisráðherrann Jeppe Kofod koma til Íslands í dag ásamt fulltrúar ellefu danskra fyrirtækja og stofnana til að styðja við bakið á samstarfi Danmerkur og Íslands á sviði viðskipta og sér í lagi á sviði sjálfbærra orkulausna. 12.10.2021 07:15
Ríkisstjóri Texas bannar að gera bólusetningu að skyldu Greg Abbott, ríkisstjóri Texas í Bandaríkjunum, hefur gefið út tilskipun þess efnis að hér eftir verði öllum félögum, fyrirtækjum og skólum í ríkinu bannað að gera bólusetningu gegn kórónuveirunni að skyldu. 12.10.2021 06:56
Rigning í öllum landshlutum og smá vindstrengur Skil koma að suðvesturhorni landsins núna í morgunsárið og er byrjað að rigna úr þeim á Reykjanesskaganum. Skilin fara norðaustur yfir landið í dag og því má búast við rigningu í öllum landshlutum, en þó ekki fyrr en seinnipartinn á Norðausturlandi. 12.10.2021 06:47
Líkamsárás á krá og ekið á ljósastaura Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út rétt fyrir miðnætti eftir að maður tilkynnti um líkamsárás á bar í póstnúmeri 108. 12.10.2021 06:39