Skólafélagarnir kölluðu hann „Kidda kóng“ Þann 2.febrúar árið 2022 átti sér stað skelfilegur harmleikur við Framhaldsskólann á Laugum í Reykjadal. Hópur nemenda hafði verið að renna sér í snjó í brekku við skólann; hefð sem hefur tíðkast í áratugi. Einn nemandinn, Kristinn Aron Curtis Arnbjörnsson varð fyrir bíl og lést. Hann var einungis 19 ára gamall. Samfélagið í Þingeyjarsveit var slegið. 8.1.2024 06:44
Sverrir Þór dæmdur í sex ára og níu mánaða fangelsi í Brasilíu Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi Tönn hefur verið dæmdur í sex ára og níu mánaða fangelsi í Brasilíu fyrir fíkniefnabrot. Dómur féll í Ríó de Janeiro þann 23. nóvember síðastliðinn en Sverrir Þór var dæmdur fyrir að hafa í vörslu sinni 150 grömm af maríjúana og 3,6 grömm af kókaíni ætluð til sölu og dreifingar. 7.1.2024 09:01
„Ég er mjög þakklát fyrir að hafa bara kýlt á það og flutt út“ Árið 2022 ákvað Sandra Björg Stefánsdóttir að flytja til Horsens ásamt þriggja ára gömlum syni sínum. Hún var hvorki með vinnu eða húsnæði þegar hún kom fyrst til Danmerkur en tók eitt skref í einu og þraukaði. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. 2.1.2024 20:01
„Ég er glöð að ég fékk að kynnast honum og vinna með honum“ „Hann gat komið öllum til að hlæja. Um leið og hann kom inn í herbergi þá fór fólk að brosa,“ segir bandaríska leikkonan Chloe Lang og á þar við mótleikara sinn úr Lazy Town sjónvarpsþáttunum; Stefán Karl Stefánsson heitinn. 2.1.2024 14:06
Ísland stendur sig verr í að laða að hæfileikafólk Sviss trónir efst á lista yfir þau ríki sem standa sig best í því að laða til sín hæfileikafólk og hlúa að því. Singapúr er í öðru sæti og Bandaríkin í því þriðja. 2.1.2024 11:54
Sveitarfélagið hafi brugðist fötluðum syni hans „Við erum ekki að biðja um stóra hluti, bara að sveitarfélagið gefi sér sjálft tíma til að fara í þær framkvæmdir sem það ætlar sér að fara í áður en við þurfum að flytja barnið okkar milli skóla,“ segir Hjörvar Árni Leósson, íbúi í Skagafirði og faðir fimm ára drengs með flogaveiki, hreyfi- og þroskaskerðingu. 24.12.2023 08:01
„Ótrúlega gott fyrir fólk að sjá að lífið heldur áfram“ „Sorgin er ótrúlega erfið tilfinning, en líka ótrúlega falleg. Af því að við syrgjum ekki nema við höfum elskað,“ segir Bjarney Hrafnberg ljósmóðir en hún hefur fylgt óteljandi foreldrum í gegnum andvana fæðingu og stutt þau fyrstu skrefin út í lífið á ný. 23.12.2023 09:01
Lagði snemma áherslu á að herbergið væri hans einkaheimur Þórdís Þórðardóttir tók ákvörðun fyrir fimm árum um að halda á lofti minningu um son sinn sem féll fyrir eigin hendi langt fyrir aldur fram. Hún hvetur til vakningar í samfélaginu varðandi fordóma og hatursorðræðu í garð hinsegin fólks sem geti haft alvarlegar afleiðingar. 23.12.2023 07:00
„Er ekki dýrt að eiga svona barn?“ „Ég fæ reglulega spurningar eins og „Er þetta ekki erfitt?“ eða „Hvernig farið þið að þessu?“ segir Guðný Erla Guðnadóttir, móðir hins sjö ára gamla Sigurðar Hjálmars. Sigurður Hjálmar er greindur með ódæmigerða einhverfu, þroskahömlun, ADHD, hegðunarerfiðleika, frávik í gróf og fínhreyfifærni og frávik í skynjun. 17.12.2023 20:00
Áttu von á tvíburum en komu heim með eitt barn Árið 2021 fengu Rúnar Örn Birgisson og Kolbrún Tómasdóttir að vita að þau ættu von á tvíburum. Ekkert gat búið þau undir áfallið sem þau áttu í vændum. Annar tvíburinn lést í móðurkviði og stuttu seinna kom í ljós að bróðir hans hafði orðið fyrir heilaskaða. 17.12.2023 10:01