Gjörólíkir öskudagar í Kringlunni og Smáralind Stjórnendur Kringlunnar stefna á að geta boðið börn í nammileit velkomin og vera með dagskrá fyrir þau á Öskudaginn sem haldinn er 17. febrúar í ár. Rekstraraðilar verslana í Kringlunni hafa í pósti verið hvattir til að vera með glaðninga þegar börnin mæta. Stjórnendur Smáralindar hafa hins vegar ákveðið að blása af hátíðahöldin að þessu sinni vegna heimsfaraldursins. 4.2.2021 13:38
Guðni og Eliza til Egilsstaða og Seyðisfjarðar Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú halda til Egilsstaða síðar í dag og heimsækja svo Seyðisfjörð á morgun. 4.2.2021 10:41
Fox gróf upp viðtal Jóhanns Bjarna við Kerry í umfjöllun um flugvélaeign fjölskyldunnar Bandaríska fréttastofan Fox birti í gær frétt þar sem stuðst er við viðtal Jóhanns Bjarna Kolbeinssonar, fréttamanns RÚV, við John Kerry, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og núverandi erindreka Bandaríkjastjórnar í loftslagsmálum, frá þeim tíma þegar hann var staddur á Íslandi árið 2019. Í fréttinni er einkaþotueign fjölskyldu Kerry til umfjöllunar. 4.2.2021 10:24
Segir skilið við Venstre Inger Støjberg, þingkona Venstre í Danmörku og fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, hefur skráð sig úr flokknum. Hún heldur áfram á þingi sem óháður þingmaður. 4.2.2021 09:34
Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Menntadagur atvinnulífsins fer fram í dag og hefst dagskráin klukkan níu. Þetta er í áttunda sinn sem dagurinn er haldinn og verður hægt að fylgjast með í streymi í spilara að neðan. Fundurinn stendur yfir í klukkustund. 4.2.2021 08:31
Loka á Facebook og aðra samfélagsmiðla í landinu Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur lokað á Facebook og aðra samfélagsmiðla í landinu og segist með því vera að tryggja stöðugleika í landinu. Herinn tók á dögunum völdin í Mjanmar og hneppti fjölda stjórnmálamanna í varðhald, þar á meðal kjörinn leiðtoga landsins, Aung San Suu Kyi. 4.2.2021 07:25
Hæð norður af Jan Mayen heldur lægðunum fjarri Öflug hæð norður af Jan Mayen stjórnar veðrinu næstu daga og heldur lægðunum fjarri landinu. 4.2.2021 07:11
Gera kröfu um neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku á landamærunum Sænsk stjórnvöld munu frá og með laugardeginum næsta gera kröfu um að útlendingar sem vilja ferðast inn í landið framvísi neikvæðri niðurstöðu úr Covid-sýnatöku á landamærunum. Þetta er gert til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. 3.2.2021 14:58
32 létu lífið í umferðarslysi í Úganda Að minnsta kosti 32 eru látnir eftir umferðarslys nærri bænum Kasese í vesturhluta Úganda í gær. 3.2.2021 13:41
Ákærð vegna brota á innflutningslögum og ólöglega vörslu á fjarskiptatækjum Lögregla í Mjanmar hefur ákært Aung San Suu Kyi, kjörinn leiðtoga landsins, í nokkrum liðum, fáeinum dögum eftir að herinn tók völdin í landinu. 3.2.2021 11:22