Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Í fréttatíma Sýnar í kvöld verður fjallað um stærstu fíkniefnahaldlagningu Íslandssögunnar. Lögreglan lagði hald á 106 kíló af kókaíni í síðustu viku og sitja níu menn í gæsluvarðhaldi vegna málsins. 30.6.2026 18:01
Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu Synjun meirihlutans í Reykjavík á deiliskipulagi Borgarlínu um Suðurlandsbraut gæti haft áhrif á tímalínu fyrstu lotu verkefnisins, sem á að vera tilbúin árið 2031.Þetta segir Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum. Suðurlandsbrautin er mikilvægur hluti fyrstu lotunnar, sem á að liggja frá Ártúnshöfða, um Suðurlandsbraut, miðborgina, háskólasvæðið og Landspítalann, yfir Fossvogsbrú og í Hamraborg. 30.6.2026 12:46
Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Kærunefnd jafnréttismála hefur hafnað máli konu sem taldi sér hafa verið mismunað á Hard Rock á Lækjargötu eftir að hún óskaði eftir þjónustu á íslensku. 29.6.2026 14:46
Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra varar Evrópusambandið við hugmyndum um að ný aðildarríki þurfi að bíða eftir fullum atkvæðis- og neitunarvaldsrétti eftir inngöngu í sambandið. 29.6.2026 12:54
Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Steinþór Helgi Arnsteinsson, einn eigenda Röntgens, Skreiðar og Bullseye í Austurbæjarbíói, segir áfengisgjöldin komin langt úr hófi og eiga stóran þátt í háu verði á börum.„Þessi áfengisskattur er kominn út í algjört rugl,“ segir Steinþór í hlaðvarpinu Eftirvaktinni, þar sem fjallað er um veitinga- og skemmtanabransann á Íslandi. 29.6.2026 11:40
Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður hagræðingarhóps Reykjavíkurborgar, og Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, eru sammæðra hálfbræður. Samtöl þeirra á milli undanfarna daga og inn í sumarið gætu orðið áhugaverð enda gæta þeir ólíkra hagsmuna við niðurskurð hjá Reykjavíkurborg. 29.6.2026 06:32
Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Ljósastýring á höfuðborgarsvæðinu er ekki fullnýtt þrátt fyrir að flest umferðarljós séu tengd miðlægu kerfi. Nýr meirihluti vill flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa á fyrsta ári sínu. 27.6.2026 07:33
Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verð á óslægðum þorski er nú tæplega fjörutíu prósentum hærra en í fyrra. Skortur er á hvítfiski í Evrópu sem má rekja til þess að veiðar á þorski í Barentshafi hafa dregist mikið saman og minna framboð af fiski frá Rússlandi. 26.6.2026 11:54
Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Nöfn einstaklinga sem tengjast virkri rannsókn embættis héraðssaksóknara sáust á tölvuskjá starfsmanns embættisins í kynningarmyndbandi ísraelska tæknifyrirtækisins Cellebrite. 26.6.2026 10:15
Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur samþykkti í gær að synja deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut. Skipulagið var hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og náði til kaflans milli Skeiðarvogar og Lágmúla. Í tillögunni var gert ráð fyrir breytingum á göturýminu, Borgarlínustöðvum og nýrri umferðarskipan á einni stærstu umferðarás austurhluta Reykjavíkur. 25.6.2026 12:02